The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, March 12, 2009
 
Barnahjal

Jæja, þá er maður loksins kominn á bloggið. Við erum bara í góðum gír hérna heima. Vinnan gengur sinn vanagang og allt er bara fínt. Við erum búin að vera afskaplega heppin með það að okkur hafa ,,áhlotnast" ný börn núna þegar maður síst átti von á því. Börn sem þurfa bara pössun í ákveðinn tíma og foreldrar þeirra hafa því ekki áhyggjur af því að við hættum að vinna (ef allt gengur áfram að óskum) þann 15.maí. Við erum nú ekki með öll pláss full en samt með 8 börn eins og er.

Það var soldið erfitt að halda út þessa viku af því að ég var svo spennt að fara í mæðraskoðun. En það er nú samt ýmislegar framkvæmdir búnar að vera í gangi. Ég er komin með þvílíka hreiðurgerðartilfinningu og er alveg að farast yfir því að geta ekki byrjað strax að þvo föt og gera allt klárt, setja upp rimlarúmið og svona. En ég vil alls ekki gera þetta allt alveg strax. Held að það verði bara enn erfiðara að bíða. En gamla herbergið hans José er lengi búið að fara i taugarnar á mér því það nýtist ekki í neitt annað en að safna drasli. Þannig að núna um helgina var gerð árás og tekið út skrifborðið, stóra sjónvarpið og rúmið. Við gerðum þetta saman ég og Lazaro en ég lét mig hafa það að bera þetta út í bílskúr með honum þótt það sé kannski ekki það besta fyrir mig. En ég var bara svo æst yfir þessu að ég vildi ekki bíða eftir að fá einhvern annan í málin. Núna er þetta herbergi bara með eina kommóðu og svo bókahillur sem innihalda allar barnabækurnar mínar og krakkana. Síðan setti ég bara leikföng þarna inn sem eru búin að vera að þvælast fyrir okkur og vera inní fataskápum. Þannig að Ævar, María og krílið eiga núna tvö herbergi, eitt sem Ævar og Maríu sofa í og annað bara undir leikföng. Svo í framtíðinni þegar maður vill skipuleggja þetta á annan hátt verður það ekkert mál því það er ekki neitt stórt eða þungt að flytja. Svo skreyttum við veggina með svona hundateiknimyndum sem eru bara límdar á þannig að þetta er voða hlýlegt og sætt og hefur fallið vel í kramið hjá foreldrum barnanna í daggæslunni. Þetta gaf mér a.m.k. voða góðar tilfinningar og er mun betri nýting á fermetrum heldur en áður.

Ég verð samt að viðurkenna að þetta er nú farið að þyngjast aðeins hjá mér og ég gæti aldrei unnið svona lengi ef að ég væri bara ein að vinna. Ég er farin að finna nokkuð fyrir grindargliðnun en ekkert rosalega samt. Ég var svo miklu verri á hinum meðgöngunum, ég man að ég fór í veikindafrí vegna verkja þegar ég var komin 4 mánuði á leið með Ævar! Núna er ég komin rúma 6 mánuði og þetta er svona rétt að fara af stað. Það hefur eflaust sitt að segja að ég er léttari heldur en ég var á hinum meðgöngunum þannig að álagið er minna.

Við fórum í mæðraskoðun núna á mánudaginn þegar ég var akkúrat komin 28 vikur. Blóðþrýstingur frekar lágur 110/65 en það er nú bara oftast þannig hjá mér þannig á meðan það líður ekki yfir mig þá er ég bara sátt við lífið. Það væri nú verra að vera með hann of háan. Við Lazaro tókum Maríu Rúnu með okkur en Ævar var í leikskólanum. Ég er bara hæst ánægð með allt. Þetta lítur bara vel út. Þvagið er fínt, legið orðið 30 cm og Áslaug gat sýnt mér hvar kollurinn var á krílinu, alveg þarna neðst í bumbunni. Hann er nú ekki búinn að skorða sig samt, það er fullsnemmt enn þá. Áslaugu fannst nafnið mjög flott og var alveg heilluð af krúttinu henni Maríu sem hún á auðvitað sinn hlut í, enda tók hún á móti henni. Svo heyrðum við hjartsláttinn sem er alltaf jafn yndislegt og Áslaugu fannst ég ekki hafa þyngst mikið miðað við hvað ég er komin langt á leið.

Ég fór svo í blóðprufu á Lansann en niðurstöðurnar komu ekki fyrr en daginn eftir. Þær hefðu nú mátt vera betri en ég er orðin mjög lág í blóði, komin úr 112 í 100 og Áslaug hringdi í mig til að segja mér þetta. Hún spurði hvort ég væri ekki að taka járn og ég játti því. En eftir að hafa lesið fyrir hana hvað stendur á flöskunni með þessari járnmixtúru þá kom það í ljós að þetta eru alltof fá mg í dagskammti sem hafa ekkert að segja fyrir mig. Ég á því að byrja að taka 100 mg á dag því eins og Áslaug benti á, þá hef ég tilhneigingu til að missa nokkuð mikið blóð þegar ég fæði og á það verður varla bætandi ef ég verð svona lág í blóði þá. Þannig að núna verð ég að vera dugleg í járninu. Áslaug heldur líka að þetta verði ekki 12 marka barn eins og ég var að segja henni að ég væri til í þetta skiptið. Hún sagði það bara ekki vera stærðin sem ég framleiddi.

Varðandi nafnið þá erum við semsagt alveg búin að ákveða það. Ef þið eruð alveg að drepast úr forvitni þá skal ég bara upplýsa þetta hér og nú. Hann á að heita Tupac Týr. Tupac nafnið valdi Lazaro er úr Quechua (indíána-tungumálið sem talar er í Perú) og þýðir mikilvægur, stórkostlegur eða dýrðlegur. Þetta er líka nafn mjög frægs manns sem var Inki og uppreisnarmaður sem leiddi baráttu gegn innrásarherjum Spánverja í Perú. Týs-nafnið valdi ég svo, en það er náttúrulega úr íslenskri goðafræði en Týr var stríðsgoð sem réði úrslitum í orrustum manna. Hann var líka goð visku. Við vorum lengi að velta fyrir okkur að hafa bara Tupacs-nafnið en þá verður að láta íslenska það og fá samþykki hjá mannanafnanefnd sem er heilmikið og oft á tíðum leiðinlegt ferli. Af því að L er útlendingur þá megum við gefa barninu eitt eiginnafn sem ekki er samþykkt hér en það verður að vera íslenskt nafn með. Ég nennti ekki að fara í gegnum svona ferli þannig að Týs-nafnið var sett með. En þetta eru voðalega hallærislegar reglur. En þetta er semsagt svona, bæði nöfnin út í loftin (og hann á semsagt ekki að heita eftir rapparanum heitna, Tupac Shaqir, þótt einhverjir gæti kannski haldið að hugmyndin kæmi þaðan). Enda erum við búin með ömmu og afa kvótann.

Ævar minn stendur sig eins og hetja í leikskólanum og við erum ofboðslega ánægð þarna. Það var danssýning hjá honum á mánudaginn og maður tók þetta auðvitað allt saman upp á video. Hrikalega montin mamma sko. Og amman fór líka með, enda er hún ekkert minna montin. Greyið Maríu langaði svo að dansa líka að hún var alveg niðurbrotin eftir þetta. Ég vona bara að hún komist inn fyrr en í júní. Hún þarf svo á því að halda að fara í leikskólann líka. Samt er hún ofsalega góð svona heima, allt annað barn þegar Ævar er ekki hérna til þess að æsa hana upp í vitleysu og rifrildi. Svo er okkur foreldrunum boðið í kvöld ásamt kennurunum, í mat í boði foreldrafélagsins. Það verður skemmtilegt tækifæri til þess að kynnast aðeins hinu fólkinu þarna og bara, komast út úr húsi. Mamma ætlar að sitja yfir krökkunum sem verða send snemma í háttinn í kvöld.

Jæja, ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Þeim ykkar sem er farið að ofbjóða hvað bloggið mitt er meðgöngu- og barnatengt verðið bara að sætta ykkur við það. Það kemst bara ekkert annað að hjá mér í bili.

Nínos og Tupac Týr
28 vikur og 3 dagar.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives