Það Nýjasta...Þá er ég búin að fara með Ævar í 10 mánaða ungabarnaeftirlitið. Hann er orðinn 76 cm og hefur því lengst um 2,5 cm á 2 mánuðum. En hann hafði bara þyngst um 100 grömm sem er frekar lítið, hann er því ekki nema 9 kíló og 960 grömm, sem er náttúrulega ekkert lítið, en hann mætti hafa bætt aðeins meira á sig. Annars sagði læknirinn að hann væri náttúrulega svo aktívur og búinn að lengjast svo mikið að þetta væri ekkert skrýtið. Hann á samt að koma aftur eftir mánuð í vigtun, bara svona til að tékka á honum. Hann byrjaði að ganga litli kallinn á miðvikudaginn 12.október og við erum ekkert smá stolt af honum. Hann skríður auðvitað mest enn þá en er farinn að ganga á hverjum degi eitthvað án þess að halda sér í neitt!!! Er hann ekki mikil stjarna? Og þegar hann gerði þetta fyrst þá vantaði viku upp á að hann væri 10 mánaða. Ég held að krakkarnir geri honum gott og hafi mjög örvandi áhrif á hann, honum finnst þau svo skemmtileg og flott að hann vill auðvitað vera eins. Eltir þau út um allt eins og lítill hvolpur.
Annars, nóg af monti í bili. Ég er búin að vera virkilega veik í meira en viku, með einhvern viðbjóðslegan vírus sem lagðist á raddböndin. Var bara alveg raddlaus í þónokkurn tíma. Svo átti Charo afmæli og hún var ofsalega ánægð með það sem við gáfum henni, gsm. Það var það eina sem hún vildi. Enda orðin 13 ára pæja, sem mér finnst ótrúlegt því hún var bara 11 ára þegar hún kom til Íslands. Þetta líður alltof fljótt.
Lazaro er búinn að fá niðurstöður úr sínu veikindaferli og hann er með mikið slit í baki en það sem er verst er að hann er við það að fá brjósklos. Þetta er ekki orðið svo slæmt að hann þurfi að fara í aðgerð, en hann verður að fara í sjúkraþjálfun, þá gæti þetta gengið til baka. Hann er með útbungun í brjóskinu eða eitthvað svoleiðis. Það er ekki nema von að hann sé búinn að vera að drepast úr kvölum í margar vikur. Hefur alltaf fengið í bakið af og til en þetta hefur keyrt um þverbak núna undanfarið. Það var eins gott að ég dreif hann til læknis, annars hefði þetta á endanum farið illa.
Ég er búin með 4 af 6 ritgerðum sem ég þarf að klára á þessari önn og er bara nokkuð ánægð með þann árangur. Þessar tvær sem eftir eru verða reyndar erfiðastar og lengstar, en það er samt góð tilfinning að vera búin með meirihlutann.
Mamma er í smá ferðalagi þessa helgi með vinum og kemur ekki aftur fyrr en á morgun. Maður saknar hennar svo mikið eitthvað, húsið er svo tómlegt þegar maður veit að hún er ekki uppi.
Svo að lokum þá er ég farin að telja niður dagana í 20 vikna sónarinn sem verður 2.nóvember. Við Lazaro getum ekki beðið eftir því að fá að sjá krílið. Er það stelpa eða strákur? Hvað haldið þið? Ég hef alltaf haldið að ég ætti bara eftir að eignast stráka, Lazaro heimtar að þetta sé stelpa, en hefur samt einhverja dularfulla tilfinningu þess að það gæti verið strákur. Núna eru hreyfingarnar byrjaðar á fullu og þá verður þetta alltaf miklu raunverulegra og skemmtilegra. Ég er nú ekki enn þá byrjuð í þessari vatnsleikfimi en verð að drífa í því.
Nínos og Krílos hafa gefið skýrslu,
19v + 2d.
Nýjar Myndir Loksins!Farið undir Strákurinn Minn 8 hérna neðar til hægri til að sjá nokkrar nýjar myndir. Druslaðist loksins til þess að gera þetta.
Af okkur er allt sæmilegt að frétta en ég skrifa betur aðeins seinna. Þá verður Ævar líka búinn að fara í 10 mánaða skoðun sem er á eftir.