Meðgöngu-vangavelturÞað er ótrúlegt að ég sé komin svona langt! Þetta eru ekki nema þrír og hálfur mánuður sem er eftir af meðgöngunni. Ég trúi þessu varla. Við L erum farin að kalla litla manninn alltaf nafninu sem við erum búin að ákveða og það er góð tilfinning að vera komin með nafn, það gerir þetta allt saman raunverulegra. Við eigum alltaf góða stund saman uppí rúmi á kvöldin þar sem krílið leikur listir fyrir okkur nánast undantekningalaust. Í gær var þetta bara alveg rosalegt. L hefur aldrei fundið svona sterkar hreyfingar og mikil læti. Við erum alsæl með þetta og virkilega farin að hlakka til þótt ég minni sjálfa mig enn á það að reyna nú að njóta meðgöngunnar til hins ýtrasta því hún gæti vel verið sú síðasta. Nóg verður nú vinnan þegar barnið kemur í heiminn.
Annars fengum við þær frábæru fréttir að Ævar sé búinn að fá pláss á leikskólanum Vinagarði núna í byrjun mars og það er náttúrulega æðislegt í alla staði. Ég vona bara að María komist sem fyrst. Það væri frábært ef hún kæmist áður en litli bróðir kemur í heiminn en það verður bara að koma í ljós, hún er alla veganna næst á lista inn.
Ég missti mig um daginn og réðst á svarta ruslapokann niðri í kjallara sem var fullur af barnafötum og fór í gegnum þau. Ég held að sá litli eigi bara alveg þokkalega nóg af fötum af öllum stærðum og gerðum. Ég tók frá það sem ég ætla að nota og stakk þessu bara beint í kommóðuskúffunar. Ég þvæ þetta svo þegar nær dregur og geng betur frá því. Full snemmt að gera það núna en ég veit að minnsta kosti hvað ég á og hvað gæti vantað. Sem er nú eiginlega ekkert nema helst sokkabuxur. Keypti tvö pör af þeim í Rúmfatalagernum og ætla bara að bíða og sjá núna. Ekkert að fara að missa mig í fatakaupum. Það er nóg af húfum og útigöllum af öllum stærðum og gerðum þannig að þetta er bara fínt. Verst hvað maður verður spenntur á að stússa í þessu öllu.
Við stefnum á að hætta að vinna þann 15.maí ef að allt gengur að óskum og förum þá bæði í fæðingarorlof. Ég er sett 1.júní og vil reyna að vinna eins lengi og hægt er vegna foreldra barnanna sem við erum að passa sem eru ekkert allir komnir með leikskólapláss eða aðra gæslu eftir að við hættum. En ég ætla heldur ekki að vinna fram á síðasta dag og vera svo alveg uppgefin þegar barnið kemur í heiminn. Lærði þá lexíu the hard way þegar ég gekk með Ævar og passaði mig á annarri meðgöngunni. Ég er líka svo til hætt að lyfta börnunum hérna og L sér bara um þá deildina.
Varðandi fæðingarorlofið þá þýðir ekkert að gera það öðruvísi því ekki verður L með fullt hús af börnum hér á meðan ég er með nýfætt barn. Þá væri ég bara að vinna líka. Ég hlakka rosalega til að eignast barn svona um sumarið og njóta þess að vera á Íslandi í sumar en ég hef ekki verið hér undanfarin tvö sumur. Við eigum rosaflott tjald sem var keypt í einhverju brjálæði eitt árið sem er fyrir sex manns þannig að það er kannski kominn tími á að prófa útilegur í sumar þegar sá litli er orðinn aðeins stálpaður. Ég hef sko aldrei farið í útilegu á eigin vegum, bara tvisvar sinnum sem barn með öðru fólki. Þetta yrði þvi alveg ný reynsla. Það verður yndislegt að geta verið bara tvö heima með nýja barnið og notið þess saman á meðan Ævar og Maríu njóta lífsins í nýja leikskólanum sínum. Ég held að það komi örugglega líka að einhverju leyti í veg fyrir afbrýðisemi af þeirra hálfu ef að þau eru ekki innilokuð allan daginn með okkur heldur fái útrás í skólanum og komi svo heim og njóti litla bróðurs síns.
Jæja, þetta kemur víst allt í ljós fyrr en varir. Annars er ég í algjöru rugli. L á afmæli á morgun og ég veit ekkert hvað ég á að gefa honum :(
Nínos og Krílos kveðja í bili,
24 vikur og 1 dagur.