Jæja, loks fréttir.Þá er loksins að maður kemst í það að blogga. Það einhvern veginn flýgur frá manni tíminn og áður en maður veit af eru bara liðnar vikur síðan maður skrifaði eitthvað síðast. Það hefur ýmislegt gengið á eins og til dæmis ælupest sem ég hélt að myndi ganga af mér dauðri!!! Sem betur fer vorum það bara við María sem fengum þetta og hún þetta litla skinn, kastaði upp í heilt kvöld fram á nótt. Guð hvað ég vorkenndi henni hryllilega. En hún var samt fljót að jafna sig þótt ekki hefði matarlystin verið mikil í tvo daga á eftir. En ég varð ógeðslega veik og miklu verri en hún. Ég kastaði öllu upp, meira segja ef ég drakk sopa af vatni og hef ekki orðið svona veik síðan ég var barn. Það versta er að ég smitaði síðan mömmu af þessumm viðbjóði og hún mátti nú varla við meiri veikindum. Úff hvað ég er fegin að þetta er búið. Það er ekkert ógeðslegra en að vera með ógleði og kasta upp. Ekkert bara, eða það finnst manni alla veganna þegar maður er með ælupest.
Ég átti afmæli þann 14.apríl og náði þeim merkilega áfanga að verða 29 ára gömul. Ég verð að viðurkenna að þetta er dálítið skrýtið, bara eitt ár enn og maður verður þrítugur! Mér fannst það alltaf vera svo gamalt eitthvað. Það er greinilega ekki hægt að halda því fram að maður sé unglingur á efri unglingsárum lengur. Óneibb. Svo er nefnilega annað sem fléttast inn í þessar aldurshugleiðingar mínar og það er grennslan. Ég er búin að losna við 20 kíló núna og er mjög ánægð með það. En það er samt svolítið skrýtin tilfinning fyrir þann sem hefur alla ævi verið feitur að vera allt í einu farinn að grennast og breytast í útliti. Ég er auðvitað enn þá í þyngri kantinum en ekki nærri því eins og ég var, maður er ekki í eins mikilli þungavigt og áður. Þetta hefur valdið því að ég hef grennst frekar mikið í andlitinu og það er komnar hrukkur í kringum augun og munninn og á ennið sem ég get svarið að voru ekki þarna í október síðastliðnum þegar ég byrjaði í grennslunni. Þetta er eflaust alveg eðlilegt, því þrútnari sem maður er í framan, því færri hrukkur sjást, en ég á samt svolítið erfitt með að gúttera þetta. Þegar ég sé mig í spegli þá finnst mér ég oft vera að horfa á allt aðra manneskju, en ekki mig sjálfa. Ég sé grennri en greinilega
eldri konu þarna. Svo er svo einkennilegt að ég veit að ég hef grennst því ég sé það á vigtinni og á fötunum, en ég bara sé þetta ekki í speglinum, nema bara á andlitinu. Líkamsímyndin er alveg í rugli hjá mér og ég hef tapað áttum varðandi það hvernig ég raunverulega lít út. Ef ég ber mig saman við aðrar konur sem ég sé úti á götu sem eru í þyngra lagi, þá get ég engann veginn sagt til um hvor er feitari, ég eða þær. Ég bara átta mig ekki á því hvernig líkaminn á mér er orðinn. Er samt ekkert óánægð, bara hissa. Það hafði aldrei hvarflað að mér að það gæti verið svona skrýtin upplifun að grennast. En þetta er örugglega af því að ég hef aldrei verið grönn, þetta er allt svo nýtt fyrir mér (þótt ekki sé ég grönn enn þá).
En ég átti frábæran afmælisdag, frænka mín passaði börnin og ég og Lazaro fórum í Laugar í ræktina og í Baðstofuna á eftir. Það var æðislegt dekur. Fórum í hvíldarherbergið og slökuðum á, í heita pottinn, olíusturtuna, gufuna, fótabað og svo veitingastaðinn þar sem var borðað vel. Yndislegt að geta slakað svona á í friði bara við tvö og ég hefði ekki getað hugsað mér betri afmælisdag. Það er einmitt svona sem maður þarf á að halda, að komast aðeins í nokkra klukkutíma í burtu frá öllu liðinu heima og eiga rómantíska stund bara við tvö saman.
Nú, það eru allir komnir með ný, íslensk vegabréf! Þetta eru nú bestu fréttirnar sem ég hef fengið lengi. Ég fékk mér meira að segja nýtt vegabréf sjálf vegna þess að mitt gamla lenti fyrir klaufaskap í þvottavélinni og mér var ráðlagt að taka ekki sénsinn á að ferðast með það því rafröndin á því gæti verið ónýt. Þessar myndir sem þeir taka af fólki í vegabréfin þarna á lögreglustöðinni eru
hræðilegar !!! Maður er einhvern veginn gulur á litinn og baugóttur. Meira að segja Ævar og María líta hörmulega út á sínum vegabréfum. Annars finnst mér það mjög krúttlegt að svona lítil kríli séu með sín eigin vegabréf. Það var líka ekki skemmtilegasta lífsreynslan að láta taka af þeim myndir. María horfði alltaf upp í loftið og Ævar fékk móðursýkiskast og vildi komast út strax. Úff, ég er fegin að þessu er lokið.
Við erum líka byrjuð að fara í sprautur fyrir Perú-ferðina, það er að segja, ég, Ævar og María. Ég hélt að hinir krakkarnir vildu líka fá sprautur en þau og L hlógu bara að mér og fannst það alveg fáránlegt. Þau væru alveg ónæm fyrir öllum sýklunum og bakteríunum þarna úti. Ég nennti ekki að berjast í þessu þannig að ég bara lét þau ráða. En ég og þau litlu erum semsagt búin að fara í lifrabólgu og taugaveiki og nú í næstu viku er það yellow fever og kólera. Þetta er viðbjóður og þau litlu grenjuðu ógeðslega mikið. Sérstaklega þegar þurfti að sprauta tvisvar í röð! Greyin litlu. Ævar var að tala um þetta alveg heillengi á eftir og segja öllum hvað hefði komið fyrir (og sína plástrana), á sínu einfalda tungumáli auðvitað því hann er langt því frá að vera altalandi.
Tónleikarnir í Fossvogskirkju eru afstaðnir og gengu bara flott. Ég er glöð að þetta er búið í bili því það voru búnar að vera svo strangar æfingar í gangi að maður var orðin dálítið lúinn. Þetta var samt æðislega gaman og frábært að fá tækifæri til þess að syngja í eins flottu verki og Jóhannesarpassíu Bachs. Svo er ekki verra að við fengum líka ágætis gagnrýni.
Sumardagurinn fyrsti er í dag þannig að ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars. Við fórum með þau þrjú yngstu í Húsdýra- og fjölskyldugarðinn í dag og skemmtum okkur vel. Ævar lifði sig mikið inní að skoða öll dýrin og fara í lestina. Það var líka svo fallegt veður. Ég er meira segja pínulítið sólbrennd í framan, en það þarf víst ekki mikið til að ég brenni. Eins gott að maður passi sig í Perú á sólinni. Ahhh...Perú...nú fer að styttast í ferðina. Við erum í bókstaflegri merkingu farin að krossa við dagana á dagatalinu.
Bless í bili,
Nínos.