The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, March 01, 2007
 
Flensan í tvíriti

Jæja, þá er maður loksins kominn aftur á bloggið. Það fer bara að verða kominn mánuður síðan ég bloggaði almennilega síðast. Auðvitað þá man maður ekkert hvað stóð til að blogga um. Það eru bara búin að vera svo mikil veikindi og pestir hérna hjá okkur að ég hef bara sjaldan lent í öðru eins. Maja og Ævar voru með hita og hálsbólgu og sváfu hrikalega illa. Svo var ekki nóg með að allir veiktust (nema ég og L) einu sinni, heldur fór pestin tvær umferðir á hvert barn, þannig að þegar maður loksins hélt að friður væri kominn á, þá byrjaði ballið upp á nýtt. Ég var orðin rugluð af svefnleysi á tímabili og í þau fáu skipti sem maður hafði tækifæri til þess að blogga þá var maður bara alltof dasaður til þess að gera nokkuð í þeirri deildinni.

Ég er náttúrulega dálítið aum núna svona af því að L er farinn aftur að vinna, hann byrjaði í dag. En það verður kannski ekki svo erfitt að þola það vegna þess að þetta eru náttúrulega bara þrír mánuðir sem eftir eru og svo förum við út. Annars er margt æsispennandi búið að gerast í lífi L. Hann fór í klippingu í fyrsta skipti í tæp þrjú ár og nú er fléttan hans hér uppi á vegg, en ég fór með og heimtaði að fá að eiga hárið. Held meira að segja að ég hafi fellt eitt eða tvö tár þegar klippt var á taglið. Veit eiginlega ekki af hverju. Er bara svona tilfinninganæm. Nú svo eru allir búnir að fara til tannlæknis (nema ég) og krakkarnir eru sem betur fer skemmdarlausir, en mættu bursta betur að mér er sagt. En Lazaro greyið er með eina tönn algjörlega ónýta og það þarf að rífa hana úr! Þetta verður framkvæmt 12.mars og Lazaro kvíðir þessu hræðilega, hann er svo hræddur við nálina. Ég er nú búin að vera að reyna að hughreysta hann en veit ekki hvort það hefur haft nokkuð að segja. Sem betur fer er þetta jaxl en ekki framtönn, þannig að þetta ætti nú ekki að sjást mikið.

Af krökkunum er allt gott að frétta og ekkert neitt rosalegt sem frá er að segja. Charo er væntanlega að fara í blakferð til Akureyrar og það er núna verið að selja klósettpappír á fullu til þess að fjármagna ferðina. María er farin að ganga alveg núna út um allt, en fyrstu skrefin komu þegar hún var 10 mánaða. Hún hefur tekið sér lengri tíma heldur en Ævar gerði, til þess að aðlagast þessum nýja ferðastíl en er núna farin að ganga mikið meira og af meira öryggi. Ég er voða stolt af henni og hún er algjört krútt þegar hún er að trítla hérna um. Svo er hún líka voða mikið að röfla við mann og rífast, á eigin tungumáli, og það er mjög sætt. Hún segir mamma og pabbi, sjáðu, og hérna. Og svo dansar hún svona flott fyrir okkur. Og er komin með tvær tennur í viðbót í neðri góm þannig að alls skartar hún núna 8 tönnslum. Ég hlakka svo til þegar hún á 1 árs afmæli en það styttist óðfluga í það.

Ég er búin að vera dugleg að fara út á meðan L var í orlofi og hitti alltaf stelpurnar úr meðgöngusundshópnum, á tveggja vikna fresti er barnahittingur og svo erum við búnar að bæta við einu sinni í mánuði saumaklúbb og það er voða afslappandi að hittast eina kvöldstund án barna. Þetta er alveg meiriháttar félagsskapur og gaman að vera búin að eignast svona góðan og skemmtilegan vinahóp, það er ekki sjálfgefið að eiga góða vini. Ég ætla sko að halda áfram að hitta stelpurnar, það er líka svo gaman að vera með öðru fólki sem er á svipuðum stað í lífinu, með lítil börn og svoleiðis. Þá getur maður verið öruggur um að þreyta engann með óþarfa barnatali, allir hafa áhuga á að tala um svoleiðis í svona hóp.

Nú svo fórum við Roald frændi í bingó um daginn, svona til þess að rifja upp gamla daga, en þegar við vorum unglingar áttum við það til að fara í bingó með mömmu og vinkonu hennar sem var sko mjög dugleg að fara. Ég meira að segja vann eitthvað hérna í gamla daga en var ekki svo heppin núna. Það skiptir ekki öllu, heldur bara að hafa átt góða stund með Roald.

Við bíðum enn þá eftir svari um ríkisborgararéttinn en höfum fengið þær upplýsingar að umsóknin sé búin að fara hringinn, þ.e. til Útlendingastofnunar, Lögreglunnar og er komin aftur í Dóms-og kirkjumálaráðuneytið þar sem hún liggur í bunka og bíður eftir að vera yfirlesin einu sinni enn og samþykkt (vonandi). Mér var sagt að þetta ætti ekki að vera svo langt í þetta þannig að við getum þá öll farið til Perú á íslenskum vegabréfum. Ég vona það svo sannarlega.

Svo erum við L byrjuð á dagforeldranámskeiðinu og það er bara mjög skemmtilegt. Verðum væntanlega að berjast við eld núna á laugardaginn kemur!

Jæja, get ekki tjáð mig meir, Maja kallar á mig.
Nínos.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives