The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Tuesday, July 11, 2006
 
Upp og ofan

Það er loksins að maður kemst í bloggið, enda nærri miðnætti þegar ég skrifa þetta og allt liðið farið að sofa. Maður má þakka fyrir að María hafi ekki vaknað við það að ég lagði hana frá mér, svo háð er hún því að vera í fanginu á manni. Ég fæ mjög miklar athugasemdir frá fólki þegar ég er úti með hana og þá sérstaklega út af hárinu hennar sem er svo mikið og dökkt. Í tvígang hefur fólk sagt að hún sé með svona Elvis-greiðslu :) Ekki leiðum að líkjast.

Annars er svona hitt og þetta búið að vera í gangi. Lazaro tókst enn einu sinnu að fá í bakið og hann sem var búinn að vera góður svo lengi, sérstaklega eftir að hafa verið hjá sjúkraþjálfaranum. Hann er náttúrulega með brjósklos á byrjunarstigi og verður að fara varlega. Við erum mjög spæld yfir þessu því hann gerir alltaf liðleikaæfingar sem hann lærði hjá þjálfaranum en allt kom fyrir ekki. Hann er búinn að vera heima þessa vikuna og haltra hér um sárkvalinn. Ég get ekki sagt það hvað ég er orðin yfir mig södd á veikindum minna nánustu. Það er eins og það sé eitthvað karma í mínu lífi varðandi það málefni. Það er svo þreytandi að þurfa alltaf að vera með áhyggjur. Annars er Lazaro enn þá eftir 4 og hálfs árs samband að koma mér á óvart en ég stóð hann að verki í gær að vera að greiða á sér handakrikahárin. Já, ég veit, úff... Enda tók ég létt kast á hann í kjölfarið. Sérstaklega með tilliti til þess að hann var að nota greiðuna mína!!! Ógeð!!! Einu sinni sá ég hann líka kreista sítrónu í handakrikann á sér. Útskýringin var sú að þetta drepi bakteríur. Mitt svar var að sápa geri sama gagn.

Kofinn hennar Kelly er kominn heim í garð og við máluðum hann í gær. Ég fann bleika og fjólubláa málningu og þetta er mjög glæsilegt núna. Það versta er að Kelly er búin að fylla kofann af drasli, alveg eins og herbergið sitt. Eins og hún er góð stelpa og dugleg við að passa Ævar og leika við hann, þá er hún hrikalegur draslari og verður ágætis kandídat í Allt í drasli-þátt ef hún heldur svona áfram. Hún er líka búin að ákveða það að kalla mig mömmu og sagði að það væri vegna þess að það væri asnalegt að kalla mömmu mína "ömmu" en mig "Nínu". Ég er nú bara í sæluvímu út af þessu og ég talaði við systkini hennar og bað þau um að sýna þessu virðingu, þetta væri hennar val. Það er náttúrulega erfitt að breyta af vananum þannig að hún segir oft Nína líka, en það skiptir engu, mér finnst það mjög fallegt að hún hafi sýnt þann vilja að kalla mig mömmu. Meira en ég get lýst.

Charo og José eru orðnar rosalegar gelgjur og það fylgja því auðvitað ákveðinn vandamál sem maður getur kannski ekki alveg verið að blogga um, en ég verð að viðurkenna að stundum er erfiðara að eiga við unglinga heldur en ungabörn. Þau virðast alla veganna þarfnast alveg jafn mikils eftirlits. Charo ætlar að byrja í blaki með Þrótti og getur ekki beðið eftir að það byrji, en núna er sumarfrí. Ég var svo sem kannski búin að blogga um þetta áður. Man ekkert stundinni lengur. Ég vona bara að hún komist þar í góðan félagsskap og eignist vinkonur sem geta orðið nánar henni þannig að hún komist betur inn í tungumálið. Hún er búin að læra heilmikið en er enn þá ekki orðin nógu sleip til þess að bjarga sér sjálf. José er orðinn helvíti góður en hann hefur líka þetta forskot yfir hana að vera búinn að vera stunda boltann í næstum 2 ár og það er náttúrulega heilmikil auka íslenskukennsla. Það þarf auðvitað ekki að minnast á það að Kelly er orðin altalandi má segja og ekki séns að heyra á henni að hún sé nokkuð annað en innfæddur Íslendingur. Hún er samt alls ekki orðin nógu góð í lestrinum og skriftinni og framfarir í vetur verið mjög hægar. Ég lét mér því detta í hug að fara með hana á bókasafnið og leyfa henni að velja sjálf bækur sem við lesum saman og gera þetta vikulega. Skrifa síðan niður titla allra bókanna sem hún les í sumar svo að hún geti sýnt kennaranum sínum í haust. Það versta er að ég fæ bara nánast aldrei frið til þess að lesa með henni. Ævar verður alltaf alveg óður og vill taka bækurnar. Greyið litla, hann vill svo mikið vera með í öllu og gera allt sjálfur.

Mig langar að koma á framfæri að ég á í ástar/haturs-sambandi við Bónus-verslanirnar. Ég er ánægð með þær af því að ef það væri ekki fyrir lága vöruverðið í Bónus þá væri fólk eins og ég og Lazaro í djúpum skít. En ég hata að versla í Bónus. Það er allt svo sjúskað þar inni, mikið fólk, lítið pláss, krakkarnir sem vinna þar vita aldrei neitt um neitt og ógeðslega langar biðraðir við kassana. Það vantar allan klassa í Bónus, en það er kannski þess vegna sem allt er svo ódýrt þar. Þetta er mín vikulega martröð að fara þangað. Svo eru ávextirnar þar og margt grænmeti (sérstaklega laukarnir) alltaf viðbjóður og hálfrotnandi. Þoli þetta ekki. Eins þoli ég ekki heldur þegar það er hringt í mann úr leyninúmerum og reynt að selja manni hluti eða fá mann til að gefa ölmusur. Mér finnst þetta vera svo mikið áreiti. Enda kemur þetta oft í bylgjum hjá mér. Kvöld eftir kvöld sem er hringt. Um daginn var hringt og ég beðin um að gefa fé til styrktar börnum á Íslandi sem koma úr fátækum fjölskyldum svo að þau geti farið á sumarnámskeið og í ferðalög og svona lagað. Ég sagði að ég vildi gjarnan hjálpa til en það vildi þannig til að við værum ein af þessum fátæku fjölskyldum, með 5 börn og hrikalega lágar tekjur (a.m.k. eins og er, vonandi að MA-gráðan eigi eftir að breyta einhverju þar um í framtíðinni) þannig að við þyrftum frekar að fá aðstoð. Greyið konan fór alveg í flækju, baðst afsökunar og skellti á. Mér leið bara furðu vel eitthvað á eftir...hehe. Púkinn í manni.

Annað sem ég get bloggað um.... Já...Ég fékk lúðu gefins frá Sigga pabba hans Geira frænda (Geiri og ég erum systrabörn) um daginn, en hann er vélstjóri og gefur mér alltaf fisk þegar hann kemur í land. En ég er vön ýsu og vissi ekkert hvernig á að matreiða lúðu. Sá svo uppskrift í blaði og grillaði lúðuna úti á sólpalli um helgina. Þetta var bara virkilega gott. Sérstaklega með tilliti til þess að ég hata að elda. Siggi hefur sko verið í fleiri ár vélstjóri um borð í Akureyrinni, en þeir sem fylgjast með fréttum vita kannski að hún brann fyrir ekki svo mörgum vikum og tveir skipverjar létust. Það var rosalegt að þetta skildi gerast og Siggi og hinir mennirnir sem lifðu af, hafa þurft að fá mikla áfallahjálp og aðstoð. Þannig að maður veit ekkert hvort þeir fara aftur á sjó. Lífið er svo brigðult að maður skildi aldrei taka því sem sjálfsögðum hlut. Ég var að horfa á sápuóperuna Beverly Hills og þrátt fyrir að flest í þeim þáttum sé ekki mjög djúpt þá sat í mér ein setning sem er nokkuð góð og margur mætti íhuga, þar á meðal maður sjálfur: ,,Það skiptir ekki máli hvað mikið og fallega maður talar um fólk þegar það er dáið, heldur hvernig maður kemur fram við það þegar það er lifandi".
Bless í bili,
Nínos.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives