The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, November 04, 2005
 
Afsakið Biðina...

Jæja, þá er ég komin með fréttir, svifasein eins og vanalega að blogga. En það mun brátt breytast vegna þess að ég er komin mðe nýja fartölvu sem mun verða með þráðlaust internet. Geri mér vonir um að verða þá duglegri að fara á netið og blogga og svara tölvupósti og slíku.

Við fórum í sónarinn á miðvikudag og það kom allt alveg eðlilega út sem betur fer. Það var auðvitað stórkostlegt að sjá krílið loksins og hvað það er orðið rosalega stórt, eða réttara sagt hún vegna þess að þetta er stelpa!!! Við erum alveg í skýjunum með þetta. Hjúkkan sýndi mér svona þrjú hvít strik sem þýða að um stelpu sé að ræða, en þetta er svona 95-98% öruggar niðurstöður að hennar sögn. Hún setti mig á 22.mars, en samkvæmt mínum útreikningum er það 17.mars. Annars væri 19.mars flott því það er afmælisdagur pabba hans Lazaro.

Svo var góðvinur minn og tölvugúrú hann Ásgeir að setja inn myndir af Ævari litla sem voru teknar í júlí. Ég er búin að setja link inn á þær hérna fyrir neðan undir "Ævar í Júlí".
|
Monday, October 31, 2005
 
Stóra stundin að nálgast...

...og maður getur varla beðið. Ef þið áttið ykkur ekki þá er ég að tala um sónarinn þann 2.nóv. eða núna á miðvikudaginn. Við Lazaro erum að fara á taugum af spennu. Ég lofa því að setja inn sónarmyndir og svona eitthvað þegar þetta er búið. Er nefnilega með móral yfir því að vera ekki búin að setja inn snemmsónarmyndirnar sem voru teknar fyrir löngu síðan. En ég set þær þá inn líka. Við erum svo forvitin, okkar langar rosalega mikið að fá að vita kynið. Auðvitað vonar maður líka að allt sé á sínum stað og svoleiðis. Maður gerir náttúrulega bara ráð fyrir því að eignast heilbrigt barn, svo mikil er frekjan. En við tökum því sem kemur, svoleiðis er það bara.

Lazaro er byrjaður í sjúkraþjálfuninni og fór nú eiginlega bara hálfhræddur. Ég var nefnilega í því að stríða honum og sagði að hann yrði settur í vélar sem myndu teygja hann, tosa, beygla, brjóta saman, lengja, hrista og skekja í allar áttir. Ég var auðvitað bara að bulla en þetta reyndist nærri sannleikanum en maður hefði haldið. Nema að það er enginn sársauki í þessu. Sjúkraþjálfarinn nuddar hann og setur í ýmsar stellingar til þess að spenna og slaka til skiptis á vöðvunum. Svo er hann reyndar settur í vél sem teygir á bakinu á honum með það í huga að útbungunin gangi til baka. Ansans, nú get ég ekki bloggað meira, Ævar er orðinn reiður... Svona gengur þetta nú...

Nínos og Krílos
20v + 4d.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives