The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, October 27, 2006
 
Flensan komin :(

Þá er víst flensan komin enn einu sinni inn á þetta heimili og mér er ekki skemmt. Kelly, Ævar og María eru öll veik, en María litla er sú eina sem er búin að vera með hita. Ég er alltaf svo hræðilega taugaveikluð þegar lítil börn fá hita, maður er svo hræddur um að hann valdi skaða. Fór með hana til heimilislæknisins bara svona til vonar og vara, en það kom ekkert slæmt í ljós annað en flensa. Ég er búin að vera aðeins aum í hálsinum en ekkert meira en það...enn þá. Það er ferlegt að sjá svona lítið kríli veikt. María sem er svo hrikalega dugleg að borða, vill lítið sem ekkert borða og er svona svakalega dauf í augunum. Maður hefur varla séð bros eða heyrt hlátur í henni í tvo daga núna. Það reynir rosalega á að vera með börnin svona óróleg og veik. Ég hef bara ekki lent í öðru eins í langan tíma. Í gærkvöldi var ég eiginlega bara alveg farin að gráta af þreytu þegar Ævar vildi ekki sofna og María var grenjandi og þau voru búin að vera í þeim gírnum frá 9 um morguninn til 11 um kvöldið. Í dag var það sama upp á teningnum og ég var með tárin í augunum þegar mamma kom loksins heim rúmlega 5 og Ævar fékk að fara upp til hennar. Þá féll allt í dúnalogn. José á æfingu, Lazaro sofandi, Kelly og Ævar uppi, Charo úti í bílskúr í tölvunni og bara ég og María einar. Þau Ævar trufla nefnilega rosalega hvort annað. Hann leyfir henni ekki að sofa almennilega á daginn og hún kemur í veg fyrir að ég geti alltaf sinnt honum eins og litla stráknum sem hann er, þótt hann sé stóri bróðir og allt það. Það er bara gott fyrir alla að hann fái að vera uppi hjá ömmu sinni.

Ævar er nefnilega komin með meiriháttar þráhyggju fyrir ömmu sinni, sem er bara af hinu góða. Hann vill bara ólmur komast upp til hennar og sem betur fer hefur mamma verið algjörlega tilbúin að taka á móti honum. Hann er náttúrulega orðinn það stór núna að það þarf ekki að halda á honum eins og smábarni. Mamma er með hann í svaka þjálfun, hann er að taka til, henda í ruslið, ryksuga, borða og leika sér. Trommusettið mitt gamla sem er uppi hjá mömmu, er líka mjög vinsælt. Ég get ekki sagt hvað þetta léttir undir með mér þegar hann fer aðeins upp. Ég er stundum aðframkomin af álagi eftir að hafa verið ein með þau tvö allan daginn. Sérstaklega þegar þau eru veik og maður getur ekkert skroppið með þau út. Ævar skilur það náttúrulega ekki og er mjög ósáttur við þessa inniveru.

Annars er það nýjasta nýtt hjá honum dans. Stelpurnar eru alltaf að dansa við popptónlist, núna er diskurinn hennar Beyoncie (veit ekkert hvernig maður skrifar þetta nafn) vinsælastur og minn maður er bara í svaka freestyle hérna á stofugólfinu. Þetta er ótrúlega fyndið hvernig hann apar allt eftir þeim, frýs alveg kyrr og hreyfir sig með örhægum handahreyfingum þegar lögin byrja á svona rólegu forspili og svo þegar tónlistin fer á fullt þá springur hann alveg í hoppum og breakdansi þar sem hann kastar sér á gólfið, snýr sér í hringi á rassinum og stekkur svo upp. Annars er ég hneyksluð á því hvað hæfileikaríkar söngkonur eins og þessi umrædda söngkona, leggjast lágt til þess að vekja athygli á sér. Þvílíkan narsissisma (hvernig sem það er nú skrifað) hef ég aldrei séð eins og á þessu CD-umslagi. Það er hver ljósmyndin á fætur annarri af henni B, og hún verður æ léttklæddari þar til komið er í miðjuna á umslaginu. Þá er bara centerfold/opnumynd af henni nánast nakinni sem hvaða Playboy-blað gæti verði stolt af. Hvert ætlar þessi útlitsdýrkun eiginlega að leiða okkur? Ég myndi frekar deyja hægum dauðdaga en að gefa út geisladisk sem söngkona með fullt af myndum af mér sjálfri með frygðarsvipinn í augunum og 90% af holdinu bert. Þetta er svo hallærislegt!!!

María greyið hefur sýnt fyrst merki mannafælni núna um daginn, en ég gleymdi að minnast á það áður. Þetta gerðist í afmælinu hennar Charo. Carlos frændi, systursonur Lazaro, kom auðvitað og minni konu leist heldur illa á kauða í þetta sinn. Ég held að svart skeggið eða gleraugun hafi kannski gert útslagið. Hún brast í grát í hvert skipti sem hann reyndi að halda á henni. Carlos greyið fór eiginlega bara á smá bömmer út af þessu. Vonandi endist þetta tímabil ekki lengi. Hún er líka aaaalveg að verða farin að skríða. Er komin upp á hendur og hné eins og ég hef sagt frá áður, en núna endist hún lengur og er farin að hreyfa annað hnéð fram. Maður er svo vitlaus. Getur ekki beðið eftir að þau nái þessum áfanga og sér síðan geðveikt eftir því þegar þau eru farin af stað og maður þarf að vera á hlaupunum á eftir þeima allan daginn.

Það voru foreldrafundir í skólanum núna á þriðjudaginn, en ekki hjá Kelly því kennarinn hennar er í veikindafríi. Ég var alsæl vegna þess að Lazaro átti frí þennan dag og gat því í fyrsta skipti komið með á foreldrafund. Að þessu sinni var ekkert neikvætt í raun sem kom upp á borðið, allir ánægðir með þau bæði nema að José mætti tala aðeins minna við vin sinn Begga í tímum og Charo mætti skrifa aðeins skýrar því kennarinn hennar skilur stundum ekki skriftina og finnst henni hún vera að fela sig á bakvið hana. Ég var reyndar búin að segja henni þetta fyrir löngu síðan, að það væri furðulegt hvernig kennarinn skildi þetta hrafnaspark. Svo kom náttúrulega í ljós að hún gerir það alls ekki! Charo tók þessu ekki mjög vel og finnst þetta ósanngjarnt og móðgandi ímynda ég mér. Ég get ekki séð að hún sé að breyta skriftinni. En það er slæmt þegar kennarinn segir að hún geti stundum ekki séð hvaða stafi hún er að skrifa því þá getur hún heldur ekki áttað sig á því hvernig Charo stendur í íslenskunni. En á meðan þetta eru einu vandamálin hjá krökkunum, þá hef ég nú ekki mjög miklar áhyggjur. Þau standa sig vel að langmestu leyti og það er fyrir öllu.

Nú svo er náttúrulega það að mömmu hefur ofboðið svo (held ég), hvað ég er heltekin af börnunum öllum og helga mig nánast eingöngu öllu sem þeim viðkemur, að hún er farin að kaupa bækur og láta mig lesa. Ég sem var sko þannig alla mína ævi að ég fór ekki á klósettið eða í strætó án þess að vera með bók til að lesa, er ekkert búin að lesa nema einstaka dagblað, síðan ég útskrifaðist úr háskólanum, en þá náttúrulega hafði maður ekki undan við að lesa námsefnið. Ég hef auðvitað mjög lítinn tíma til að lesa, en er samt búin (með því að nota hverja mínútu sem mér gefst færi á) að lesa tvær bækur í þessari viku: Veronika ákveður að deyja eftir Paulo Coelho sem skrifaði líka Alkemistann (þeirri bók var ég ekki hrifin af) og svo Lucky eftir Alice Sebold, en hún er bandarísk kona sem upplifði 18 ára gömul hræðilega árás þar sem hún var barin og henni nauðgað hrottalega. Tvær ólíkar en magnaðar bækur. Sú fyrri mjög heimspekileg skáldsaga, eins og við er að búast af Coelho, en líka raunsönn því hún er byggð á reynslu höfundar af því að vera lokaður gegn vilja sínum á geðsjúkrahúsi. Sú seinni átakanlega hreinskilnisleg frásögn af því hvernig handahófskenndur ofbeldisglæpur eins og nauðgun, umturnar lífi ekki bara fórnarlambsins heldur líka allra í kringum það.

Það liggur við að ég hafi verið búin að gleyma því hvað lestur góðra bóka er æðislegur! Nú vil ég meira, er komin á bragðið aftur.

Yfir og út,
Nínos.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives