The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Tuesday, May 31, 2005
 
Þá er maður loksins komin í sumarfrí frá þessu grunnskóladæmi!!!! Ég hef beðið eftir þessu eins og jólunum hérna í gamla daga. Ég er svo gjörsamlega búin að fá yfir mig nóg af því að keyra tvisvar á dag vestur í bæ og eyða2-4 klst. á dag í heimavinnu fyrir 2., 6. og 7. bekk að ég get ekki lýst því. Það voru skólaslit í dag og ég var rosalega stolt af krökkunum. José fékk verðlaun fyrir að vera duglegastur í sínum bekk og fyrir að hafa sýnt miklar framfarir. Ég var að springa úr monti þegar hann gekk upp við lófatak og tók við bókinni sem hann fékk. Þau fengu líka öll mjög fínar einkunnir, sérstaklega með tilliti til þess þau töluðu ekkert þegar þau byrjuðu í haust. Kelly er farin að lesa á íslensku og þeim hefur öllum fairð ótrúlega fram. Það eina sem ég var hundóánægð með var að José hefur mætt of seint 13 sinnum!!! Ég hef lagt metnað í að fara með þau snemma í skólann þannig að þau mæti alltaf tímanlega og svo er hann bara að drolla og leika sér að því að koma of seint. Ég hundskammaði hann fyrir þetta og pabbi hans líka.

Þeir sem eru orðnir óþreyjufullir að bíða eftir skírnarmyndum verða bara að bíða aðeins lengur vegna þess að ég er enn ekki búin að klára filmuna og þetta er ekki stafræn myndavél. Þetta kemur samt allt með kalda vatninu.

Þessa helgi tók ég bílskúrinn hennar mömmu algerlega í gegn en hann var fullur af því sem við köllum hér á vanrækslusyndum í formi ótrúlegs drasls og húsgagna. Ég mokaði þessu út (og er reyndar búin að vera að leggja grunninn að þessu síðan síðasta sumar og smá losa út dót) sem eftir var og málaði síðan bílskúrinn. Lazaro var að vinna alla helgina en Rosario hjálpaði mér rosalega mikið. Þetta er nefnilega alveg rosalega flottur bílskúr, parketlagður og innréttaður eins og íbúð. Núna er hann orðinn framlenging á íbúðinni okkar því að mamma sagði að ef við tækjum hann í gagn fyrir hana þá mættum við hafa hann til umráða svo lengi sem við búum í húsinu. Við Lazaro og Ævar erum því búin að fara með rúmið okkar úr stofunni HALLELÚJA og sofum þarna úti. Þar að auki getur Lazaro spilað á gítarinn þegar hann vill og ég ætla að flytja tölvuna út og hafa þarna skrifstofuaðstöðu.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives