Komnar inn myndir hérna til hliðar undir Strákurinn minn!
Mér þykir leitt að hafa ekki brugðist við neinum árnaðaróskum eða látið frétta af mér. Þetta var bara svo ógeðslega erfið fæðing þó ekkert hafi verið að, þá tók þetta svo langan tíma að ég var bara veik í marga daga á eftir. Það er talið að þetta hafi gengið svona brösulega vegna ofþreytu fyrir fæðingu. Ég náði aldrei að slaka á og var föst með 3 sm í útvíkkun í 27 klst hérna heima en ógeðslega verki samt sem áður. Á eftir að skrifa niður fæðingarsöguna síðar. Þannig að fyrir þá sem ekki vita nú þegar þá eignuðumst við Lazaro strák þann 17. desember og hann var 17 merkur og 54 sentimetrar. Hann heitir Ævar Nunez Kvaran og það tók mig 51 klst að koma honum í heiminn! Er að reyna að setja inn myndir en það gengur eitthvað illa.
Kveðja,
Nínos.