The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, June 15, 2006
 
Nýjasta nýtt

Þá er ég búin að fara með Ævar og Maríu í ungbarnaeftirlitið og það var svolítið skrýtið að fara með tvö börn í einu. Ævar í 18 mánaða skoðun og María í 3 mánaða! Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Lazaro tók sért frí í vinnunni til þess að fara með mér og það veitti ekki af enda nóg að gera. María fékk sprautu í lærið og var ekki par hrifin og lét heldur betur í sér heyra. Hún er orðin 59 sm á lengd og 5,5 kíló og stóðst sína læknisskoðun bara vel. Hún heldur alveg höfði (fyrir löngu síðan), fylgir vel eftir með augunum og er búin að uppgötva á sér hendurnar. Reyndar á hún það til að setja þær alveg uppí sig þegar þannig stendur á. Ætli hún eigi ekki eftir að sjúga þumalinn seinna.

Ævar er orðinn 84 sm á hæð og 12,5 kíló og er ekki lengur svona ofsalega stór miðað við jafnaldra sína eins og hann var. hann er eiginlega að verða bara meðaldrengur á stærð, en hann virkar oft eldri en hann er út af stóra höfðinu sínu og mikla hárinu. Hann fékk sprautu í upphandlegginn og var ekki neitt hrifnari af þessari meðferð frekar heldur en litla systir. Hann fékk líka læknisskoðun og lækninum fannst eins og það væri örlítill vökvi í eyranu á honum en ekkert sem ætti að trufla hann. Mælti með því að koma með hann aftur svona í september og sjá þá hvernig ástandið væri. Svo fór Ævar náttúrulega í þroskapróf og kom bara vel út úr því. Hann raðar tveimur eða fleiri kubbum ofan á hver aðra, krotar með blýanti og er auðvitað löngu, löngu farinn að ganga, hann hleypur reyndar! Það eina sem hann klikkaði á var að hann þekkir ekki líkamshluta eins og nef, munn, hár og annað með nafni en ég sagði að það væri væntanlega vegna þess að ég hefði ekkert verið að kenna honum það sérstaklega. Málþroskinn er líka örlítið á eftir, hann segir 4 orð sem við vitum fyrir víst að hann notar á viðeigandi hátt, en það er bæ, hérna, namminamm og halló. 18 mánaða börn eiga að kunna að tala svona 6-10 orð og læknirinn sagði að fyrir tvítyngt barn eins og Ævar verður, væri það bara mjög gott að vera farinn að segja eitthvað yfirleitt, því það er jú flóknara að vera að læra tvö tungumál í einu.

Kelly er á smíðanámskeiðinu og ég held að hún sé bara að brillera á þessu. Er bara búin að vera í eina viku og er nánast búin með heilt hús sem verður svo flutt út í garð. Hún er núna byrjuð að smíða húsgögn inn í það og hlakkar alveg rosalega til að fá þetta heim og mála og gera fínt. Hún sér alveg frammá að geta leikið þarna með Ævari. Ég er álíka spennt að fá þetta því ég sé fyrir mér að þegar nýjabrumið fer af þessu og Kelly missir áhugann, þá get ég notað þetta fyrir geymslu undir drasl sem er á sólpallinum sem maður er kannski ekki að nota á hverjum degi en getur samt ekki hent, eins og sópar, smellistólar, fötur og svo frv.

Charo er náttúrulega eins og sagt hefur verið frá í unglingavinnunni og er svo líka að passa litla stelpu sem er á svipuðum aldri og Ævar. Mamma hennar er frá Ekvador og er að vinna með Lazaro á Hrafnistu en pabbinn er íslenskur. Þau búa hérna nálægt okkur og Kelly fer alltaf með henni þannig að þetta verður ekki þægilegra fyrir þær. Þær eru nú aldeilis orðnar sérfræðingar í svona krílum eftir að hafa átt við Ævar síðan hann fæddist og fara létt með þetta. Charo er líka búin að ákveða að fara að æfa blak með Þrótti og það byrjar í haust. Mér líst mjög vel á að hún sé líka í íþróttum eins og bróðir hennar. En ég hef svolitlar áhyggjur af henni samt. Hún er að verða fjórtán ára og það er hættulegur aldur. Ég sé greinilegan mun á henni varðandi matarræði og svona og hún er búin að skera niður það sem hún borðar og er alveg með á heilanum að vilja ekki fitna. Það er greinilegt að tískan og dægurmenningin sem er í boði hér á landi er búin að sogast inn í heilann á henni. Við Lazaro erum að reyna að segja henni hvað þetta er allt mikið plat í myndunum og blöðunum, það er enginn sem lítur í alvörunni svona út eins og þessar leikkonur og fyrirsætur, allt er þetta photosjoppað og feikað. En ég veit ekki hvort við höfum einhver áhrif á hana en við gerum okkar besta. Ef hún fer í íþróttir þá hittir hún vonandi stelpur sem eru heilbrigðar á líkama og sál og hafa önnur markmið í lífinu en að vera sexý og í mjónu-keppni.

José er í líka í unglingavinnunni og vinnur núna 7 tíma á dag og ber líka út Fréttablaðið og æfir fótboltann 4 sinnum í viku þannig að hann er með fullt prógram. Hann er reyndar dálítið út úr heiminum þessa dagana vegna þess að HM er í gangi og hann er mjög spenntur fyrir því eðlilega. Ég meira að segja horfði í fyrsta skiptið á ævinni á (næstum því) heilan fótboltaleik í sjónvarpinu á milli Brasilíu og Króatíu. Við héldum auðvitað með Brasilíu, nágrannaþjóð Perú. Eg man ekki hvort ég var búin að minnast á það að við fórum um daginn til að kaupa nýja takkaskó (í boði ömmu gömlu á efri hæðinni, takk mamma) og José er kominn upp í 46 í skóstærð! Þetta er bara óhugnanlegt finnst mér og José var í persónulegu áfalli. Fyrir tveimur árum var hann í númer 41...

Af mér og Lazaro er það svona helsta að við lifum bara núna í einhverjum draumaheimi. Við erum alltaf að hugsa um Perú-ferðina sumarið 2007 og brúðkaupið sem við stefnum á. Okkar hlakkar svo mikið til að fara og sjá íbúðina og kaupa í hana húsgögn og allt sem vantar eins og ísskáp, þvottavél og svona. Það virðist eins og það sé svo langt þangað til við förum, heilt ár, enn tíminn er náttúrulega ótrúlega fljótur að líða þegar maður hefur nóg að gera og það höfum við svo sannarlega. Ég hringdi í Icelandair og þar var mér ráðlagt að bóka miða strax í september-október núna til þess að geta fengið eins ódýra miða og hægt er. Þetta er náttúrulega hrikalega dýrt ferðalag og það veitir ekki af að reyna að fá þetta eins ódýrt og hægt er. Það verður aldrei ódýrt samt og við sjáum fram á að José og Chari verði að borga sjálf að mestu sína miða. Leiðinlegt en satt, við verðum að vinna saman eins og fjölskylda ef þetta á að verða að veruleika og spara, spara, spara.

Svo er annað mjög mikilvægt sem ég verð að segja frá og það er að Gunnar bróðir minn og sellóleikari, er að fá Fálkaorðuna á laugardaginn og hefur boðið mér að fylgja sér á Bessastaði til þess að taka við þessum heiðri. Mér finnst þetta æðislegt og hann eiga þetta fyllilega skilið fyrir það sem hann hefur áorkað sem listamaður og góðmenni líka og mér þykir það alveg frábært að hafa verið valin af honum að koma með. Ég hef aldrei farið til Bessastaða og er bara mjög spennt yfir þessu. Þetta er líka sérstaklega skemmtilegt að þetta sé að gerast vegna þess að pabbi okkar fékk líka Fálkaorðuna á sínum tíma.

Nínos hefur tjáð sig,
Chao.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives