Stjarna er Fædd!!!Þau ykkar sem hafa fylgst með hinum ógleymanlegu þáttum "America's Next Top Model" verðið örugglega ekki fyrir vonbrigðum með ykkar ástkæru Nínos. Það var haft samband við mig frá Eskimo models og ég beðin um að leika í auglýsingu fyrir Fréttablaðið sem síðan birtist síðan á föstudaginn var. Ég fór náttúrulega á staðinn og ætlaði í eitt skipti að sanna það að þessar veimiltítut í áðurnefndum þáttum séu bara heimskar wannabe fyrirsætur sem gera stórmál úr einföldum hlut eins og að sitja fyrir á einni skitinni mynd. Piece of cake, right?
NOT RIGHT!!! Það kom nefnilega í ljós að þetta er víst ekki eins eðlilegt og einfalt of ykkar ástkæra hélt og er myndin sem þið getið skoðað hér á linknum til hægri (undir America's Next Top Model) ávöxtur erfiðis míns sem ofurfyrirsætu. Stirnað bros, hræðilegt, appelsínugult hár og örvæntingarfullt augnaráð. Dómnefndin færi ekki mjúkum höndum um mig, það er víst. Janet Dickinson og Jay myndu gráta. Jafnvel Tyra myndi reka mig heim.
Búhú...enn ein opinber niðurlæging í hattinn. Það eina góða var að ég fékk vel borgað.
Hver vill dýrabúr?Hér með auglýsi ég minn vilja til þess að losna við slatta af dýrabúrum til þeirra sem áhuga hafa, gegn vægu gjaldi. Um er að ræða:
-lítið, bleikt og kringlótt hamstrabúr
-tvö meðalstór naggrísa-eða kanínubúr (mjög vel farin)
-kringlótt fuglabúr í meðalstærð með fínum rimlum
-mjög stórt, ferkantað fuglabúr með grófum rimlum, jafnvel fyrir stærri páfagauka en gára
-töluvert minna, ferkantað fuglabúr með grófum rimlum
-pínulítið fuglabúr í laginu eins og hús, eiginlega bara fyrir þá sem leyfa fuglunum sínum að fljúga um því það er grimmdarlega lítið.
-hefðbundið, ferkantað fuglabúr með fínum rimlum
Þeir sem hafa áhuga vinsamlega skrifið mér á
kvaranita@hotmail.com eða hringið í 892-2176. Svona dýrabúr eru rándýr út í búð þannig að þetta er kjörið tækifæri fyrir ykkur sem vantar. Er líka með ýmsa fylgihluti fyrir dýrin eins og matarbox og hlaupahjól o.s.frv.
Bestu kveðjur,
Nínos.