The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Monday, July 09, 2007
 
Stori dagurinn nalgast

og madur er bara farin ad vera spenntur. Vardandi brudkaupid tha er thetta allt saman ad smella saman. Eg verd i Peru-thjodbuning sem verdur bradum tilbuinn. THetta er hvit blussa sem er med miklum utsaumi, svart pils sem er allt i pliseringum og svona halfgert silkiefni og hvitt undirpils sem er lika utsaumad eins og blussan. Svo er raudur bordi i mittid. Hefdbundin klaednadur eins og thessi er rosalega fallegur finnst mer en madur a i raun ad vera berfaettur. Eg hugsa ad eg fai mer bara fallega sandala thvi eg get varla verid berfaett. Svo verd eg med blom i harinu og eg held ad eg aetli ad vera med thad slegid. Elba systir hans Lazaro er buin ad hjalpa mer med thetta og hun og Maggi aetla ad gefa okkur brudartertuna i gjof. Vardandi faedingarvottordid hans Lazaro tha fekk mamma hans thad ekki afhent. Henni var sagt ad thad hefdi brunnid til kaldra kola og til thess ad lata skra sig aftur tha thyrfti hann ad koma sjalfur! Thannig ad hun for til einskis thessa ferd og Lazaro vard ad fara sjalfur. En thetta er nu klappad og klart og oll pappirsvinna buin. Giftumst 27.juli. Svo thurfti lika ad setja tilkynningu i dagblad (thad er skylda) og thad er buid lika.

I dag forum vid og borgudum fyrir stadinn thar sem veislan verdur, hann er bara mjog huggulegur (serstaklega a maelikvarda heimamanna, en veitingastadir og heimili her eru langt fyrir nedan tha standarda sem vid gerum vardandi utlit og hreinlaeti). Serstaklega var mer mikilvaegt ad thad vaeru almennileg salerni en klosettin her eru alveg hrikalega ogedsleg a flestum stodum, baedi heima hja folki og annars stadar. En thetta er bara rosalega fallegur stadur og thad goda er ad thad er allt innifalid i verdinu, maturinn og skreytingar og afengi, veislustjorn og tonlist, en Lazaro aetlar ekki ad thiggja tonlistina thvi hann vill velja hlomsveit sjalfur. Thannig ad thetta er allt saman ad smella saman. Svo er eg lika ordin svaka spennt ad fa Rosu fraenku i heimsokn og syna henni allt herna. Vonandi verdur thetta ekki of mikid menningarafall fyrir hana samt.

Vardandi ad setja inn myndir tha er eg ekki mjog taeknivaedd herna og er a netinu a svona netkaffi og eg veit ekkert hvernig madur eda hvort madur getur sett inn myndir herna. Held thetta verdi ad bida thar til eg kem heim.

Nu, eg er buin ad kaupa mer smavegis af fotum og eitthvad lika fyrir Aevar og Mariu en buxur a mig get eg hvergi fundid. Thad eru allar konur og stelpur her i nidthrongum gallabuxum sem er throngar nidur fyrir hne og svo utvidar nedst. Thar ad auki eru thaer flestar med einhverjum blomaskreytingum a. Eg er buin ad profa svona buxur og thetta fer mer hryllilega!!! Thad endadi med thvi ad eg er komin i gallabuxurnar hans Lazaro og eg var i afalli yfir thvi ad eg kaemist i thaer! Hann notar buxur numer 32-34. En thaer eru auvitad throngar a mer en vidar a honum, en snidid er ekki svona glatad. En eg aetla ad bida med mikil innkaup thar til brudkaupid er alveg fra, svo ad madur eydi nu ekki um efni fram.

Eg er buin af leika a alls oddi herna. Forum i party um daginn til skolafelaga og aeskuvinar Lazaro sem eg hafdi aldrei hitt adur og eg song og dansadi fyrir alla og Lazaro spiladi a gitarinn. Thad var svakalega gaman og eg er med myndir af thessu. Systir hans Lazaro, sem er einhleyp og byr i naestu ibud vid okkur, passadi Mariu en Aevar kom med okkur og hegdadi ser mjog vel. Maria svaf alla nottina hja fraenku sinni og thad var svolitid skrytid fyrir mig, en gekk allt vel.

Thad er svo fyndid hvernig hlutirnir eru og hvad mann finnst stundum folk vera eins alls stadar, hvort sem thad heitir 'Island eda Peru. A odrum stundum finnst manni hlutirnir ganga allt odruvisi fyrir sig herna. Fjolskyldan hans Lazaro er til daemis algjor brandari. Eg hef aldrei fattad Sudur-Ameriskar sapuoperur, thad er allt svo ofleikid, dramatiskt og bara yfirdrifid og oraunverulegt. Nuna fatta eg thetta hins vegar fullkomlega thvi ad fjolskyldan hans Lazaro er bara ein sapuopera ut i gegn. Skapofsinn, dramatikin og tilfinningahitinn er thvilikur ad madur hefur sjaldan sed annad eins og kem eg tho ur fjolskyldu sem er landlaeg fyrir gedfrekju. Thad eru allir ad sludra um alla hina i fjolskyldunni og allir svaka osattir vid alla adra en samt eru allir i raun godir vinir og ekkert virdist rista mjog djupt. Eg hef ordid vitni ad thvilikum ordarimmum og atokum ad eg bara var stjorf og hugsadi med mer, thessir eiga ekki eftir ad talast vid naestu arin, en svo er allt fallid i ro adur en madur veit af. Uff, thessir sudur-amerikubuar eru algjort aedi sko.

Vardandi atakid mitt tha hefur nu ekki gengid neitt svakalega vel ad halda mig vid thad enda svo marg tnytt og gott ad profa, en eg hef ekki fitnad neitt heldur stadid i stad.
Jaeja,
skrifa meira naest.
Kvedjur fra Peru.
Nina.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives