1 árs skoðunÉg er nú ekki nógi sátt við bloggið því það er iðulega þannig að þegar ég ætla að kíkja á það er það allt eins og dulkóðað og ólæsilegt! Ég veit ekki af hverju. Vildi bara segja að ég fór með Maríu í 1 árs skoðun núna í vikunni og er hún orðin 10,2 kíló, 73,5 sentímetrar á hæð og stóð sig mjög vel í sprautunni. Þetta er í fyrsta skiptið sem hún fór ekki að gráta en þannig hefur það verið í öll hin skiptin. Ég var mjög fegin. En þessu er nú ekki öllu lokið því nú fara að taka við sprauturnar fyrir Perú-ferðina. Gúlp...