The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Monday, September 24, 2007
 
Það nýjasta

Nú er runnin upp síðasta vikan í fyrsta mánuðinum okkar í daggæslunni og við erum bara alsæl með þetta allt saman. Við erum svona búin að vera að kynnast börnunum og koma smám saman á góðri rútínu þannig að þetta er farið að ganga nokkuð smurt fyrir sig. Það byrjaði síðasta barnið hjá okkur í dag í aðlögun og þá er allur hópurinn komin. Þau eru ótrúlega ólík þessi grey og gaman að sjá hvað persónuleikinn kemur strax fram hjá svona ungum börnum. Sum þeirra eru hændari að mér en önnur hrífast meira af Lazaro. Ég er svo ánægð með að við höfum kýlt á þetta. Þetta veitir manni líka svo mikið frelsi varðandi allt frí. Talandi um það þá er ég bókstaflega búin að vera að drepast úr heimþrá til Perú. Já, ég segi heimþrá. Er búin að hugsa um lítið annað en Perú síðan ég kom heim og mér finnst tilhugsunin um að þurfa að bíða í næstum því tvö ár til að fara aftur alveg hrikaleg. En L hefur verið alveg ákveðinn í því að við færum ekki út næsta sumar, það væri bara of dýrt og hann alveg búinn að fá nóg af fjölskyldunni í bili. En viti menn, honum hefur snúist hugur og mér var tilkynnt það í dag. Við erum semsagt búin að ákveða það að fara aftur til Perú næsta sumar!!!!!!!!!!!! JIBBÍ!!!!!!!! Ég get varla lýst því með orðum hvað ég er ógeðslega, hrikalega, frábærlega, ofsalega, rosalega hamingjusöm með þetta. Ég elska að vera í Perú og bókstaflega hoppaði hæð mína af gleði í dag þegar ákvörðunin var tekin. Málið er náttúrulega að þetta er svo ansi dýrt að fljúga en ef að eldri krakkarnir hjálpa til við að borga sína miða þá á þetta allt að reddast ef maður er duglegur að vinna. En þá verða líka allir draumar um að kaupa stærra húsnæði hér heima að bíða í bili. Við gerum okkur alveg grein fyrir því. But, what the hell... við viljum frekar komast til Perú. Ég er bara strax farin að telja niður, aðeins 8 mánuðir til stefnu. Jæja, þá vitið þið það.
Bless í bili,
Nínos.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives