The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, December 16, 2005
 
Lítill áhugi!

Ég er nú bara aldeilis hissa á þessu áhugaleysi á blogginu mínu! Ég sem hélt að fólk hefði ekkert betra að gera svona rétt fyrir jól en að lesa allt um mig! Það er bara ekki ein einasta athugasemd við færslunum mínum. Maður gæti nú farið í fýlu sko. En samt sem áður, ég ætla að gefa ykkur einn séns og skrifa meira um mig og mína.

Nú, ég fór í mæðraskoðun í gær með Lazaro og Ævar í fararteskinu eins og vanalega. í fjórða skiptið held ég, og það gekk mjög vel. Þvagprufan sýndi reyndar 1+ sem getur þýtt sykur eða eggjahvítuefni í blóðinu, en var líklega vegna þess að það var lítið þvag í blöðrunni. Þá verður prufan oft aðeins öðruvísi. Ég er samt pínu stressuð af því að ég hef ekki staðið mig nógu vel í sykurbindindinu. Er eiginlega hálfsjúk í sætindi. Ég ætla að standa mig betur núna og halda í við mig. En það verður auðvitað erfiðara af því að jólin eru að koma... En blóðþrýstingurinn var 130/70, legið 26 sentimetrar og svo heyrðum við hjartsláttinn í krílinu okkar. Hún var meira segja með hiksta líka þannig að það gekk ekkert lítið á. Ég skoðaði meðgöngudagbókina sem ég hélt þegar ég gekk með Ævar og þá var ég með 28 sentimetra leg eftir 26 vikna meðgöngu. Ætli þetta þýði að þessi stelpa verði aðeins minni en Ævar? Ég vona það sko...

Ævar var með okkur og Áslaug ljósa er alveg heilluð af honum. Vill helst fá að stela honum. Svo kom Sigrún læknir líka og við spjölluðum við hana. Hún er alltaf jafn fín. Ég stefni aftur á heimafæðingu þrátt fyrir að hún hafi ekki gengið upp í fyrsta skiptið. En eins og Áslaug og Sigrún voru að tala um í gær, þá er það ekkert skrýtið þar sem þetta var fyrsta barn, óvenjuhöfuðstórt (36 sm er meðalhöfuð á nýfæddu barni en Ævar var 39 sm, það munar um það þarna niðri) og ég ekki nema 161 sm á hæð sjálf. Svo bætti ofþreytan í mér ekki úr skák. En núna vonum við bara að þetta fari allt saman betur og ég geti bara átt heima í rólegheitum.

Ég þurfti svo að fara í blóðprufu vegna rhesus-mínus þáttarins. Þá kom í ljós að ég var komin niður í 105 í járni en síðast var ég 112 og þá var ég of lág! Þannig að ég á að kaupa mér mixtúru, einhverja járnblöndu og taka hana inn einu sinni á dag. Svo var ég nú ótrúlega heppin með eitt. Ég er búin að hafa áhyggjur af meðgöngusundinu eftir áramót vegna þess að tímarnir skarast akkúrat á við tímana uppí háskóla sem ég verð í þá. Ég sá fram á að þurfa að hætta í sundinu og leist illa á blikuna því ég vil ekki verða undirlögð af grindarverkjum fyrir fæðinguna. Áslaug spurði mig hvort að ég hefði áhuga á að taka þátt í rannsóknarverkefni hjá ljósmóðurnema sem er að útskrifast um áhrif nálastungumeðferðar á grindarverki ófrískra kvenna. Ég færi þá tvisvar í viku í mánuð og myndi byrja í janúar, akkúrat þegar ég kemst ekki í sundið. Skilyrðið fyrir að taka þátt í þessu er einmitt að vera ekki í nokkru öðru á sama tíma, hvort sem það er meðgöngusund eða jóga. Er ég ekki heppin?

Svo að lokum, þá verður hann Ævar minn 1 árs á morgun! Ég trúi þessu bara varla! Maður er alveg ótrúlega stoltur af honum (og sjálfum sér að hafa lifað af þetta fyrsta ár). Ég hlakka til á morgun.
Nínos og Krílos hafa tjáð sig.
26 vikur samkvæmt sónar en 27 vikur samkvæmt mínum talningum.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives