The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, April 12, 2008
 
Húllumhæ!!!

Jæja, það er loksins að maður getur sest niður andartak og bloggað smávegis. Það er búið að vera brjálað að gera hérna hjá okkur og ég held að ég hafi bara aldrei unnið eins mikið og núna um páskana. Við fengum semsagt nýju íbúðina afhenta á miðvikudaginn fyrir skírdag og þá var sá dagur strax notaður til þess að undirbúa málningarvinnunna. Á fimmtudaginn var allt málað og með dyggri aðstoð Magga (málarameistara og mágs L) þá var búið að mála allt á einum degi! Þetta hefði ekki klárast ef José og Charo hefðu ekki hjálpað okkur en Kelly sá að mestu um Ævar og Maríu. Svo var bara byrjað að flytja upp á föstudegi og það voru óteljandi ferðir á Sorpu farnar og það þótt maður héldi að maður ætti ekki svo mikið dót. Við notuðum pressuna af því að ákveðið var að halda afmælið hennar Maríu á laugardaginn 22.mars þannig að þetta bara varð að ganga. Það tók fleiri, fleiri klukkutíma bara að fara upp með allt eldhúsdótið mitt sem er greinilega óhugnalega mikið og það þótt ég hafi verið nýbúin að taka í gegn eldhúsið niðri.

Þetta hafðist og afmælið var haldið á tilsettum tíma en ég er ekki að grínast, við vorum að rífa plastið utan af nýja sófanum (innflutningsgjöf frá mömmu) og borðstofuborðinu 2 tímum áður en veislan byrjaði. Dálítið stressandi sko. Það var ákveðið að íbúðin niðri fengi að halda flestum gömlu húsgögnunum og yrði bara leigð þannig út. En þegar kom að páskadegi sáum við að það var svo mikil málning eftir að ákveðið var að mála íbúðina niðri líka og þvílíkur munur. En rosalega var ég orðin þreytt meðan við vorum að þessu og svakalega var maður ekki í stuði til að fara að vinna eftir páska "fríið". Svo helgina eftir páska þá varð L æstur og uppvægur að taka bara sameignina í gegn líka þannig að þvottahúsið, sameignargangurinn og þurrkherbergið voru hreinsuð, og máluð á veggjum og gólfi. Það er ótrúlegur munur á gólfunum sérstaklega af því þau voru bara steinsteypan áður en núna fagurgrá með svörtum og hvítum flögum. Þetta lítur svo miklu betur út. En eftir þetta þá var skrokkurinn á mér bara algjörlega búinn að vera. Ég var með sprungna hnúa og öll í marblettum og eymslum, enda unnið í tvær vikur nánast frá 8 á morgnana til 12 á miðnætti. Svo bætti ekki úr skák að maður var alltaf með þetta stress yfir að vera ekki að sinna Ævari og Maríu nógu vel á meðan.

En ég er auðvitað ofsalega fegin að þetta er afstaðið og núna erum við bara að leita að réttum leigjendum fyrir íbúðina niðri. Svo er það nú þannig að maður er á kúpunni og því ekki mjög skynsamlegt að vera í neinni aukaeyðslu en það vill nú þannig til að ég verð þrítug þann 14.apríl og núna þegar maður er í stærra húsnæði þá er mikil freisting að halda partý þannig að það var bara ákveðið að kýla á það og núna í kvöld verður svaka húllúmhæ á Kambsveginum með pinnamat og nóg af bjór (fyrir þá sem það vilja), því ég nenni sko ekki að elda eða baka neitt.

Annars var ég líka í gær í rosalegu stelpuprógrammi því ein af vinkonum mínum úr mömmuhópnum var gæsuð og það var meiriháttar gaman. Ég er svo glöð að vera búin að eignast svona góðan vinkonuhóp því ég hef í gegnum tíðina átt frekar fáar vinkonur á mínum aldri, fyrir utan hana Jóhönnu mína sem svo bara hvarf til Danaveldis og ómögulegt að vita hvenær maður endurheimtir hana þaðan.

Svo má líka til gamans minna á það að það eru ekki nema 7 vikur þangað til við förum til Perú (ekki það að maður sé að telja niður sko, hehe) og ég er að farast úr spennu. Ég held að eftir allt þetta sem gengið hefur á þá veiti manni ekki af því að komast í gott frí. Það er yndisleg tilhugsun að vera búin að fá nýju íbúðina og búin að flytja áður en við förum. Það vantar bara að leigja út niðri sem er algjört möst af því við verðum tekjulaus í þrjá mánuði. Ég hlakka svo til að fara, sérstaklega af því að mamma kemur með og hún á eftir að hafa svo gott af þessu. Það verður samt svolítið skrýtið að sjá hana þarna úti, einhvern veginn óraunverulegt. En það er æðislegt að hún verði með okkur. Svo er það nú líka frábært að fá svona gott frí frá vinnunni enda verð ég að viðurkenna að þótt ég og L séum sátt við daggæsluna þá er þetta rosalega lýjandi starf og maður er stundum alveg búin eftir daginn.

Og ég held að ég hafi ekki verið búin að minnast á það að Ævar minn er búinn að fá pláss á leikskóla! Hann á að byrja á Ásborg sem er bara hérna í næstu götu þann 15.apríl. Leikskólastjórinn var í fyrstu ekki viss um að þetta yrði svo gott fyrir hann þar sem við förum svo út í þrjá mánuði en ég held að það verði ekkert mál. Hann á alveg eftir að muna eftir leikskólanum og hlakka til að fara aftur í haust. Ég hef ekki trú á því að það verði einhver svaka aðlögun sem hann muni þurfa þá, né heldur núna. Við fórum í heimsókn og Ævar vildi ekkert fara heim aftur. Honum leiðist orðið svo svakalega hérna með litlu börnunum. Það er alveg búið að ganga eins langt og hægt er með að halda honum heima. Ég get ekki gert honum þetta lengur. Hann þarf á meiri örvun að halda en við getum boðið honum uppá hér. Ég held samt að þriggja ára sé ágætis aldur til að byrja í leikskóla af því að þau skilja þá orðið miklu meira og maður getur sagt að maður skilji þau eftir og komi svo aftur að sækja. Ævar hefur alla veganna alltaf verið mjög rólegur yfir því að vera passaður af fólki sem hann þekkir ekki mjög vel (eins og kom í ljós síðasta sumar útí Perú þar sem hann var oft í pössun hjá fjölskyldunni) og ég held að hann eigi ekki eftir að þurfa mikla aðlögun á leikskólanum. Ekki er verra að hann er kominn á aldur þar sem hann getur sagt frá því ef eitthvað kemur uppá og það veitir mér svona aukna öryggistilfinningu. Hann verður í 5 tíma á dag frá 11.30 til 16.30 og ég held að það sé alveg feykinóg þar sem við þurfum ekkert á 8-9 tíma gæslu að halda fyrir hann, enda er það ógeðslega langur vinnutími fyrir litla krakka. Hann er líka svo morgunsvæfur að ég leyfi honum þá bara að sofa út eins og hann er vanur og svo fara í rólegheitum í skólann. Ég er svona að ímynda mér það að hann verði auðveldari í umgengni hérna heima fyrir þegar hann er búinn að fá útrás í skólanum yfir daginn. Æi, þetta er bara svo spennandi :)

Jæja, ég er örugglega að gleyma einhverju en læt þetta duga í bili.
|
Monday, April 07, 2008
 
Það eru komnar nýjar myndir hérna til hliðar úr 2 ára afmælinu hennar Maríu minnar. Ég mun svo reyna að blogga almennilega bráðum, en það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að ég hef ekkert getað farið á netið. En í stuttu máli sagt þá erum við flutt í nýju íbúðina og erum alsæl en þetta er búin að vera ómannúðleg vinna og var gert á rosalegum hraða. Ég set þetta svo allt inn í smáatriðum við tækifæri.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives