The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, January 21, 2006
 
Tíminn líður hægt...

Sérstaklega þegar beðið er eftir einhverjum. Ég trúi því varla að Lazaro eigi enn þá eftir að vera í tvær vikur í Perú. Hann er ekki nema hálfnaður með þessa ferð og ég er alveg að tryllast að bíða eftir honum. Ég sakna hans svo hrikalega mikið. Krakkarnir hafa alveg verið ágætir og það er gott að vita að maður ræður alveg við að hugsa um allt þetta lið sjálfur, en það munar samt rosalega um Lazaro, ég get ekki sagt annað. Mér þykir kvöldin þegar ég er komin uppí vera sérstaklega þunglyndisleg og ömurlegt að sjá hans hlið rúmsins auða.

Mamma hefur hjálpað mér alveg svakalega mikið og eiginlega verið hérna niðri hjá okkur á hverjum degi. Ég fer í skólann tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum og mamma er núna hérna heima ein með Ævar á meðan. Hann er eiginlega orðinn of stór til þess að taka með í skólann eins og við gerum fyrir jól. Hann er svo aktívur að hann myndi ekki sætta sig við að sitja svona lengi í kerrunni, enda er ég frekar lengi í skólanum á miðvikudögum. Þetta hefur bara gengið vel og krakkarnir koma svo heim og hjálpa mömmu með Ævar. Ég er svo þakklát fyrir þetta. Svo hefur félagsskapur mömmu hérna niðri verið svolítið til þess að bæta mér upp missirinn af Lazaro, það er gott að hafa einhvern annan fullorðinn að tala við. Maður yrði klikk á að hafa bara börn í kringum sig allan daginn.

Varðandi skólann þá er ég nánast búin með tvær af þessum fjórum ritgerðum, og það þessar löngu, eru rúmlega 20 .bls. hvor fyrir sig. Er bara að dúlla við að fara yfir þær núna, enda eins gott að þetta gangi allt verl fyrir sig. Þá á ég bara eftir tvær ritgerðir sem eru mun styttri og einfaldari þannig að ég hef nú ekki miklar áhyggjur af því að klára ekki fyrir fæðinguna. Með því að demba mér í námið hef ég líka ýtt söknuðinum frá mér.

Lazaro og ég erum að plana að gera svolítið og ef það gengur upp þá læt ég ykkur vita, en ég vil ekki segja hvað það er strax, ef ske kynni að það yrði ekkert úr því, en þetta er svolítið Big Time dæmi sko. Mjög spennandi.

Svo er bara spurning hvort að maður kaupi ekki þorramat á morgun og neyði krakkana til þess að borða hann. Þau hafa svo sem ekki prófað þetta allt en manni dettur í hug að þau verði ekkert yfir sig hrifin af súrsuðum hrútspungum og svona. VIð sjáum til.

Ævar er farinn að færa sig heldur upp á skaftið hérna heima og verður hættulegri með hverjum deginum. Ef að hann kemst inn á bað og klósettið er opið þá fer hann að henda dóti ofan í það og sulla, ef klóið er lokað þá klifrar hann upp á það og sturtar stanslaust niður. Það er flísar á gólfinu inni á baði þannig að ef hann dytti...Úff... Hann er líka búinn að þróa með sér tækni til að klifra upp á borðstofustólana og þaðan upp á borðstofuborðið. Annað úff ef hann dytti úr þeirri hæð. Hann er líka strokugjarn og opnar útidyrahurðina ef hún er tekin úr lás. Svo er bara minn maður farinn sína leið. Annað úff... Hann er líka farinn að dansa og dilla sér í takt við alla tónlist, klappar saman lófunum, og hermir eftir ef maður blæs framan í hann. Hann er líka búinn að læra að vera "góður" en þá strýkur hann manni. Ég varð að kenna honum það vegna þess að hann var farinn að lemja og slá fólk í framan sér til gamans og skellihló, fannst þetta mjög fyndið. Krakkarnir höfðu þá verið að leika við hann og leyft honum að gera svona við sig. Mér fannst þetta ekki mjög sniðugur leikur, það var bara reglulega sárt að vera sleginn utanundir. Svo er nú ekki gott að hann fari kannski að lemja litlu systur sína þegar hún kemur í heiminn. En núna kann hann að vera góður og strjúka og klappa manni. Honum finnst sérstaklega gaman að klappa maganum á mér. Ætli hann fatti að eitthvað sé í gangi þarna inni? Hann meira að segja lyftir upp bolinum mínum til þess að fá aðgang að bumbunni.

Þetta er svona það helsta að frétta úr mínum einangraða heimi. Ég get bara ekki beðið eftir því að fá Lazaro minn heim aftur og að vera búin í þessu námi. Ég er orðin þreytt á þessum ritgerðarskrifum.

Nínos og Krílos hafa tjáð sig.
31v + 2d.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives