The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, August 09, 2007
 
Nú er ég gift kona

og ég bidst afsokunar á thví ad vera ekki longu búin ad blogga um brúdkaupid. Málid er bara ad sídan thetta stód sem haest hefur eiginlega ekki verid neinn fridur hér hjá okkur. Nú Nonni og Rósa fraenka komu í heimsókn til okkar og thad var mér ómetanlegur studningur ad hafa einhvern úr minni fjolskyldu vidstaddan á thessum degi. En vid vildum líka ad thau fengju sem mest úr ferdinni thannig ad madur var á ferdalagi med theim eiginlega allan tímann sem thau voru hjá okkur. Svo eftir ad thau fóru thá er einhvern veginn eins og thad sé komin hraedsla í fjolskylduna hérna af thví ad nú forum vid brádum heim (thann 22.ágúst lendum vid í Kefló) og thad er ekki stundarfridur hérna. Thad hefur nú alltaf verid mikid um gestagang í íbúdinni en núna er thetta bara stanslaust frá morgni til kvolds, amman og systkinin og fraendfólk bara flaedir til okkar og er klukkutímum saman hjá okkur. Ef vid viljum komast frá thá kemur lidid bara med manni og madur verdur ad bjóda ollum út ad borda. THetta er búid af vera mjog skemmtilegt og taekifaeri til ad kynnast fólki vel en núna erum vid bara ordin dálítid threytt og viljum helst fá ad vera í fridi thessa fáu daga sem eftir eru.

Nú, brúdkaupsdagurinn var hinn 27.júlí og thad var ýmislegt sem gekk á thrátt fyrir ad madur sé í adalatridum sáttur. Elsta systir hans Lazaro sem býr í neastu íbúd vid okkur er sú sem er búin ad vera ad hjálpa okkur med allan undirbúning fyrir brúdkaupid. Hún brást nú alveg thegar hún tók upp á thví ad hverfa til Lima nokkrum dogum fyrir brúdkaupsdaginn og skildi okkur eftir med allt í lausu lofti. Reyndar hafdi hún góda afsokun thví dóttir hennar var ad eignast barn, en hún lét engann vita heldur hvarf bara eitt kvoldid. Frekar fúlt og fór alveg med taugakerfid á Lázaro. Svo á hann thrjár systur í Lima sem tilkynndu í kjolfarid allar ad thaer aetludu ekki ad koma í brúdkaupid. Thannig af 4 af 8 systkinum hans Lazaro maettu ekki og mér finnst thad helvíti hart thar sem vid giftum okkur hér í Perú sérstaklega til thess ad fjolskyldan hans gaeti upplifad thetta med okkur og svo voldum vid thessa dagsetningu af thví ad thjódhátídin er 28.júlí og oll vikan á undan frídagar, thannig ad allir gaetu nú maett. En svona er thetta, madur verdur bara ad vera thakklátur fyrir thá sem komu, svo ekki sé talad um thá sem ferdudust á milli heimsálfa til ad vera med okkur.

Út af thjódbúningnum var mér tilkynnt ad ég yrdi ad dansa La Marinera í brúdkaupinu. Thetta er hefdbundin dans sem er dansadur í thessum búning. Ég fékk áfall en Gladys fraenka hans Lazaro var á sínum tíma meistari í thessum dansi og tók mig í danstíma í nokkur skiptid. Vandamálid var bara ad Lazaro hafdi lítinn sem engann áhuga á thví ad aefa thetta med mér thannig ad ég var í taugastressi út af thessum andsk... dansi.

Nú vardandi thjódbúninginn minn thá munadi minnstu ad thad yrdi algjort fíaskó. Fraenka hans Lazaro sem heitir Gladys og er sérfraedingur í svona fotum býdst til ad fara med mér thar sem verid er ad sauma thetta. Kemur thá í ljós ad thad er verid ad svindla á mér og útsaumurinn er allur úr einhverjum ullarthraedi sem trosnar med tímanum og litar út frá sér vid thvott. Fyrir utan thad var pilsid allt vitlaust saumad og alltof thungt. Thettadi endadi í meiriháttar drama thar sem Lazaro var maettur á stadinn gargandi, bródir hans med logreglumerkid sitt á lofti, systir hans í aediskasti og Gladys fraenka alveg brjálud. Vid fengum allt endurgreitt og ég var semsagt í theim óskemmtilegu sporum ad thad var vika í brúdkaupid mitt og ég fatalaus!!!

Nú, thetta var hraedilegt alveg og ég get ekki líst thví hvernig mér leid. Gladys sagdist viss um ad thad vaeri haegt ad leysa thetta og vid fórum til Monsefú sem er thorpid thadan sem thessi búningur kemur. Thar tók vid margra klukkutíma daudaleit ad saumamanneskjum sem kunna sitt fag og gaetu klárad thetta á viku. Thetta er náttúrulega mikil vinna og útsaumur sem venjulega er ekki gerdur á svona stuttum tíma. En thetta hafdist á endanum og ég fékk fotin í hendurnar thann 26.júlí, á sídustu stundu og sem betur fer thurfti ekkert ad laga.

En sem daemi um annad klúdur thá var ég búin ad panta mér tíma í hárgreidslu, fót og handsnyrtingur og fordun um morguninn 27.júlí. NOkkrum dogum fyrir brúdkaupid fer fraenka hans Lazaro ad blanda sér inn í málin og segist vera med fráaera manneskja sem komi heim og geri thetta fyrir miklu minni pening og thá thurfi ég ekkert ad fara út úr húsi og svo framvegis. Mér leist ekki vel á thessa hugmynd en í thetta skiptid brást Lazaro mér og studdi fraenku sína svoleidis í thessu, thetta vaeri svo miklu ódýrara og snidugra ad ég gaf mig á endanum og sam-ykkti thetta. Thad átti ad maeta til mín manneskja kl.10 um morguninn til ad gera hand og fótsnyrtinguna og svo onnur kl.13. til ad laga á mér hárid og mála mig. Nú, dagurinn stóri rennur upp og kl. er 10 og engin kemur. Svo er hún 11 og enginn kemur. Ég var ordin alveg brjálud af vonsku og stressi thegar kl.11.30 maetir fraenka hans Lazaro med tvo furdufugla med sér og thau hin sallarólegustu. Ég var ekki svo róleg thví vid áttum ad maeta í rádhúsid til ad gifta okkur kl.15.00. Gladys var tharna med einhverju stelpuskjátu sem vissi ekkert hvad hún var ad gera og einhverja karlkonu sem var stífmáladur/málud. THetta var greinilega karlmadur en í kvenmannsfotum, máladur, med kvenhárgreidslu, langar neglur med svortum sorgarrondum. Ég og Rósa fraenka horfdum bara á hvor adra í sjokki. Thegar tharna var komid hefdi ég átt ad segja nú er nóg komid og henda thessu pakki út en Lazaro vegna og út af fraenku hans sem var svo oll af vilja gerd til thess ad hjálpa, thá gerdi ég thad ekki. Afleidingarnar urdu thaer ad stelpan naglalakkadi mig og rugladist hvad eftir annad thannig ad hún var alltaf ad thurrka ad mér naglalakkid og byrja upp á nýtt. Thetta var nú oll fót-og handsnyrtingin sem ég fékk. Sídan tók ekki betra vid thegar kynskiptingurinn eda hvad thetta nú var, tekur upp hárbursta fullan af svortum hárum og hárthurrku og segist aetla ad byrja á thví ad rennslétta á mér hárid og greida thad sídan upp!!! Thad var ekki einu sinni verid ad spyrja mig hvernig ég vildi láta greida mér, hann aetladi bara ad ákveda thad! Ég sagdist nú bara alls ekki hafa áhuga á thess háttar greidslu og lýsti thví fyrir honum og Gladys ad ég yrì med rósa-kórónu og vildi hafa hárid slegid nema bara tekid upp rétt ad framan svo ad thad saegist í eyrnalokkana mína. Hann lét thad alveg finnast ad honum fannst thetta ekki flott hugmynd og svo hamadist hann í hárinu á mér (med minni eigin greidu reyndar) og setti thad upp og tók thad nidur til skiptist svona hundrad sinnum thar til ad Gladys sá hvad ég var ordin reid og hún eiginlega endadi á ad greida mér. Fyrir utan thetta thá stakk hann greidunni minn alltaf í hárid á sjálfum sér thess á milli sem hann notadi hana. Lokanidurstadan var sú ad hárid á mér var svona saemilegt en thad var búid ad greida úr mér mest allar krullurnar mínar og eins og Rósa sagdi vid mig thá hefdi ég getad greitt mér miklu betur bara sjálf. Ég tek thad fram ad Lazaro var í sjokki yfir thessu og daudsá eftir ad hafa tekid fram fyrir hendurnar á mér vardandi allt thetta. Thegar svo fríkid tók fram snyrtidótid sitt med skaerfjólubláum og bleikum augnskugga, graenbláum kinnalit og thar ad auki var thetta allt ógedslega útklesst og notad af honum sjálfum setti ég hnefann í bordid og sagdi ad Rósa myndi mála mig og lidinu var hent út. Hann vard virkilega sár ad fá ekki ad meika mig en hefdi ég leyft honum thad hefdi ég maett eins og trúdur í mitt eigid brúdkaup. KOnurnar hérna í Perú mála sig reyndar svona, alveg hrikalega illa og med miklum ónáttúrulegum litum.

Svo fórum vid í rádhúsid og giftingin fór fram. Ég gat ekki hugsad mér ad hada Aevar og Maríu vidstodd thví thau eru bara of lítil og hefdu rústad thessu. Thau voru thví skilin eftir heima med systkinum sínum. Vidstaddir voru Nonni og Rósa, Elba med Magnúsi og daetrunum, tengdamamma mín, Gladys fraenka, og Pedro bródir Lazaro med dóttur sinni. THad var kvendómari sem gifti okkur og hún var mjog hrifin af klaednadi mínum. Athofnin var látlaus og falleg, ég hef ekki yfir neinu ad kvarta, nema kannski ad dómarinn hefdi mátt aefa sig adeins ad bera fram nafnid mitt, Aevarsdóttir Kvaran kom mjog skrautlega út vaegast sagt, en mér fannst thad nú bara fyndid. Ég var afskaplega róleg og hamingjusom en Lazaro var svo stressadur ad hann skalf thegar hann tók eitt sinn í hendina á mér. Thad eina sem var pínulítid áfall var thegar dómarinn sagdi ad nú aettum vid ad segja nokkur ord fyrir framan alla sem kaemu beint frá hjartanu. Úpps, madur var ekki búin ad undirbúa neitt og ég fékk skyndilegan hnút í magann. Lazaro taladi fyrst og sagdist elska mig og eitthvad meira sem ég man ekki, og svo kom ad mér og ég man ekkert hvad ég sagdi en held ad ég hafi bara komist vel frá thessu. Eins gott ad ég er búin ad laera ad tala spaensku. Annars var thetta allt saman tekid upp ad kvikmyndatokumanni og vid eigum thetta á disk thannig ad madur getur rifjad thetta upp seinna.

Svo fórum vid í smá bílferd og létum taka myndir af okkur í gardi sem er voda fallegur og fórum svo heim tvhí veislan byrjadi ekki fyrr en kl.18. THegar vid komum heim voru Rósa og Nonni búin ad fara í búd og kaupa fullt af gúmmeladi og thad var aedislegt thví ég fann hvad madur var svangur thegar spennufallid eftir athofnina gekk yfir mann. Ég er theim innilega thakklát. Ef thau hefdu ekki verid hjá mér thennan dag er ég viss um ad hann hefdi verid ónýtur. Thau reddudu svo morgu fyrir okkur.

Veislan gekk svo bara vel fyrir sig, bordin og salurinn voru fallega skreytt í kremudu og gylltu og tertan var mjog falleg og alveg í somu litunum. Thad var fordrykkur sem ég veit ekkert hvad heitir og svo var byrjad á ad dansa brúdarvalsinn. Fyrst ég og Lazaro og svo thurftum vid ad dansa vid alla í fjolskyldunni, ég vid alla karlmennina í goggunarrod, fyrst vid Nonna thví hann var svona eins og pabbi minn tharna og svo vid braedur Lazaro í aldurrod og svo framvegis, og eins gerdi Lazaro thad sama vid kvenfólkid. Hljómsveitin var bara gód og ég og Lazaro tókum baedi lagid tharna og ég song á spaensku vid mikin fognud vidstaddra. Svo kom ad thví sem ég hafdì kvidid mest fyrir og thad var La Marinera en thetta tókst svona nokkurn veginn áfallalaust og ég dansadi berfaett af mikilli innlifun eins og innfaedd bara. En thad er mjog fyndid ad fólk er afskaplega óstundvíst hérna og maetti seint en thad var bara vel maett, vid budum 60 manns og thad maettu a.m.k. 45 held ég, ef ekki fleiri. Thad var aftur á móti lítid um brúdargjafir, fengum tvo tesett, einn lampa og eitt sett af skálum. Fyrir utan ad tengdó gaf mér hálsmen og eyrnalokka og Rósa og Nonni ásamt fleirum frá Íslandi gáfu okkur fé til ad kaupa vatnstank í húsid sem hitar upp vatnid.

Thetta var bara ofsalega fínt í adalatridum. Stóru krakkarnir voru búin ad lofa thví ad passa Aevar og Maríu í veislunni en ég var nú vodalega mikid med thau í fanginu. Svo var ég búin í plana í samrádi vid Rósu og Nonna ad koma Lazaro á óvart. Thegar veislan var búin hélt hann ad vid faerum heim en ég var búin ad panta fyrir okkur brúdarsvítuna á Costa del Sol hótelinu til ad eyda brúdkaupsnóttinni. Rósa og Nonni possudu bornin fyrir okkur. Thetta var alveg frábaer endir á deginum, thad beid eftir okkur kampavín og vid fórum med thad freydibad í nuddpottinn á herberginu og slokudum á eftir erfidan dag. Sídan var stundad besta kynlíf sem vid hofum átt í 3 ár (sídan oll bornin komu, hehe) og svo lagst í sjónvarpid í kingsize rúminu med saelgaeti og god fram undir morgunn. Hreint út sagt aedi! Svo fórum vid um morguninn í morgunmat, sofnudum aftur og thegar vid voknudum í eftirmiddaginn var thad sólbad og sauna og svo heim.

Svona var thetta nú í adalatridum thótt audvitad skrifi ég ekki allt saman. Sumt hefdi mátt fara betur en thad sem mestu skiptir er ad vid erum gift og hamingjusom med thad. Ég er búin ad vera voda glod hérna í Perú en ég er líka ánaegd med thad ad núna hlakka ég til ad koma heim. Ég sakna ykkar allra og sendi ástarkvedjur og thakkir fyrir allar kvedjurnar sem ég fékk.

Bless í bili,
Nínos.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives