The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, January 12, 2006
 
5.Mæðraskoðun Búin

Ég fór þann 12.janúar í 5. mæðraskoðun og mamma var heima með Ævar á meðan þannig að ég fór bara ein. Það gekk allt saman vel. Þvagprufan var fín, blóðþrýstingurinn 110/60 og legið var orðið 32 sm. Þannig að það hafði á 4 vikum stækkað um 6 sm. Svo var hressilegur hjartsláttur sem kom strax í ljós. Áslaug fann meira að segja kollinn á barninu niðrí grindinni hjá mér, þótt að það væri ekki búið sð skorða sig enn, enda kannski fullsnemmt. Það var ljósmæðranemi viðstaddur og hún var mjög fín. Áslaug var eins og vanalega einstaklega indæl og spurði mikið um hvernig gengi hjá mér og hvernig börnunum liði. Henni finnst að ég ætti að fá fálkaorðuna fyrir það sem ég er að gera með börnunum hans Lazaro og á fullu í námi. Ég fór bara hjá mér. En það var voða gott að heyra þetta samt, alltaf gott að finna að maður er metinn að verðleikum. Ekki það að mér finnist ég eiga að fá fálkaorðuna. Það er nú kannski heldur mikil frekja.
Ég hringdi svo í Lazaro til Perú og sagði honum fréttirnar af litlu stelpunnar okkar. Hann er hjá mömmu sinni og búinn að sýna öllum myndirnar af okkur sem ég sendi hann með út. Svo eigum við að fara í næstu mæðraskoðun þann 9. febrúar. Þá verður Lazaro með mér.
Það er komin svona hreiðurgerðs-tilfinning í mig og ég vil fara að undirbúa og þrífa og svona. Ég fæ alltaf svona áfall þegar ég horfi á þáttinn ,,Allt í drasli” af því þá vil ég fara að ráðast á heimilið hér. Annars eigum við allt fyrir barnið, en ætlum að bæta við einni kommóðu fyrir fötin þess. Þegar hún er komin upp þá ætla ég að fara í gegnum fötin hans Ævar sem eru orðin of lítil til að sjá hvað má nota aftur og hvað ekki. Ef það er rétt að þetta sé stelpa þá kannski ganga ekki öll fötin upp. En vonandi slatti. Rosalega hlakka ég til! J
|
 
Er á lífi...en rétt svo...

Þá er ég loks snúin aftur að blogginu. Það er nefnilega búið að vera dálítið mikið að gera hjá mér. Lazaro fór til Perú á sunnudaginn var og er komin heill og höldnu til Chiclayo til mömmu sinnar og fjölskyldu. Ég er eiginlega enn þá að jafna mig, mér fannst svo erfitt þegar hann fór. Það eina sem hefur bjargað mér alveg er að mamma er búin að vera mikið hérna hjá okkur og svo hef ég bara hellt mér út í námið. Það eru aðeins 10 einingar eftir og ef ég klára þær þá get ég útskrifast með MA.gráðuna næsta júní. Ég er verið svo heppin að vera með yndislega kennara sem hafa hjálpað mér að haga því sem eftir er af náminu þannig að ég geri 4 ritgerðir en tek engin próf. Þannig að ef ég dríf þær af núna, þá má barnið koma á settum tíma og ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af próflestri eða öðru námi eftir fæðinguna. Ég er búin að læra stanslaust síðan Lazaro fór á milli þess sem ég hef eldað mat, hjálpað krökkunum með heimanámið, skipt á mörgum bleijum, keyrt mömmu í þjálfun og farið í Bónus (sem ég hata).

Lazaro lagði línurnar fyrir krakkana áður en hann fór og krafðist skilyrðislausrar hlýðni og samvinnuþýðni við mig í sinni fjarveru. Einnig var það skýrt tekið fram að öll óþægð yrði tilkynnt beint til Perú þannig að það þýddi ekkert að ætla að rasa út þegar pabbi gamli strangi væri í burtu. Þau eru búin að standa sig mjög vel greyin í að hjálpa með heimilisverkin og vera góð, enda er ég búin að lofa þeim að ef þau haldi svona áfram verði pizzuveisla á laugardaginn og að við sofum öll saman inní stofu, svona hálfgerð útileiga innanhúss.

Mamma hefur ekki brugðist frekar heldur en fyrri daginn og er búin að passa Ævar fyrir mig á meðan ég er í skólanum, sem er sem betur fer bara tvisvar í viku. Núna er hún heima með hann, því hann er eiginlega orðinn of stór til að sætta sig við að sitja lengi í kerrunni. Þetta hefur bara gengið vel.

Á morgun fer ég í mæðraskoðun og ég læt ykkur fá allar fréttir.
Nínos og Krílos,
30 vikur.

p.s. er búin að setja inn nýjar myndir, sjá ,,Meðganga II" -,,Afmæli Ævar Frh." og ,,Ævar í nóvember og desember".
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives