The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Monday, October 10, 2005
 
Nóg að gera hér...

Nú er eins og vanalega allt á fullu á þessum bæ. Ég er byrjuð á 4.ritgerð af 6 sem ég þarf að skila af mér á þessari önn og svo er eitt próf í desember. Vil bara ljúka þessu öllu af sem fyrst. Lazaro er búinn að vera algjör Lazarus, alltaf með verki og ónot einhvers staðar. Við fórum til læknis af því hann er að drepast í verkjum í bakinu. Fór í röntgen og við eigum eftir að fá úr því. Vonandi eru þetta bara bólgur en ekki brjósklos eða eitthvað slíkt.

Mamma hefur líka verið mjög veik, hún fékk flogakast um daginn sem hefur nú aldrei gerst áður og manni varð nú bara ansi um þetta satt best að segja. Það er nú alveg nóg komið í bili af veikindum og áföllum takk. En henni líður bærilega núna og er komin á flogalyf sem eiga að koma í veg fyrir endurtekningu. En hún má ekki keyra í kannski heilt ár og það var mjög erfitt fyrir hana að þurfa að sætta sig við, skiljanlega.

Við erum nú bráðum að fara í Afmælisvertíðina Miklu eins og ég kalla það, en Rosario á afmæli í október, Kelly í nóvember, Ævar í desember, janúar er frí, Lazaro og José í febrúar, nýja barnið á að fæðast í mars, og svo er ég sjálf í apríl. Það er bara nánast allur veturinn undirlagður. Ég hlakka líka mikið til þegar Ævar á eins árs afmæli, það er svo sérstakt eitthvað.

Af Ævari er það að frétta að hann er bara alveg frábær. Er orðinn rosasjálfstæður og uppgötvar nýja hluti (mestmegnis til að skemma) á hverjum degi. Honum gengur frábærlega að sofa núna, en það var orðið vandamál á tímabili með svefnmynstrið hjá honum, hann var stöðugt að vakna. Svo er eins og hann sé alveg við það að fara að ganga. Hann er löngu farinn að ganga meðfram öllu en ekki að sleppa. Svo í kvöld þá sleppti hann og gekk eitt skref! Vá, stór stund. Og hann er ekki einu sinni orðinn 10 mánaða. En svo er ekkert víst að hann geri þetta aftur í bráð. Litla dýrið sem verður bráðum stóri bróðir. Ótrúlegt.

Svo eru forledrafundir á föstudaginn í Langholtsskóla og þá mun "the truth be revealed" um hverjir haga sér vel í skólanum og annað slíkt. Ég er spennt að heyra í kennurunum.

Bless í bili,
Nínos og Krílos.
17v + 4d.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives