Það er alltaf eitthvað nýttog núna eru nýjustu fréttir af okkur þær að sú spaka ákvörðun hefur verið tekin að mamma verður tekin með til Perú næsta sumar. Það hafa farið fram miklar vangaveltur um þetta og ég var farin að kvíða fyrir því að skilja hana eftir annað sumarið í röð, eins og hún er slæm af sínum veikindum. Ég held að við höfum verið heppin að það kom ekkert upp á núna síðastliðið sumar og ég er ekki viss um að maður njóti slíkrar gæfu ár eftir ár. Það væri hrikalegt ef eitthvað kæmi fyrir hana, eins og slæmt flogakast eða að hún dytti nú, á meðan við værum úti í Perú. Það er miklu öruggara að hún sé bara hjá okkur, því það eru alveg nógu góðir læknar þarna úti til að hugsa um hana ef eitthvað bjátar á. Við erum þá miklu öruggari að hafa hana hjá okkur heldur en eina hérna heima. Greyið mamma fékk varla tíma til að hugsa sig um því að ég spurði hvort hún vildi ekki koma með og svo var bara keyptur miði með það sama. Við erum semsagt búin að kaupa alla miðana svo nú er ekkert hægt að breyta um skoðun. Vorum líka heppin og fengum þá á betra verði heldur en síðasta ár. Það að mamma komi með skapar alveg nýja vídd í Perú-ferðina og ég er bara jákvæð yfir þessari ákvörðun. Mamma hefur líka ekki farið úr landi í nokkra áratugi þannig að það er kominn tími til að hún fái aðeins að njóta sín og upplifa eitthvað nýtt.
Svo er mikið búið að liggja á mér sú staðreynd að Úlfur Chaka er látinn. Hann var í Hagaskóla á sama tíma og ég, var nú ekki með mér í bekk en maður kannaðist við hann. Það er voðalega skrýtin tilfinning að hugsa til þess að nú sé hann bara dáinn, lífið búið rétt um þrítugt. Það er ekki laust við að maður velti því fyrir sér hver taki þessar ákvarðanir þarna uppi um það hverjir fái að lifa og hverjir ekki. Að minnsta kosti finnst mér þetta með einsdæmum ósanngjarnt og er svo innilega þakklát sjálf fyrir að vera á lífi. Lífið er alltof hverfult.
Mig dreymdi að það var risastór, ókunnugur hundur að reyna að ráðast á mig en hann náði mér ekki. Ég var að bera út blöð (eitt sinn blaðberi alltaf blaðberi) og átti að setja blað í rosalega stór, ljósblátt hús, meira að segja gardínurnar voru ljósbláar og styttur í gluggum. Við útidyrnar heyri ég óhugnanlega djúpt hundsgelt og sé hundinn fyrir innan alveg vitlausan. Hann var risastór og með þykkan feld, svartan, brúnan og gráan. Kvikindið kemst út um hurðina og hleypur á eftir mér geltandi alveg brjálaður og svo man ég ekki meir. Las í draumaráðningabókinni að þetta þýði að óvinir mínir séu að plotta gegn mér launráð...núna er ég með miklar áhyggjur af tvennu. Hverjir eru þessir óvinir og hvaða samsæri eru þeir að vinna gegn mér? Ein paranoid :)