The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Wednesday, June 06, 2007
 
Bloggad frá Perú!!!

Thá kemst ég loksins í bloggid eftir vidburdaríka daga hér í Perú. VId erum semsagt oll lent heilu og holdnu.

Flugid til New York gekk ágaetlega en Aevar minn átti svolítid erfitt med sig ad sitja kyrr í 6 klukkutíma thannig ad madur var í fullri vinnu vid ad halda honum uppteknum. María var audveldari. Mér til furdu gekk allt rosa vel í New York en vid (eda réttara sagt Lazaro) hefur alltaf lent í veseni thar. Kannski íslensku vegabréfin hafi haft eitthvad ad segja...

Vid lentum í Lima (hofudborginni) á réttum tíma, eldsnemma um morguninn. Bornin sváfu allt thad flug en ég og Lazaro nánast ekkert thví vid sátum oll kramin undir Maríu og Aevari. Madur gat varla hreyft sig á eftir. Mamma krakkana tók á móti okkur og núna thekki ég hana. Vid fórum heim til hennar med allan farangur thví ad Lidia systir hans Lazaro sem býr í Lima kom ekki á flugvollinn eins og talad hafdi verid um. Í ollu stressinu gleymdum vid thví ad kaupa flugmida til Chiclayo eins og planid hafdi verid ad gera og fljúga svo um kvoldid. Svo fórum vid med leigubíl frá húsinu hennar Onnu til ad heimsaekja fósturdóttur hennar og Lazaro sem heitir Kati. Hún er nefnilega nýbúin ad eignast barn. THetta var miklu lengra í burtu en vid héldum (enda er Lima stórborg) og ekki beint thad sem madur thurfti á ad halda eftir svona langt flug. Enda vorum vid 9 manns í 5 manna bíl, eins og gengur og gerist í Perú. Thad ágaett ad sjá hana og allt thad en mér til mikillar skelfingar thá fann ég ekki veskid mitt thegar vid vorum komin á stadinn en í thví voru oll vegabréfin okkar og flugmidar. Ég sagdi ekki neitt vid neinn en var í sjokki inní mér thví ég var alveg viss um ad ég hefdi tekid thetta med mér í leigubílinn en ekki skilid thad eftir heima hjá Onnu med hinum farangrinum.

Eftir heila eilífd í thessari heimsókn fórum vid á flugvollin med taxa til ad kaupa mida. Thá upphófst algjor martrod í marga klukkutíma. Solumennirnir sáu mig og fóru ad reyna ad rugla okkur í ríminu, tofdu heil óskop, sogdu ad flug fyrir okkur oll myndi kosta svo og svo mikid en sídan thegar vid vildum borga var verdid ordid tvofalt!!! Lazaro var nú ordinn threyttur á taugum eftir ferdalagid og enga hvíld og hann sprakk í loft upp tharna og ód út í kasti. Svo fór hann á annan stad og vid skilin eftir úti med leigubílstjóra og thar fékk hann mida til CHiclayo á edlilegu verdi en ekki fyrr en naesta kvold! Vid fórum svo aftur heim til Onnu og vissum ekkert hvad vid áttum ad gera thví ekki gátum vid verid thar um nóttina, hún leigir herbergi hjá odru fólki og thetta er ekki gott húsnaedi fyrir lítil born. Eftir rosalegar símhringingar um alla borg nádum vid í systur Lazaro og hún fékk sjokk, hafdi misskilid tímasetningar og sagdi okkur ad koma strax til hennar. Leigubílstjórinn villtist á leidinni og by the way thá fórum vid (og mamma krakkana líka) í 5 manna station bíl med 12 ferdatoskur og tvíburakerru bundnar ofan á bílnum!!! THetta var rosalegt. En vid komumst lifandi á leidarenda og thad var algjorlega yndislegt ad komast heim til Lidiu og borda, slaka á og sofna svo.

Vid áttum sídan gódan dag hjá henni og manninum hennar og tvíburadaetrum theirra sem eru 12 ára naesta dag eda thar til flogid var til Chiclayo um kvoldid. Mamma Lazaro og elsta systirin Ernestina, tóku á móti okkur og fóru med okkur í nýju íbúdina okkar. Ég vissi ekkert vid hverju var ad búast en vá!!! Thetta er aedislegt. Thrjú svefnherbergi, tvo salerni, rúmgód stofa og risaeldhús eins og mig hefur alltaf dreymt um ad eiga med nógu plássi fyrir bordkrók.

Thad eina sem var komid voru rúmin og vid sváfum vaert í theim til naesta dags. Thá var Lazaro svo aestur ad klára ad gera oll innkaup strax ad thessir undanfornu dagar hafa bara farid í thad. Mér til mikillar armaedu er ekki haegt ad nota tvíburakerruna nema á adalgotunum thví allar gangstéttirnar eru svo throngar og svo mikid af holum í theim. En vid erum semsagt núna búin ad kaupa sjónvarp, graejur og mublu undir thad. Eldavél og ísskáp og bordstofubord og stóla og bord í eldhúsid. Sem betur fer tók ég nóg af dóti med mér thví thad hefdi verid rosalegt ad thurfa ad kaupa thad allt hérna.

Ég er svo ánaegd ad vera búin ad hitta alla fjolskylduna hans Lazaro og er bara svo hamingjusom hérna ad ég kvídi fyrir thví ad snúa aftur til Íslands. Ég vildi óska thess ad ég gaeti átt heima hér í Perú forever! Fólkid er svo opid og med mikla kímnigáfu og mér finnst ég falla eins og flís vid rass ad ollu leyti hér nema útlitslega séd. Ég vek audvitad mikla athygli hér og thad er starad alveg rosalega á mig. En thad er allt í lagi, ég bara fíla thad. Svo var audvitad familían í sjokki yfir thví hvad ég hafdi grennst mikid en sídast thegar ég vigtadi mig á Íslandi voru 25 kíló farin.

Jaeja, ég get ekki bloggad meir í bili en bid ad heila ykkur ollum, og mamma ef thú lest thetta thá gleymdi ég ad skrifa í póstinn til thín ad Lazaro sendir thér ástarkvedju.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives