Jólin koma......og ég hlakka svo til! Ég er alveg að tapa mér yfir hátíðinni sem senn gengur yfir. Ég hef verið að einstaklega skipulögð þetta árið og er löngu búin að ganga frá öllum jólagjöfum í ár. En áður en lengra er haldið þá vil ég óska mömmu minni til hamingju með afmælið í dag, en hún hefur náð þeim árangri að verða 55 ára gömul. Við ætlum út að borða bara tvær saman í kvöld og ég held að það verði kærkomin tilbreyting fyrir okkur báðar. Ekki það að maður sé ekki ánægður með allt, það gengur mjög vel í daggæslunni, við erum búin að fylla lausu plássin og afskaplega ánægð með börnin öll. Ég var einmitt að kíkja á allar myndirnar sem ég er búin að taka af þeim síðan í haust og maður fékk svona sting í hjartað að sjá börnin sem eru hætt, þótt að þau hefðu ekki stoppað lengi við hjá manni. Maður tengist þessum krílum samt sem áður. Ég ætla að drífa mig í að framkalla núna fyrir jól og gefa foreldrunum síðan myndaalbúm af krökkunum sínum í jólagjöf ásamt teikningum eftir þau.
Við L ætlum að taka alveg frí á milli jóla og nýárs og ég get ekki annað en viðurkennt að það verður kærkomið að fá smá pásu frá vinnunni þótt að allt gangi alveg eins og í sögu. Það verður notalegt að slaka á og hafa það gott burt frá öllum krílunum og koma svo endurnærður til starfa á nýju ári.
Ég get ekki að því gert en jólin leggjast mjög vel í mig og ég hlakka alltaf jafn mikið til þeirra. En desember-mánuður er náttúrulega stórmerkilegur fyrir þær sakir aðrar að Ævar minn á afmæli 17. þess mánaðar og verður núna þriggja ára. Ég trúi þessu bara varla. Þetta er lyginni líkast hvað tíminn hefur flogið áfram. Svo er hann bara orðinn svo duglegur, hættur með bleiuna og allt, alveg eins og það er búið að vera langdregið ferli. Ég er ekkert smá fegin að það dæmi er loksins komið í gegn enda búið að vera þreytandi. Ég er svo stolt af honum. Hann vill ekki sjá koppinn heldur segist bara ætla að pissa eins og pabbi og gerir allt í klósettið. Hann er ferlega montinn af þessu sjálfur. Svo er hann mjög spenntur út af afmælinu sínu en við ætlum að halda upp á það núna á laugardaginn. Hann skilur nú ekki alveg hvað afmæli er annað en að þá koma pakkar, blöðrur, krakkar og kökur mikið við sögu og við það er hann sáttur. Hann heldur líka að hann og Kelly eigi bæði afmæli, greyið. Ég er búin að kaupa inn fyrir veisluna og lét það eftir mér að panta skúffuköku í bakarí sem verður með Bubba byggis-mynd á. Bubbu byggir er uppáhaldið hans Ævars og ég veit að hann á eftir að verða dolfallinn yfir þessu. Ég var búin að velta því fyrir mér hvernig ég gæti sjálf gert svona köku, en það er borin von að hæfileikar í matargerð og bakstri séu á svo háu stigi hjá undirritaðri.
Ég fór á mánudaginn út að borða með stelpunum í mömmuklúbbnum mínum og það var eins og alltaf, rosalega gaman. Við komum allar með einn pakka og skiptum þeim svo upp, héldum okkar eigin litlu jól. Ég fékk ógeðslega flotta cappuccino og expresso bolla og það ýtti enn fremur undir löngun mína til þess að eignast svona alvöru kaffivél sem malar kaffið og gerir alvöru kaffisopa. Við borðuðum á staðnum B5 og vorum ekkert rosalega sáttar við þjónustuna. Þjónninn okkar virtist vera frekar reynslulítill (ég vona það alla veganna) og var bara úti að aka í öllu sem hann gerði, sem var nú ekki svo mikið því að það var voða erfitt að fá þjónustu hjá honum. Maturinn var bragðgóður en af heldur skornum skammti fyrir minn smekk. Ég bara fíla ekki þennan ,,franska" stíl þar sem það situr einhver pínulítil matarhrúga á miðjum diskinum og svo sósuslettur til skrauts á nánast auðu yfirborði disksins. Svo fékk ég mér súkkulaðiköku með kókosís í eftirrétt, og súkkulaðikakan var svona í þrjá munnbita og ísinn var ein matskeið. Ég þoli ekki svona! Fyrir mig á matur á veitingastöðum auðvitað að vera fallegur fyrir augað og jákvæð upplifun fyrir bragðskynið, en það má nú líka gera eitthvað til að fullnægja mallakútnum. Jæja, þetta er þó gott fyrir átakið svosem, en ég er aftur byrjuð að halda í við mig. Mig langar að léttast aðeins meira. Veit samt ekki hvort að þessi mánuður var akkúrat skynsamlegasti tíminn til að byrja aftur... :p
Bless í bili,
Nínos hefur tjáð sig.