Nánari útskýringarJæja. Þá er maður eflaust búin að leyfa þessu að síast inn hjá aðdáendaklúbbnum varðandi óléttuna og núna koma svona aðeins meiri smáatriði. Við Lazaro vorum búin að vera að tala um hvenær við vildum eignast næsta barn, en við vorum bæði sammála því að við vildum annað. Ekki vorum við nú alveg búin að fastnegla tímasetningu á þessu en í júní vorum við dálítið kærulaus, svona hugsandi að það skipti engu stórmáli ef eitthvað gerðist. Ég hef sko bara notað þessa náttúrulegu aðferð að forðast "hættulegu" dagana, en í þetta skipti tókum við semsagt séns á svona "mátulega" hættulegum degi. Þannig að þetta var ekki slys en ekki beint planað heldur. Ef þið skiljið hvað ég á við.
Svo fórum við í snemmsónar þann 4.ágúst og þá var ég akkúrat komin 8 vikur samkvæmt mínum útreikningum. Ljósan sagði mér reyndar að ég væri komin 7 vikur og 2 daga, samkvæmt stærð fóstursins, sem er bara bull. Maður telur vikurnar frá fyrsta degi síðustu blæðinga sem voru nákvæmlega þann 10.júní síðastliðinn. Ég merki við í dagatalið!!! Fóstrið var 1 sentimeter og í laginu eins og lítil kúla, öfugt við Ævar sem var eins og ormur. Það var yndislegt að sjá þetta pínulitla hjarta slá :) Ævar var nú ekki nema 8,9 mm þegar ég var komin 8 vikur með hann þannig að ég veit þetta betur en þessi ljósa. Hún var líka frekar þurr á manninn svona og fljót að afgreiða okkur.
Krakkarnir ætluðu ekki að trúa okkur þótt að við sýndum þeim sónarmyndina hvað eftir annað. Þau bara neituðu að kaupa þetta. Stelpurnar voru samt rosalega ánægðar og liggja nú á bæn að þetta verði stelpa. José sýndi þessu lítinn áhuga, enda dauðhræddur um að þurfa að passa eða eitthvað svoleiðis. Lífið er svo erfitt hjá honum... Sem ég skil nú eiginlega ekki þar sem hann hefur afskaplega sjaldan þurft að passa Ævar og það hefur þá bara verið í kannski hálftíma eða svo, með systrum sínum.
Svo að lokum: Hulda og Auður! Þetta er ástæðan fyrir því að ég sveikst um að fá mér í glas á kveðjukvöldinu hennar Írisar. Ég var þá komin 3 daga fram yfir og var nokkuð viss um að svona væri komið. Þess vegna þorði ég ekki að taka neinn séns. Vonandi verður mér fyrirgefið.
Nínos og krílos,
8v + 6d.
Hér kemur stóra tilkynningin sem ég lofaði:
Ég er ólétt aftur!!!