Enn fleiri myndir komnar undir "Family Myndir"
Það eru komnar inn nýjar myndir hérna fyrir neðan sem Rosario hefur verið að taka á sína myndavél sem hún fékk í fermingargjöf frá ömmu Jónu. Smellið á "myndirnar hennar Rosario".
Varðandi síðustu færslu...Ég er nú búin að jafna mig aðeins og er ekki alveg jafn örvæntingarfull og síðasta færsla gaf til kynna. Ég fékk mikið af hugulsömum athugasemdum sem mér þótti mjög vænt um og þakka fyrir. Það er gott að vita að maður á góða vini. Það var einhver sem benti mér á að ég væri nú aðeins 28 ára og því kannski ekki alveg tími til þess að fara úr límingunum út af framtíðinni, nógur væri nú tíminn. En málið er að ég á það til að gleyma því að ég sé 28 ára vegna þess að ég á mann sem er 48 ára og oft á tímum þá einhvern veginn aðlagast ég hans aldri svona í huganum og hugsa um okkar framtíð saman út frá þeim árum sem hann á eftir en ekki ég. Skiljið þið hvað ég er að fara? Þetta er nú gallinn við sambönd þar sem er svona mikill aldursmunur.
Annars er ég í fljúgandi sæluvímu vegna útskriftarinnar minnar sem fram fór á laugardaginn. Við fórum bara tvö saman ég Lazaro en með Maríu með okkur. Mamma var að passa Ævar og hinir krakkarnir hjálpuðu henni. Það vildi nú ekki betur til en svo að María þurfti náttúrulega að fara að orga eins og ljón og Lazaro varð að fara fram með hana, svo mikil væru lætin. Þetta gerðist náttúrulega á sama tíma og komið var að mér að fara upp á svið, þannig að Lazaro missti af því þegar ég fékk skírteinið mitt afhent :( En Hulda, þú sást mig þó, það er bót í máli. Ég fékk 8,9 í meðaleinkunn og náði því ekki ágætiseinkunn eins og þegar ég kláraði BA-gráðuna, það vantaði 0,1 uppá að ég næði níunni. En svona er nú lífið. Maður gerir sitt besta en fær ekki alltaf það sem maður vill. En svona í alvöru þá er ég mjög sátt með útkomuna.
En nú virðist sem Ævar sé búinn að kúka á sig, það er einhver skítalykt hérna í kringum mig þannig að Nínos, með meistaraprófið í ensku, kveður að sinni til að skipta á bleiju.