The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, November 14, 2008
 
Gleðin og ógleðin

Það linnir ekkert á ógleðinni en ekkert hef ég samt kastað upp. Ég er farin að telja niður dagana þangað til ég lýk tólftu viku og treysti á að þá losni ég við ógleðina, rétt eins og með Ævar og Maríu. Það er ótrúlegt hvað þetta getur tekið mikið á mann og veldur mikilli vanlíðan. Sérstaklega þegar maður er í vinnunni. Ævar og María eru líka mjög krefjandi hérna heima og ég stefni sko pottþétt á það að þau verði komin á leikskóla áður en nýja barnið fæðist. (Ævar er hættur í leikskólanum sem hann var í, hann var mjög ósáttur þar og ég líka ósátt við ýmislegt) Þau eru svo mikil krútt, en samt alveg að gera mann vitlausan. Annars eru þau einhvern veginn búin að átta sig á því að eitthvað sé í gangi og Ævar spurði mig um daginn hvort það væri lítið barn í maganum. Ég sagði þeim að svo væri og hann vildi endilega að læknirinn tæki það út núna svo hann gæti séð það. Ég sagði að hann yrði nú að bíða þangað til barnið yrði stærra áður en það kæmi út. Gaman að sjá hvað þau eru að pæla þessi grey. Ævar sagði til dæmis um daginn sem mér leist nú ekki alveg á. Hann sagði að hann elskaði mömmu af því að við værum bæði gul á litinn, en María elskaði pabba af því að þau væru bæði græn á litinn. Hann er náttúrulega kolruglaður í litunum en hefur semsagt áttað sig á því að hann er hvítur eins og ég og María brún eins og pabbi hennar. Mer fannst þetta svo sorglegur hugsunarháttur og benti honum á að við gætum elskað alla, sama hvernig þeir væru á litinn. Hann var samt nokkuð með þetta á hreinu og ekki alveg til í að breyta um skoðun.

Annars er allt sæmilegt af okkur að frétta. Við erum búin að fá eitt nýtt barn þannig að núna eru ,,bara" tvö pláss laus hjá okkur. Þetta gengur allt sinn vanagang og bara vonandi að þetta fari ekki í neina vitleysu hjá okkur í þessu ástandi eins og það er í þjóðfélaginu. Ég fékk óvænta símhringingu frá Biddí, sem var æskuvinkona mín og bekkjasystir. Ótrúlegt alveg. Það á að vera smá samkunda hjá okkur sem vorum saman í bekk í Landakotsskóla núna á laugardaginn. Þetta verður mjög einkennileg upplifun en ég vil endilega fara. Maður hefur ekki séð sumt af þessu fólki í 18 ár, takk fyrir.

Svo er nóvember bara alveg fullbókaður hjá okkur í félagslífinu, afmælisboð, jólahlaðborð dagforeldra og margt fleira. Mest kvíði ég þó fyrir afmælisdeginum hennar Kelly, sem er núna 25.nóv. Ég veit ekki alveg hvernig maður verður, okkur leið nógu illa þann 18.október, en þá varð Charo 16 ára. Tíminn einn mun leiða í ljós hvað gerist í þessu máli. Maður er ekki einu sinni hálfnaður í að melta þessa reynslu.


Ég er byrjuð á nýju átaksnámskeiði sem er 6 vikna langt. Kláraði 8 vikna námskeiðið og skrópaði aldrei. En ég er samt ekki nógu ánægð með mig. Hef ekki stigið á vigtina í örugglega þrjár vikur og þori því ekki. Ég er búin að vera svo svöng alltaf og borða mikið meira en ég er vön. Það er bara eins og ég geti ekki þolað neitt hungur. Ég vil kenna óléttunni um en innst inni er ég auðvitað skíthrædd við að fara í sama far og áður og að kannski sé ég að notfæra mér óléttuna til að láta alltof mikið eftir mér í mataræðinu. Æi, ég er bara svo þreytt á þessu. Stundum finnst mér tilhugsunin um að verða aftur eins og ég var eiginlega freistandi, að minnsta kosti var ég ekki alltaf að hugsa um hvað ég var að láta ofan í mig. Það getur verið rosalega lýjandi að vera svona feitlagin og þurfa að hugsa sig tvisvar um allt sem maður borðar. Mér finnst ég á ákveðinn hátt hafa verið frjálsari áður í þessum málum, en er samt auðvitað ekki til í að bæta á mig 20+ kílóum mig í nafni þess frelsis. Ég hata vigtina, en ef ég hætti að vigta mig, þá bara hlaðast á mig kíóin. 'Uff, hvað ég er orðin leið á þessu.

Bless í bili,
Nínos.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives