Gleðileg voru jólin...og við erum öll mjög sátt. Ég vona að þið hin hafið líka átt góðar stundir um jólin. Við vorum hérna heima og mjög afslöppuð, enda höfðum við L haft góðan tíma til þess að undirbúa allt með miklum fyrirvara þannig að það var lítið jólastress í gangi. Þann 22.des. kom Elba, systir hans L með manninum sínum og hún bauð okkur í sérbakað brauð og heitt súkkulaði sem hún útbjó hérna heima hjá okkur. Þetta voru svona litlu jólin og var mjög notalegt. Nú, á Þorláksmessu lagði ég línurnar að matnum fyrir aðfangadag, bjó til kartöflusalatið mitt og undirbjó allt þannig að það yrði sem minnst vinna fyrir mig með matinn daginn eftir. Á aðfangadag voru allir klæddir í sparifötin kl.12 (við litla hrifningu krakkanna) en ég veit að það kíkja svo margir inn með pakka yfir daginn að ég vildi hafa þau öll fín. Svo þurfti ég líka að vinna í Áskirkjunni við að syngja með kórnum í jólamessu kl.18 þannig að það varð allt að vera klárt áður svo að við gætum borðað um leið og messunni lyki. Þau komu öll í mýflugumynd, Jóhanna, Agnar, Roald og fleiri góðkunningjar og ættingjar en að þeim ólöstuðum var nú samt mest spennandi heimsóknin sú síðasta, en rétt áður en ég fór í messuna birtist Hurðaskellir og gaf mandarínur á allt liðið. Það er nú ágætt að þekkja svona jólasveina. Ævar varð alveg rosalega hissa og pínulítið smeykur, en Maríu stóð mestmegnis á sama um þetta tilstand. Ævar þekkir samt orðið jólasveinn og bendir á allar myndir af jólasveinum. Framburðurinn hans er samt þannig að það hljómar eins og hann sé að segja ,,ljóti" þegar hann segir jólasveinn.
Mamma, Kelly og Ævar komu með í messuna og svo var haldið heim í matinn. Ég var með tvö lambalæri, sykraðar kartöflur, kartöflusalat, bleikt salat (þeyttur rjómi, rauðbeður og epli), hrátt salat (grænmeti bragðbætt með ólífuolíu, salti og sítrónusafa), hrísgrjón (bragðbætt með hvítlauk, grænum baunum og gulrótum) og svo bernaise-sósa. Þó ég segi sjálf frá þá var þetta bara með einsdæmum vel heppnað hjá mér og ég held að allir hafi étið yfir sig. Svo bara áttum við yndislegt kvöld þar sem pakkarnir voru opnaðir undir minni stjórn, en þrátt fyrir að hafa lagt mig alla fram þá get ég ekki munað alveg hvað allir fengu frá hverjum. Það var svo óheyrilega mikið magn af gjöfum og fimm krakkar að maður bara gat ekki haldið alveg fullkomnu skipulagi á þessu. Auk þess sem ég held því fram að ég þjáist af álagsminnisleysi þannig að það er ekki við mig að sakast. Lazaro gaf mér fullt af body-sprayum með mismunandi ilmum, en það var það sem mig langaði í og vantaði. Ég gaf honum Species-safnið á DVD og Blade-myndirnar líka. Krakkarnir fengu allir DVD-mynd frá okkur og svo José nýja vetrarúlpu, Kelly tösku með snyrtidóti fyrir svona litlar stelpur (hún bað sérstaklega um þetta) og Charo fékk DVD með EMinem, sem er í sérstöku uppáhaldi hjá henni.
Ég þakka öllum fyrir okkur og líka þeim sem voru svo sætir að senda jólakort. Sérstaklega þér Hugga frænka í Kanada. Ég fer bráðum með myndir í framköllun og þá sendi ég þér líka.
Nú, svo er maður bara búin að vera í jólaboðum og að bjóða fólki heim í kaffi og svona og því er náttúrulega ekki lokið enn þá. Maður reynir auðvitað að hafa stjórn á sér í átinu en mér leist ekki á blikuna þegar ég sá að ég hafði bætt á mig tveimur kílóum eftir jólin. Ég fór því í sund af fullum krafti núna á milli jóla og nýárs og hef passað matarræðið sérstaklega síðustu daga. Núna í morgun þá voru þau farin aftur og því stend ég í sömu sporum núna, hef misst samanlagt 11 kíló síðan í október. Geri nú ekki ráð fyrir að grennast fyrr en nýtt ár er gengið í garð og veisluhöld búin í bili.
Í gær komu þau svo í heimsókn Roald frændi, Agnar og Jóhanna (með Helga Gný og Valdimar) og voru menntaskólaárin úr MR rifjuð upp og sagðar sögur af Gumma (bróður Roalds), en þetta tvennt er alltaf jafn áhugavert umfjöllunarefni. Ævar var voðalega spenntur fyrir Helga Gný (hann er fjögurra ára) og hermdi eftir öllu sem hann gerði. Þetta var fínt kvöld en smá áfall samt þegar við Jóhanna áttuðum okkur á því að við ættum líklega ekki eftir að sjást fyrr en eftir í fyrsta lagi heilt ár, en hún er í námi í Danmörku og þegar hún kemur heim í sumarfrí verðum við úti í Perú. En, eins og Jóhanna sagði, þá verðum við bara að vera duglegar að blogga til að fylgjast með öllu.
Svo er ég náttúrulega búin að vera í skýjunum yfir því að Sophia frænka mín sé komin heim frá Tyrklandi í bili og við erum svona rétt byrjaðar á því að ferli að segja hvor annarri frá öllu því sem á daga okkar hefur drifið í þessi tvö ár sem hún er búin að vera úti. Hún hafði aldrei séð Ævar eða Maríu þannig að þetta var mjög spennandi allt saman.
Á morgun er svo jólaboð heima hjá Önnu frænku (móðursystur minni) fyrir alla fjölskylduna og allir ætla að koma með eitthvað með sér í formi veitinga. Ég hlakka mikið til því að það eru óvenjumargir á landinu og það er yndislegt að hafa fjölskylduna svona saman.
Gleðilegt nýtt ár til ykkar allra!