The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, July 01, 2005
 
Karíus og Baktus

Það er nú með ólíkindum hvað tannlæknar eru dýrir! Ég sá það strax þegar krakkarnir komu hingað að þau þyrftu að fara til tannlæknis bara til þess að láta athuga allt. Vitandi það að slíkt er óheyrilega dýrt, þrátt fyrir að Tryggingastofnun endurgreiði ca. 50% fyrir börn, þá fór ég með eldri krakkana á tannlæknadeild Háskólans, þar sem nemar fengu að spreyta sig á þeim (undir eftirliti kennara auðvitað). Það var hreinsaður tannsteinn og gert við 10 skemmdir hjá José. Ég vildi bara benda ykkur á það að það kostar aðeins 2500 fyrir hvert skipti fullorðna að fara þarna í Tanngarð í Vatnsmýrinni og er ókeypis fyrir börn. Auðvitað er þetta ekki sama þjónusta og á venjulegri tannlæknastofu, það er td. bara tekið á móti fólki á miðvikudögum og er bara opið á skólatíma, þ.e. á veturna. En þeir gera við skemmdir og hreinsa tennur og taka myndir. Það er bara ef það er eitthvað rosalega flókið dæmi sem þeir kannski vísa fólki frá. Ég bara mæli með þessu, sérstaklega fyrir fátæka námsmenn og fleiri sem berjast í bökkum. Það munar ekkert smá um þetta. Kelly átti að fara næst en það fannst ekki tími fyrir hana þannig að ég ætlaði með hana núna í haust þegar opnar aftur. En viti menn, hún fær rosa tannpínu um daginn og ég neyðist til þess að fara með hana til barnatannlæknis. Þá kemur í ljós (mér til mikillar skelfingar) að barnið er ekki með eina einustu heila tönn í munninum, og sumar svo alvarlega skemmdar að það þarf hreinlega að fjarlægja þær! Það þarf samanlagt að taka úr henni 6 barnatennur sem eru rotnar niður í bein, og gera við allar hinar tennurnar. Tannlæknirinn tilkynnti mér að þetta myndi samanlagt kosta um það bil 160 þúsund krónur og væri afleiðing margra ára vanrækslu. Ég var sko fljót að sverja af mér alla ábyrgð á þessu þar sem þau hafa ekki verið hjá mér nema í ár og Lazaro hefur verið hér á Íslandi síðustu 5 árin. Við fáum auðvitað um helming endurgreiddan en það er samt 80 þúsund kall!!!!!!!!!!! Við erum í sjokki yfir þessu. Hún er búin að fara tvisvar og það kostaði 20 þúsund í hvort skipti. Svo fer hún næst á mánudaginn kemur og það verður örugglega annar 20 þúsund kallinn. Ég bara næ ekki þessu verðlagi. Eru efnin sem þeir nota svona dýr eða eru þeir að borga niður tækin sem þeir hafa keypt á stofurnar eða eru þeir bara svona ósvífnar? Hvað segið þið?
|
Wednesday, June 29, 2005
 
The House of Bodily Odors

Nú er svo komið að ég hef fengið nóg! Við Lazaro og krakkarnir vorum að spila í gær (ég var að reyna að kenna þessum villimönnum Olsen Olsen við dræmar undirtektir) og ég var alltaf af og til að furða mig á því hvað það væri einkennileg lykt í loftinu og lyfti Ævari reglulega upp til þess að athuga hvort að hann væri búin að gera eitthvað skuggalegt í bleijuna sína. En það var ekki svo.

Eftir spilin förum við José í sjómann í fyrsta skipti í nokkra mánuði, en hingað til hafði ég unnið hann í hvert sinn, enda upphandleggirnar á honum með álíka ummál og eldspýta. Needless to say, þá vann hann mig eins og skot. Ég heimtaði að sjá handleggina og þá kom bara í ljós að hann er allt í einu kominn með svaka vöðva! Þetta er víst aldurinn, hann er að stækka svo rosalega. Var 158 sm þegar hann kom til Íslands síðasta sumar, þann 29. júní 2004, en er núna orðinn 166,5 sm og í dag er akkúrat 29.júní! Það er enginn smá vöxtur á einu ári!

En þegar ég var að mæla hæðina á honum finn ég loksins hvaðan þessi einkennilega lykt kemur. Þvílík táfýla dauðans!!! Við nánari skoðun kom í ljós að fleiri fjölskyldumeðlimir höfðu "gleymt" að fara í bað í einhvern ónefndan tíma. Þetta bara sýnir sig að ef maður fylgist ekki stíft með þessu liði og rekur það í bað (*hrollur* ég er sko 1-2 á dag í sturtu manneskja) þá á það til að gleymast með svona líka hrikalega illa lyktandi afleiðingum.

Nefið á mér þarf áfallahjálp.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives