Góðar fréttir!Jæja, takk fyrir góðu straumana, þeir hafa augljóslega virkað þar sem við erum búin að fá leyfi til daggæslu frá Heilbrigðiseftirlitinu. Reyndar á svo eftir að koma fulltrúi frá menntasviði Reykjavíkurborgar og skoða líka, en miðað við þær upplýsingar sem ég fékk frá daggæsluráðgjafanum, þá veita þeir hjá borginni oftast sitt samþykki ef að heilbrigðiseftirlitið hefur gert það áður, þannig að þetta er svona tiltölulega öruggt að við getum landað þessu.
Nú, henni fannst þetta alveg sleppa með plássið hérna inni, enda erum við með algjört lágmark af húsgögnum hér og mikið gólfrými alveg laust og kjörið til að leika. Svo eru auðvitað flest börn hjá dagforeldrum á aldrinum 9-18 mánaða og þau þurfa nú ekkert flæmi til að leika sér. Einnig var hún mjög ánægð með útiaðstöðuna og allt öryggi innanhúss. Benti mér samt á að setja krók á baðherbergishurðina ef ske kynni að börnin gætu komist upp á lagið með að opna hana sjálf, þá væri betra að hafa bara krók á henni sem þau ná ekki í, heldur en að hafa hana lokaða. Svo erum við með rimlagardínur sem við þurftum að stytta böndin í því henni fannst þau of löng og mögulega hættuleg. Annað var bara í fínu lagi og hún mjög sátt við öryggishliðið í eldhúsinu og skápalæsingar inni á baði. Hún fór svo yfir ýmis atriði með okkur og lét okkur hafa gátlista sem gott er að fara yfir af og til. Lét mig líka fá bækling er varðar hreinlæti í matargerð og mér finnst bara frábært að vita að það sé staðið svona vel að því er viðkemur gæslu barnanna okkar. Það var virkilega gott að fá þessar upplýsingar, því maður getur aldrei verið of vel uppfræddur um það sem varðar öryggi barna, sinna eigin og annarra. Jæja, við sjáum hvað þeir hjá menntasviðinu segja og bíðum með að halda upp á þetta þangað til að þeirra samþykki er í höfn líka. Ég fékk hérna athugasemd frá einhverri/hverjum NN sem hélt að íbúðin okkar væri of lítil til að við fengjum samþykki, en sem betur fer reyndist sá aðili ekki sannspár, a.m.k. ekki hvað varðar álit Heilbrigðiseftirlitið. En ég komst að því að eftirspurnin eftir dagforeldrum er svo mikil að það er nýbúið að lækka kröfurnar er varðar pláss á barn, voru áður 3,5 fermetrar en er nú komið niður í 3 fermetra. Þetta kemur sér vel fyrir fólk eins og okkur sem hefur áhuga á að sinna þessu starfi en á ekki eitthvað rosastórt húsnæði.
Talandi um athugasemdir á þessu bloggi, ég er nú satt best að segja orðin frekar forvitin. Þegar ég byrjaði þetta blogg var það nú bara af því að maður hafði auðan tíma á höndum í vinnunni fyrir nokkrum árum og ég var bara að leika mér og herma eftir hinum stelpunum sem voru að kenna manni að blogga. Svo hefur þetta svona þróast og ég hef verið að þessu bloggi, þó að stundum hafi ég varla haft tíma til þess, af því að fjölskyldan, vinir og kunningjar hafa hvatt mig til þess, sérstaklega þeir sem búa erlendis eða langt frá manni. Annað er að það er margt sem maður skrásetur hér sem gæti verið gaman fyrir börnin að lesa seinna meir, eins konar dagbók frá því að þau voru lítil, þó að auðvitað ritskoði maður sjálfan sig. Sérstaklega hefur manni þótt aukin ástæða til að passa sig meir en áður eftir að hafa lent í frekar leiðinlegum athugasemdum hérna áður, frá fólki sem notar ekki rétt nafn og maður veit engin deili á. Þá kem ég mér að efninu. Hvað eruð þið eiginlega mörg þarna úti sem lesið bloggið mitt að staðaldri en þekkið mig ekki persónulega úr hinu raunverulega lífi? Er svona svolítið forvitin að vita. Það er alveg gaman að vita til þess að ókunnugir hafi áhuga á að lesa um hversdagslegt líf manns, og maður er náttúrulega að skrifa á opinberum vettvangi ef út í það er farið, en ég vil samt taka það fram að ég er fyrst og fremst að þessum skrifum fyrir fjölskyldu, vini og kunningja og býst frekar við viðbrögðum frá þeim. Það er samt voða skemmtilegt að fá jákvæðar athugasemdir frá hverjum sem er, en leiðinlegt að fá neikvæðar athugasemdir, sérstaklega þegar fólk gefur ekki upp nafn. Það er nefnilega svolítið ósanngjarnt þegar maður hefur sjálfur gefið upp persónulegar upplýsingar því þá stendur maður ekki jafnfætis þeim sem tjá sig nafnlaust. Enda hefði ég aldrei átt að segja hvað ég og mín fjölskylda heitum fullum nöfnum hérna á blogginu, en ég býst við að það sé heldur seint í rassinn gripið að fara að breyta því úr því sem komið er. Maður er nefnilega orðinn svolítið paranoia eftir alla þess netumræðu undanfarið í fjölmiðlum. But, like they say, too late. Jæja, ég fór allt í einu langt út fyrir efnið, ætlaði að tala um allt aðra hluti :)
Það eru náttúrulega stórfréttir af henni Maríu minni. Þetta kríli er bara farið að segja fyrstu orðin. Hún segir ,,mamma" og ,,pabbi" og svo réttir hún manni hluti og segir þá ,,hérna". Mér finnst þetta alveg ótrúlegt því hún er ekki nema 10 mánaða gömul! Við þurftum nú aldeilis að bíða eftir honum Ævari hvað varðar tal, en hann sagði ekki orð (nema babl) fyrr en hann varð 17 mánaða. Maður bjóst líka við því af því að þau eru að læra tvö tungumál í einu, að þau yrðu frekar sein til, þannig að María kom okkur alveg í opna skjöldu. Hvað varðar hreyfigetu þá er hún örlítið hægari til en Ævar var, en 10 mánaða var hann bara farinn að hlaupa um, en María er núna nýbúin að taka tvö skref án þess að halda sér í neitt og því varla hægt að segja að hún sé farin að ganga. Svona eru börnin misjöfn.
Annars er ég búin að vera svívirðilega löt að fara í sund núna undanfarið, gerði heiðarlega tilraun til þess að fara eitt skiptið í eftirmiðdaginn með Ævar og Kelly með mér, en auðvitað gat ég lítið sem ekkert synt með þau bæði. Þorði ekki að skilja Kelly eftir eina með honum í grunnu lauginni, hún er of ung til að bera slíka ábyrgð. En samt sem áður held ég áfram að leggja af, mjög hægt finnst mér reyndar, en bítandi. Það er líklega best að slíkt gerist á löngum tíma, þá kannski minnka líkurnar á að maður fitni aftur. Er núna búin að missa 14 kíló og er mjög sátt.
Svo hafði ég samband við kirkju- og dómsmálaráðuneytið, því enn hefur ekkert heyrst frá þeim varðandi umsókn Lazaro og barnanna um íslenskan ríkisborgararétt. Er pínustressuð því ég vil endilega að við getum öll ferðast til Perú með íslensk vegabréf, svo að við þurfum ekki að fá vegabréfsáritun fyrir krakkana til að ferðast í gegnum New York. Það er svo mikið vesen, enda þarf maður að fá slíka áritun (eins og ég og Lazaro gerðum hér um árið) hjá Ameríska sendiráðinu hérna heima, og það er voða ferli, með viðtölum og fullt af gögnum sem maður þarf að framvísa (meðal annars sömu gögn og liggja núna með ríkisborgaraumsóknunum!) og svo kostar þetta líka. Áttaði mig líka á því að dvalarleyfi barnanna rennur út í sumar og það verður ansi erfitt að endurnýja þau ef ekkert okkar verður á landinu! Þess vegna væri frábært að fá ríkisborgararéttinn áður en við förum, þá eru öll vandamál úr sögunni. Konan sem ég talaði við tékkaði á þessu og sagði mér að þetta væri komið langt áfram í ferlinu og ef að við fengjum ekki bréf frá þeim á næstu tveimur vikum þá ætti ég að hafa samband aftur, hún taldi það nánast gefið að þetta yrði allt komið í höfn vel áður en við færum út. Ég vona það svo innilega.
Bless í bili,
Nínos.