The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Wednesday, November 14, 2007
 
Búin að fá nóg

Var í sundi í gær með öllum krökkunum. Þetta var í fyrsta skipti sem Maríu fór í sund og henni leist nú ekkert of vel á blikuna í fyrstu. Rak upp rosaöskur þannig að ég bara skammaðist mín þegar ég fór ofan í pottinn með hana. En Ævar er nú aðeins vanari og hughreysti hana þannig að hún aðlagaðist fljótt. En svakalega finnst mér starað mikið á mig þegar ég fer með hana og Ævar út, það liggur við að maður heyri hvernig brakar í heilanum á fólki þegar það er að velta því fyrir sér hvernig standi á því að ég eigi svona ólík börn. Hvort annað sé kannski ættleitt eða hvað. Reyndar heyrði ég nú aðeins meira en hugsanir í gær í sundi. Fór með Ævar og Maríu í diskinn (vorum sko í Laugardalslauginni) og þar voru tvær unglingsstúlkur að ræða saman. Þær sáu Kelly og eldri krakkana tala við mig og fara svo í laugina, en ég varð eftir með þau litlu. Það er greinilegt að þessar stelpur eru úr Langholtsskóla því þær þekktu krakkana og voru að tala um þau og pískrandi um mig og litlu börnin. Ég veit ekki hvort þær hafi ekki gert sér grein fyrir því að ég heyrði vel til þeirra eða hvort þeim var alveg sama en maður heyrði athugasemdir eins og: ,,Þetta er svoldið skrýtið með þessi litlu....kannski eru þau ekki bæði systkini þeirra...en af hverju er sá eldri íslenskur...blablabla..." Ég er kannski gamaldags en mér finnst þetta ótrúleg ókurteisi. Ef maður ætlar að tala um fólk á þessum nótum þá væri betra að koma bara hreint fram og spyrja þeirra spurninga sem hvíla á manni eða bíða með baktalið þar til manneskjan sem um ræðir er í hæfilegri fjarlægð. Ég veit alveg að það er óvenjulegt hvað Ævar er hvítur miðað við að eiga svona dökkan pabba og enn þá skrýtnara að litla systir hans skuli síðan hafa fæðst svona mikið dökk, og ég tek það ekkert nærri mér þótt að fólk haldi kannski að ég hafi átt Ævar áður með öðrum manni, (nema fólk viti að við Lazaro erum náttúrulega búin að vera saman í 6 ár þannig að ef Ævar ætti annan pabba þá væri það frekar skrýtið) en svona aðdróttanir og pískur er glatað. En þetta voru auðvitað bara 14-15 ára stelpur þannig að ég var svosem ekkert að kippa mér upp við þetta. En það sem ég hef áhyggjur af eru auðvitað börnin mín. Seinna meir eiga þau eftir að skilja hvað fólk er að tala um og það verður ekki gaman fyrir þau að hlusta á það að fólk haldi að mamma þeirra hafi kannski haldið framhjá pabbanum eða að annað þeirra sé kannski ættleitt eða að þau geti bara alls ekki verið alsystkin og svo fram eftir götunum.

Annars gengur bara allt sinn vanagang. Við erum ánægð í vinnunni þrátt fyrir að undanfarnar tvær vikur hafi verið óvenjulega rólegar vegna veikinda, ferðalaga og þeirrar staðreyndar að það vantar börn í tvö pláss. En við höfum kannski bara þurft á þessari hvíld að halda. Það er alveg ótrúlegt hvað það munar miklu í vinnu um hvert barn sem kemur ekki. Ég er líka sjálf ekki búin að vera alveg við nógu góða heilsu. Er búin að vera með illt í hálsinum á þriðju viku en það er nú reyndar á undanhaldi núna. Við megum bara þakka Guði fyrir að okkar krakkar hafa ekki verið neitt að veikjast, því það gerir auðvitað okkar starf auðveldara ef þau eru í lagi.

Núna er ég líka búin að ákveða það að tíminn sé kominn til þess að gera eitthvað fyrir sjálfa mig. Er búin að lifa svo óhugnanlega sparsamt undanfarin 4 ár að maður hefur lítið sem ekkert getað látið eftir sjálfum sér. En núna er maður komin með sómasamleg laun og hefur loksins efni á því að gera eitthvað. Ég ætla að láta laga á mér hárið í desember. Ég tími nú ekki að fara í eitthvað make-over og láta klippa allt, en vil fá góða hármeðferð. Í raun þyrfti að krúnuraka mig held ég því hárið á mér hefur í kjölfar barneigna og ef til vill þessarar miklu grennslu, þynnst alveg ömurlega mikið. Mér liggur bara við gráti yfir þessu því að hárið á mér hefur alltaf verið eitthvað sem ég var ánægð með. Ég er með óvenjulegan hárlit, hef aldrei þurft að lita á mér hárið og almennt séð verið sátt við það eins og það er frá náttúrunnar hendi. En núna er það ömurlegt. Þunnt og slitið þrátt fyrir að það sé nýbúið að særa það. Ég setti í mig hnút um daginn og fékk bara áfall yfir því hvað hann var pínulítill, þetta er bara orðið ekki neitt sem ég er með á hausnum. En vonandi lagast þetta smám saman. Annað sem ég ætla mér að gera í næstu viku er eitthvað sem ég hef aldrei prófað áður: brasilískt vax! Jamm, ég hef alltaf verið dugleg með rakvélina en rakstri fylgja leiðindakvillar eins og inngróin hár og grófir stubbar. Þannig að ég ætla í allsherjar vaxmeðferð, fótleggir, handakrikar og bikiní-svæðið verður bara hreinsað. Ég fer í næstu viku því ég verð að láta hárin ná a.m.k. 2 mm í lengd til að þetta virki. Þannig að núna verður ekkert rakað í bili. Ef að ég (og Lazaro, hehe) verð ánægð með árangurinn þá er planið bara að láta þetta eftir sér mánaðarlega.

Ég er að komast á einhvern tímapunkt í mínu lífi, ég bara finn það. Kannski að yfirvofandi þrítugsafmæli í apríl hafi eitthvað með það að segja, ég veit það ekki, en ég er bara búin að fá mig fullsadda á því að komið sé fram við mig eins og barn. Ég ætla ekkert að nefna nein nöfn eða slíkt hér á blogginu, en það virðist vera ótrúlega mikið um það í mínu lífi að fólk (já, í fleirtölu) telji sig algjörlega getað vaðið yfir mig af því að ég er tiltölulega ljúf manneskja sem almennt séð forðast átök við fólk. Ég hugsa mig alltaf vandlega um áður en ég læt vaða hvort það borgi sig, og oftar en ekki kemst ég að þeirri niðurstöðu að það sé betra að halda friðinn heldur en að gera stórmál úr öllu sem betur mætti fara hjá öðrum. Ég er mjög lítið fyrir að segja fólki til (nema það biðji mig um ráð) og enn minna fyrir að gagnrýna fólk þegar ég er ekki sammála því sem það gerir. En það virðist sem þessir eiginleikar mínir geri það að verkum að margir sem eru frekari en ég telji það fullkomlega í lagi að vera stöðugt að segja mér fyrir verkum, siða mig til, gagnrýna það sem ég hef gert eða ekki gert. Mér finnst alveg með ólíkindum að friðelskandi manneskja eins og ég sjálf skuli endalaust þurfa að lenda í átökum við fólk sem hún hefur engan áhuga á að standa í stríðu við. Ég er bara orðin svo þreytt á óþarfa vandamálum að ég get ekki lýst því. Meirihlutinn af því stríði sem maður á í við annað fólk er nefnilega orsakað af heimatilbúnum vandamálum sem oftar en ekki snúast um smásálarlega og þýðingarlitla hluti. Þetta er allt svo tilgangslaust og ég vil ekki þurfa að eyða orku minni í svona hluti. Ég nýt þess að vera lifandi og ég er glöð manneskja frá náttúrunnar hendi og vil ekki láta draga mig niður. Sérstaklega vil ég ekki eiga í útistöðum við fólkið sem mér þykir vænst um og stendur mér næst. Það snertir manns innstu kviku og dregur úr manni lífsþróttinn. Ég er því búin að ákveða að ef að fólk er ósátt við mig þá má það bara eiga það við sjálft sig vegna þess að Nínos ætlar bara að fara að fókusera aðeins á sjálfa sig og gefa skít í það sem öðrum finnst.
Takk fyrir og eigið góðan dag.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives