Ferdasagan heldur áframLoksins kemst ég aftur í ad blogga. Málid er ad thad hefur ýmislegt gerst hérna óvaent sem hefur valdid thví ad ég hef ekki getad komist í samband í thetta langan tíma.
Í fyrsta lagi thá vard allt vitlaust hér thegar stód til ad mamma krakkana kaemi og yrdi hérna hjá okkur í Chiclayo. Mommu hans Lazaro fannst thetta algjorlega óvideigandi og sagdist ekki muna eiga samskipti vid okkur ef thessi kona kaemi. Svo voru krakkarnir líka hundóánaegd hérna og vildu oll fara til Lima. Vid bara gáfumst upp og leyfdum theim ad fara og thau fóru fyrir 3 vikum med fraenku hans Lazaro í rútu. Thau búa ekki heima hjá mommu sinni thví ad thad hverfi er svo haettulegt, heldur eru thau oll (og mamman) hjá fóstursystur theirra og manninum hennar en thau voru ad eignast lítid barn. Krakkarnir eru í sambandi vid okkur og eru alsael og Lazaro thurfti ad neyda thau til thess ad koma aftur í júlí fyrir brúdkaupid thví helst vilja thau vera í allt sumar í Lima. Ég skil thau svosem eftir 3 ára fjarveru frá mommu sinni. Thetta er medal annars ástaeda thess ad Aevar er búinn ad vera svona erfidur, hann saknar svo Kelly. En hann er núna ordinn miklu betri og leikur sér mikid einn greyid litla med bílana sína.
Svo gerdist thad ad oll pappírsvinna vardandi brúdkaupid hefur verid martrod frá upphafi til enda. Okkur var sagt hér í Chiclayo ad thad thyrfti ad stimpla oll gogn frá Íslandi hjá konsúli Íslands í Lima! Okkur var sagt ad thad vaeri nóg ad Lazaro faeri thangad. Hann ferdadist thví í 12 klst. rútuferd til Lima. Konsúll fyrir Ísland thar er einhver lýtalaeknir frá Perú og hann sagdist ekki stimpla neitt nema ad ég vaeri vidstodd líka thar sem thad vaeri ég sem vaeri Íslendingurinn!!! Ég thurfti thví ad ferdast ein med baedi bornin í rútu í 12 klst. til Lima. Ég gat ekki hugsad mér ad skilja thau eftir hérna í Chiclayo, enda allir ad vinna hér og ég vissi ekkert hvad ég yrdi lengi í burtu. Í Lima vorum vid í tvo daga hjá Lidiu systur hans Lazaro og vid nádum ad leysa thessi pappírsmál, thannig ad núna er allt ad verda tilbúid. Ég vona ad ég thurfi aldrei ad ferdast svona aftur med svona lítil born. Thau voru voda gód og sváfu mest allan tímann (enda um nótt) en ég kastadi upp og var ad drepast úr bílveiki fyrir utan thad ad vera algjorlega kramin af thví ad ég hélt á Maríu alla leidina. Svo fórum vid aftur heim til Chiclayo med Lazaro.
Annad er ad Lazaro hefur thurft ad skilja mig eftir heilmikid heima med bornin og fara út med systur sinni til thess ad ganga frá thessum brúdkaupsmálum og svo pappírsvinnu er vardar íbúdina, en thad er allt ótrúlega flókid ferli sem núna er lokid og vid erum skrádir réttmaetir eigendur íbúdarinnar. Svo kom í ljós ad fyrir brúdkaupìd vildu their fá nýtt eintak af faedingarvottordi Lazaro sem einunigs er haegt af fá í heimabae hans Ancash, thar sem hann faeddist sem er í 6 klst. rútufjarlegd frá okkur. Úr vard ad mamma hans baudst til ad fara og redda thessu og hún fór í gaerkvoldi og ég er med algjort samviskubit yfir thví ad senda 82 ára gamla konu í svona ferdalag, thó hún sé rosalega hress og allt thad.
Nú, ég er óskop litid búid ad gera hérna nema ad passa Maríu og Aevar og kaupa eitthvad smálítìd handa mommu minni. Thad er erfitt ad fara út ad versla med tvo lítil born og madur sér alltaf betur og betur hvad Kelly var manni mikil hjálparhella, núna thegar hún er ekki hjá okkur. Ég sakna krakkana líka ógedslega mikid. Í fyrradag gerdist líka thad ad Ernestína systir hans Lazaro kemur hlaupandi og segir ad mamma krakkana hafi hringt heim til mommu hans Lazaro (vid erum nefnilega ekki med síma) og talad vid fraenda hans thar og hann hafi sagt ad um sé ad raeda slaemar fréttir og ad vid verdum ad hringja strax til Lima. Ég fékk svo mikid áfall ad thadd er eiginlega ekki haegt ad lýsa thví med ordum. Ég var ad borda jógúrt og ég bara fann hvernig thad snerist vid í maganum á mér og ég hélt ad ég myndi kasta upp. Ég sá fyrir mér ad theim hefdi verid raent, ad einhver hefdi stungid José med hnífi, ad Charo hefdi verid naudgad og vaeri nú ófrísk og bara allt thad hrikalegasta sem mér datt í hug. Svo kom í ljós ad thetta var bara algjor misskilningur og ekkert ad annad en ad thau vildu fá ad vita hvort ad vid hefdum komist heilu og holdnu til Chiclayo. Üff, hvad ég var reid. En svona er thetta hérna, fólkid er ótrúlega dramatískt og madur verdur ad taka hlutunum med fyrirvara.
Ég er búin ad vera ad velta fyrir mér í hverju ég eigi ad giftast en thad er ekki nema mánudur í brúdkaupid!!! Vid munum giftast thann 27.júlí. Ég vil ekki svoa hefdbundin brúdarkjól med slori og látum enda finnst mér ég vera of mikil maddama med 5 krakka til thess. Draumurinn var ad gifta sig í íslenska thjódbúningnum en hann var mér alltod dýr. Svo er hún Elba systir hans Lazaro ad hjálpa mér núna og thad virdist vera ad ég láti sérsauma á mig hefdbundin Perú klaednad. Er mjog spennt fyrir thessu.
Perú er bara alveg frábaert og ég er alveg midur mín yfir thví hvad tíminn lídur hratt. Lazaro er med heimthrá til Íslands en thad er kannski vegna thess ad núna hvílir svo mikil vinna á honum. Múhahahaha!!! Payback time!!!
Thad eina sem ég get kvartad yfir er ad ég sakna stóru krakkana og vid Lazaro getum ekki notid lífsins alveg nógu vel med Aevar og Maríu í eftirdragi. Ad minnsta kosti ekki til thess ad versla og svoleidis. En thad horfir fram á betri tíma thar sem Ernestina og Soila, systur Lazaro eru búnar ad ákveda ad passa fyrir okkur thegar thaer eiga frí frá vinnu og thá getum vid farid og gert thad sem vid viljum. Vid erum búin ad prófa thetta einu sinnu og mér til mikillar furdu thá fóru baedi Aevar og María alsael í taxa med Soilu og syni hennar og voru í 3 tíma heima hjá theim ad leika vid stóru fraendur sína. Thetta var bara ekkert mál. Aevar er líka bara alveg ótrúlegur, honum er ad fara svo fram í talinu og bara fullt af nýjum ordum komin á spaensku. Og stórfréttir af Maríu eru thaer ad hún er haett á brjósti fyrir fullt og allt!!! Hallelúja!!! Vid tókum á thessu eins og talad hafdi verid um og hún svaf med pabba sínum í 3 naetur og ég med Aevar í odru herbergi. Svi var thetta bara búid og hún reynir ekki einu sinni ad fá ad drekka hjá mér og sefur nánast undantekningalaust út alla nóttina. Thetta er bara allt annad líf.
Ég sakna ykkar allra og mun reyna mitt besta til ad blogga oftar.
Bestu kvedjur frá Perú.