Gleðlileg Jól
og vonandi hafið þið öll haft það gott yfir hátíðarnar. Ég er sko alsæl. Við vorum reyndar fámenn en góðmenn hérna á aðfangadag, bara ég, L., mamma og börnin tvö. Síðustu ár höfum við auðvitað verið með Perú-börnin og svo líka Carlos og Lourdes í mat þannig að þetta var svolítið mikill munur. Manni fannst hálf tómlegt, en C og L eru á Spáni hjá fjölskyldu hennar. En ég stóð mig bara vel í eldamennskunni, var með kalkún. Eina vandamálið er að ég eldaði 6 kílóa fugl svona af gömlum vana :) Við erum enn að borða hann takk fyrir og sér ekki fyrir endann á þessu. En það er allt í lagi því hann var vel heppnaður þökk sé steikingarpokanum, sem er bara algjör snilld, þá þarf ekkert að vera að ausa yfir til að kjötið þorni ekki.
Ævar og María voru auðvitað rosalega spennt út af pökkunum og það gekk heilmikið á að opna þetta allt saman. Ævar fór að hágráta þegar María fékk My Little Pony hest en hann liti og litabók. Honum fannst þetta afar ósanngjarnt, en þau eru bæði enn á þessu stigi að verða að fá allt eins. Best að reyna að venja þau strax af því. En þetta fór nú allt saman vel á endanum og þau voru afskaplega ánægð með gjafirnar. María fékk dúkku frá okkur sem fer á koppinn (svona verið að reyna að fá hana sjálfa til að sjá ljósið, er sko enn algjört bleiubarn og mér líst ekki á blikuna með þau mál). En svo sló alveg í gegn Latabæjar-náttfötin frá Önnu frænku og þau er enn þá í þeim takk fyrir! Rétt samþykkja að fara i bað inná milli.
Í gær vorum við með fjölskyldu-jólaboð þar sem allir komu með eitthvað á borðið. Þetta var alveg frábærlega vel heppnað og hlaðborðið varð auðvitað óhugnalega ofhlaðið kræsingum þannig að enginn fór svangur heim held ég. En besta jólagjöfin í ár tengdist þessu jólaboði mínu vegna þess að það greri um heilt (svona nokkurn veginn alla veganna) á milli fólks í fjölskyldunni sem hefur ekki viljað tala saman í mörg ár og það er auðvitað alveg í anda jólanna, ekki satt?
Nú, svo förum við í mæðraskoðun í næstu viku og ég er mjög spennt yfir því. Vinkona mín hún Rakel, lánaði mér óléttuföt af sér sem kom sér mjög vel þar sem ég er orðin svo magamikil núna. Svo lánaði hún mér líka tæki til að hlusta á hjartsláttinn í barninu sem ég er mjög spennt fyrir. Hef nú enn ekki náð að heyra hjartsláttinn, það getur víst verið að ég verði að vera komin aðeins lengra til þess að þetta virki, en ég heyri alla veganna rosa meltingatruflanir í sjálfri mér :) Prófa þetta á hverjum degi sko. Síðan er það sónarinn 16.janúar. Veii!!!!
Bless í bili,
Nínos og bumbubúi 17 vikna.