Ég ætlaði nú að vera búin að sitja inn skírnarmyndir, en ég hef lent í svo miklum vandræðum með picturetrail.com það er eins og það virki ekki almennilega. Ég get ekki uploadað myndirnar! En þær eru reyndar mjög lélegar því miður og það er vegna þess að ég notaði gömlu myndavélina (er núna komin með stafræna) og rafhlaðan var orðin svo léleg að myndirnar eru glataðar eftir því. Ég auglýsi því hér með eftir afritum af myndum hjá þeim sem voru viðstaddir og notuðu myndavél. Ég er miður mín út af þessu. Bjögga! Roald! Aggi! Hjálp! Voruð þið ekki með myndavélar í gangi?
Annað er að frétta af mér varðar MA-ritgerðina. Núna er leiðbeinandinn minn að fara yfir hana í síðasta skipti. Hún lætur mig svo fá hana núna eftir helgi til færa inn leiðréttingarnar og svo verður hún send á anna kennara sem fer líka yfir hana til einkunnargjafar. Ég verð SVO glöð þegar þetta er búið! Ég vil sko ekki hafa þetta yfir höfðinu þegar ég byrja í kúrsum næsta haust. það verður alveg nóg út af fyrir sig. Einn vetur í viðbót í útskrift!! Jibbí!!!!!!!!!!
Er búin að setja inn nokkrar nýjar myndir undir Strákurinn Minn 7. Síðan koma næst skírnarmyndir.