The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Sunday, May 25, 2008
 
Biðin senn á enda!!!

Þá er bara eiginlega komið að því, við erum að fara til Perú á föstudaginn og ég trúi því varla. Ég er búin að vera svo spennt að ég get ekki lýst því. Við vorum í dag að pakka niður flestu dótinu okkar og þetta er óhugnanlega mikill farangur sem fer, svona ca. þrettán ferðatöskur fyrir átta manns. En eins og áður er mestmegnið af þessu gjafir til fólksins úti, helst föt og svoleiðis.

Húsnæðið okkar verður í góðum höndum á meðan á utanlandsferðinni stendur og því þýðir ekki fyrir einhverja innbrotsþjófa að hugsa sér gott til glóðarinnar á meðan við erum í burtu. Húsið verður fullt af fólki. Við ætlum að taka ferðatölvuna með í þetta skiptið og fá internet-tengingu inn í íbúðina í Chiclayo þannig að ég eigi ekki að geta notað neina afsökun fyrir því að vera ekki dugleg að blogga. Svo er þetta nú líka gert þannig að mamma geti stytt sér stundir svona á milli ævintýranna sem við eigum eftir að upplifa.

Verð að viðurkenna að ég er ekki spennt fyrir ferðalaginu sjálfu. Það er töff að ferðast með lítil börn í sólarhring. Förum fyrst til New York og það er 6 tíma flug, stoppum þar í 4 og hálfan tíma og svo næturflug tekið til Lima í Perú sem eru litlir 8 tímar. En núna verður þó María með sitt eigið sæti þannig að það ætti að gera farið aðeins betur um okkur en seinast en þá var þetta næturflug algjört hell. Maður kom bókstaflega lamaður út úr vélinni eftir að hafa sitið undir steinsofandi barninu. Svo er náttúrulega líka ógeðslega spennandi að sjá í fyrsta skiptið nýju íbúðina okkar í Lima. Eins gott að þetta sé ekki eitthvert hreysi.

Það eru bara tveir vinnudagar eftir hjá okkur en miðvikudag og fimmtudag ætlum við að nota til að ganga frá því sem ganga þarf frá og athuga hvort maður sé nokkuð að gleyma einhverju. Annars er maður nú það skipulagður að ég held að þetta verði allt í lagi. Aðallega bara ekki gleyma vegabréfunum. Hehe.

Ég fór á föstudaginn í andlitsbað hjá Mecca Spa sem var hluti af afmælisgjöf frá vinkonum mínum. Svo fer ég á þriðjudaginn í heilnudd. Húðin á mér er mjög hrein núna, jújú, ég get ekki kvartað, en Guð minn góður þegar fílapenslarnir voru kreistir þá stóð mér ekki á sama. Svo var ég þar að auki með rosabólu á hökunni og var mér gefið raflost í hana!!! Samt var þetta nú ekki eins slæmt og brasilíska vaxið. En svona á heildina litið þá var þetta mjög fínt og afskaplega afslappandi, enda fylgdi baknudd með í kaupbæti.

Þau ykkar sem eruð óhress með það að ég sé að fara aftur til Perú og enn séu ekki komnar inn á síðuna myndir frá síðustu ferð, verðið að beina reiði ykkar að honum Ásgeir tölvugúrú, sem lofaði mér að reyna að koma myndunum inn á netið þegar ég gafst upp á picturetrail sökum hægagangs. Og hafðu nú það Ásgeir!!! Nei, nei, allt í góðu sko.

Ég ætla að láta þetta duga í bili en lofa að reyna að vera í sambandi og blogga eins mikið og hægt er. Oh!!! Eruð þið ekki abbó?

Bless í bili,
Nínos.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives