The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, May 26, 2006
 
Það helsta...

Það er svo fyndið að í hvert sinn sem ég fæ næði og tækifæri til þess að blogga, þá man ég alls ekki eftir neinu af því sem ég vildi segja frá. En þess á milli er ég alltaf að fá frábærar blogghugmyndir sem síðan týnast niður.

En svona það helsta: auðvitað eru það alltaf blessuð börnin sem eru manni efst í huga. Ég fór með Maríu í 9 vikna skoðun og hún er orðin 5160 grömm og þyngist bara mjög vel. Ég fékk líka svona þunglyndispróf sem ég átti að krossa við og það var nú ekki vottur af þunglyndi hjá mér, enda vissi ég það alveg fyrir, eins hamingjusöm og ég er með mitt líf. Það var eins og ég sagði við ljósuna, það er erfitt að vera með 5 börn og í námi og allt það, en þetta er eitthvað sem ég valdi og vil gera. Það eina sem ég er ósátt við í mínu lífi er hvernig er komið fyrir mömmu minni, sem er orðin sjúklingur og öryrki vegna læknamistaka. Þetta er erfitt að sætta sig við.

En semsagt, í júní verður María 3 mánaða og Ævar 18 mánaða þannig að bæði eiga að koma í ungbarnaeftirlit. Bæði að fá sprautur (ónei...), vigtuð og mæld, læknisskoðun og svo fer Ævar í staðlað þroskapróf. Ég var nú einmitt að segja við ljósuna að hann væri ekkert byrjaður að tala en það er líklega útaf því hann er að læra tvö tungumál í einu og þannig börn eru oft lengur af stað að tala. En ég fékk semsagt tíma fyrir þau bæði í einu svo ég þurfi ekki að koma tvær ferðir.

Í gær var svo vorhátíð foreldrafélags Langholtsskóla og ég fór með alla krakkana, þar á meðal Ævar og Maríu og tvíburakerrunni sinni. Ég hitti svo Hannes sem kenndi mér í MR félagsfræði og við vorum að skiptast á barnasögum og almennu foreldramonti. Svo hitti ég líka Áslaugu ljósu sem tók á móti Maríu og það var auðvitað sérstaklega gaman að sýna henni litlu krílin, enda María orðin 9 vikna og svaka mikill munur á henni. Það var boðið upp á svala og pulsur og Kelly fékk andlitsmálningu og fór á hestbak! Svo var hún líka að syngja með skólakórnum og spilaði meira að segja undir á sílófón eða hvað þau heita þessi hljóðfæri. Ég hafði ekki hugmynd um að hún væri að læra svona mikið. Svo er nú ekki langt síðan þau voru með danssýningu, allir krakkarnir í 3.bekk og ég var bara í sjokki yfir því hvað þau voru góð í dönsunum. Aldrei fékk ég að læra dans þegar ég var í skóla. Mér finnst að það eigi bara að vera danskennsla í staðinn fyrir leikfimi, því það geta allir dansað, en margt sem þarf að gera í leikfimi er mjög erfitt td. fyrir krakka sem eru þybbnir og það býður uppá stríðni.

Svo er ég mikið að velta því fyrir mér hvort að ég sé farin að láta mikið á sjá. Ég var nefnilega að tala við manneskju um daginn og mamma mín kom til umræðu. Ég sagði: ,,Já, og mamma er ekki nema 53 ára gömul." Þá sagði hin manneskjan: ,,Ha! Bíddu, var hún þá ekki bara kornung eða á barnsaldri þegar hún átti þig?" Ég fékk auðvitað áfall á staðnum þar sem mamma þótti bara alls ekkert ung þegar hún átti mig en hún var 26 ára gömul og ég er 28 ára núna. Vegna þessa mjög svo sjokkerandi samtals fór ég beint í spegilinn og reyndi að sjá sjálfa mig frá hlutlausu sjónarhorni en ég get það bara alls ekki. Því spyr ég ykkur lesendur góðir sem þekkið mig, og ég vil sannleikann: Lít ég út fyrir að vera fertug? Eða kannski rúmlega það :( ? Það var eins gott að ég var búin að taka þunglyndisprófið áður en þetta samtal átti sér stað, annars hefði niðurstaðan ef til vill orðið önnur. Ég vissi svo sem að ég væri í hrörnun en ekki að ástandið væri svona slæmt!

Nú af fleiri hlutum þá hafa bæst við nýir fjölskyldumeðlimir hér á Kambsveginn en við erum komin með finkupar sem hafa fengið hin frumlegu nöfn Daníel og Jennifer (Lopez?). Svo fékk Kelly líka kvikindi sem er blanda af mús og dverghamstri og heitir Aníta. Ég var svo sem ekki spennt að fá dýr inn á heimilið því ég veit hver á eftir að þurfa að hugsa um þau, en mamma var að þrýsta á þetta því hún telur þetta vera svo gott fyrir börnin. Ég gat nú varla sagt mikið þar sem ég fékk að hafa helling af dýrum þegar ég var lítil.

Ævar er líka voða spenntur fyrir öllum dýrum, og er með sár á hausnum því til staðfestingar. Ég fór með hann út á róló um daginn og svo fórum við að ganga heim og hann var ekki í kerrunni heldur gekk sjálfur. Kemur þá ekki köttur sem er að sniglast í kringum okkur og Ævar varð auðvitað rosa æstur yfir þessu og vildi elta köttinn. Ég náttúrulega bannaði það, enda kötturinn farinn yfir götuna og reyndi að halda í höndina á Ævari. Hann fékk frekjukast á staðnum og leyfði mér ekki að halda í sig þannig að ég tók aftan í peysuna hans bara til þess að hann kæmist ekki í burtu. Þá tekur hann allt í einu upp á því að kasta sér aftur á bak og sveigði sig einhvern veginn svo langt aftur að höfuðið fór beint í gangstéttina með tilheyrandi drama og gráti og taugaáfalli frá mér, enda blæddi úr sárinu sem hann fékk.

Annars er einmitt vegna Ævars sem húsgögnin eru smám saman að hverfa héðan úr húsi vegna þess að hann er svo mikill klifurköttur að við erum bara að fara á taugum. Hann klifrar upp á öll borð og stóla og er ekki sjaldan búinn að detta af þeim. Það er í raun ótrúlegt að nokkur mannvera lifi af þessi smábarnaár miðað við þær byltur og slys sem þessi kríli verða stöðugt fyrir.

Nú fara eldri krakkarnir líka að byrja að vinna, en Rosario er líka komin á unglingavinnualdurinn og fer í vinnuskólann í sumar ásamt José. Hann mun samt vinna í 7 tíma og dag á meðan hún fær bara 3,5 tíma. Þetta byrjar 12. júní og stendur yfir í fimm vikur að ég held. Skólaslitin eru 6. júní. Mér finnst reyndar þessi lenging á skólaárinu alveg út í hött vegna þess að öll próf eru löngu búin og krakkarnir eru í raun ekkert að læra neitt mikið í skólanum eftir þau. Það eru bara ferðalög, hátíðarhöld, föndur, útidagar og svona nokk í gangi. Ég sé í raun engann tilgang með þessu og skil ekki hvers vegna það er þá ekki bara hætt fyrr eins og var hér áður.

Jæja, verð að hætta.
|
Sunday, May 21, 2006
 
Þá er ég búin að setja inn nýjar myndir hér til hliðar undir "María Mín 2".
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives