The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Tuesday, October 17, 2006
 
Nýjar myndir

Þá er afmælisboðinu hennar Charo lokið og hann Ásgeir vinur og tölvugúrú mætti á staðinn og smellti óspart af þannig að það eru nýjar myndir komnar inn hérna til hliðar undir ,,Rosario 14 ára". Hún á reyndar ekki afmæli fyrr en á morgunn, þann 18.okt. en við höfðum smá veislu fyrir hana núna á laugardaginn var. Þetta var bara vel heppnað og hún mjög sátt við gjafirnar. Fékk nýjan gsm frá okkur, geisladisk, jakka, bol, hring, styttu, naglalakk og svo 14 þúsund krónur í peningum. Mér finnst það vera ótrúlega miklir peningar en hún var auðvitað rosalega glöð. Mér leið líka mjög vel með þetta enda er ég bara ánægð með að afmælisvertíðin sé byrjuð hjá okkur. Eins og ég hef sagt þá er þetta allt önnur tilfinning að vera ekki með námið á herðunum. Ég hlakka bara til að halda öll afmælin hátíðleg, en í fyrra þá hálfkveið mig fyrir af því ég var svo stressuð út af náminu að ég gat ekki notið neins almennilega. Svo kom líka einn vinur hans Lazaro frá Perú með rauðvín sem var sötrað hér fram eftir nóttu eftir að krakkarnir voru sofnaðir, en ég smakkaði auðvitað ekkert, enda enn með barn á brjósti.

Nú, svo komum við Lazaro til skila öllum gögnum varðandi hann og börnin frá Perú til Dóms-og kirkjumálaráðuneytisins, því við erum að sækja um ríkisborgararétt fyrir þau öll. Vonandi verður það gengið í gegn áður en við ferðumst út til Perú, svo að við getum öll ferðast með íslensk vegabréf. Mér var sagt að þetta gæti tekið hálft ár en vonandi gengur það fyrr fyrir sig. Annars verða Lazaro og krakkarnir að ferðast í gegnum New York með vegabréf frá Perú og til þess þurfa þau vegabréfsáritun. Lazaro er með svoleiðis í sínu vegabréfi en krakkarnir ekki. Ég er búin að kynna mér hjá Ameríska sendiráðinu hvernig maður gæti fengið transit-áritun fyrir þau og það er alveg meiriháttar vesen, gögn og viðtöl og kostar auk þess slatta af peningum sem við megum ekki við að missa. Til að sækja um ríkisborgararéttinn þurftum við að skila inn fæðingarvottorðum fyrir alla, búsetuvottorðum, framfærsluvottorðum, sambúðarvottorði, forræðisvottorði, umsögn tveggja aðila um Lazaro auk allra skírteina af íslenskunámskeiðum sem hann hefur tekið. Síðan kostar að sækja um 10 þúsund krónur hvort heldur sem maður fær síðan á endanum jákvætt eða neitkvætt svar. Það upphófst smávegis móðursýki hérna heima þegar við fundum ekki forræðisvottorðið frá Perú sem var gert á sínum tíma þegar krakkarnir komu til landsins, heldur bara ljósrit af því. Ég var algjörlega viss um að við Lazaro hefðum ekki týnt þessu og ákvað að athuga hvort það gæti verið að Útlendingastofnun hefði ekki skilað okkur frumritinu. Ég hringdi þangað og var sagt að ef ég vildi að þeir athuguðu hvort þeir hefðu einhver gögn þá þyrfti ég að koma þangað og fylla út eyðublað bara til þess að fá þá til að leita í möppu barnanna. Síðan að skilja blaðið eftir og bíða eftir símhringingu. Þvílík skriffinnska! En þeir eru náttúrulega undir miklu álagi þarna. Það mikilvægasta er að þeir hringdu aftur tveimur dögum síðar og höfðu þá fundið gögnin sem betur fer.

Nú, Ævar hefur aldrei sýnt því áhuga að horfa á sjónvarp, hvorki teiknimyndir né annað, en núna er hann loksins búinn að finna eitthvað fyrir sitt hæfi. Það er komin ný stöð inn á Breiðbandið sem heitir Baby TV og er bara með barnaefni fyrir mjög lítil börn og það er greinilegt að þetta virkar því að Ævar er alveg heillaður af þessu og er alltaf að sýna mér hvað sé að gerast í sjónvarpinu. Hann er líka búinn að gera smá í koppinn í fyrsta skiptið, en ég er satt best að segja að verða orðin dálítið þreytt á öllum þessum bleiuskiptum.

María er líka komin með eina tönn í viðbót og hefur nú tvær hvassar í neðri gómi fremst sem hún mundar óhikað. Hún er alltaf jafndugleg að borða og er ótrúlega upptekin af því að reyna að skríða. Er núna farin að lyfta sér alveg upp á hné og hendur bæði í einu en það endist bara rétt í tvær sekúndur og þá hrynur hún niður aftur. Ég hlakka svo til á föstudaginn því þá verður hittingur heima hjá mér fyrir okkur sem vorum saman í meðgöngusundinu og því verður fullt hús af smábörnum hérna. Það er ágætt að vera með frystan afgang af skúffukökunni sem ég keypti á lager til að taka fram.

Kelly er líka farin að fara upp til ömmu með Ævar með sér og þau njóta sín að vera þar í svona tvo tíma eða svo í eftirmiðdaginn. Ég er mjög þakklát mömmu fyrir að nenna þessu því að það léttir svo undir með mér. Ég get þá aðeins hvílt mig hérna með Lazaro og Maríu, jafnvel lagt mig, sem er athöfn sem ég þekki varla lengur sökum barnanna.

José er orðin 176,5 cm á hæð og gnæfir hérna yfir okkur öll. Hann er að fara bráðum í fjögurra daga skólaferðalag eða skólabúðir þar sem gerðar verða æfingar af félagslegum toga...ég veit nú eiginlega ekki alveg hvað það þýðir nákvæmlega en geri ráð fyrir að það eigi að vera jákvætt fyrir krakkana.

Svo á morgun þá á Rosario afmæli í raun og veru og ég ætla að elda lambalæri og vera með eitthvað gott svo við getum haft það kósý öll saman.

Yfir og út,
Nínos.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives