Ekkert Bólar á Bumbubúanum Enn!
Jæja, það kom víst ekkert barn þann 7.desember svo að tíminn er farinn að líða ansi hægt. Ég er búin að missa aftur þessi tvö kíló sem ég bætti á mig. Ég fór ein í mæðraskoðun þann 9.desember af því að Lazaro var í vinnunni. Ég var svolítið stressuð af því að mér fannst eins og hreyfingar barnsins hefðu eitthvað minnkað undanfarna daga. Það er rosalegur munur á milli morgna og kvölda, krílið er mun virkara á kvöldin en mér fannst samt skrýtið að finna bókstaflega enga hreyfingu fram eftir degi. Síðan fannst mér eins og neðri hluti kúlunnar væri stundum bara eins og hálftómur einhvern veginn og þá fór ég að óttast að barnið hefði kannski afskorðað sig eða eitthvað þvíumlíkt.
Þegar ég kom uppá Mæðravernd þá skoðaði önnur ljósmóðir mig af því að Áslaug var í fæðingu. Þessi ljósa var alveg ofsalega blíð og góð við mig og talaði mikið um krakkana. Mig grunar að Áslaug sé eitthvað búin að segja frá minni sögu þarna uppfrá, það var eins og hún vissi um þetta. Það finnst öllum svo sérstakt að ég hafi tekið að mér þrjú börn verandi þetta ung sjálf.
Alla veganna, þá reyndist ótti minn ástæðulaus. Blóðþrýstingurinn var 130-75, hjartsláttur barnsins mjög fínn, legið búið að stækka um einn sentimetra, komið upp í 41 og barnið vel skorðað. Hún sagði meira að segja að kollurinn væri kominn langt niður og það gæti útskýrt af hverju mér fyndist bumban svona tóm neðst, því ég fyndi ekki eins vel fyrir höfðinu og áður. Með hreyfingarnar sagði hún að nú væri barnið bara orðið svo vel þroskað að það tæki miklu lengri lúra en áður. Þannig að ég fór nú bara alsæl út og var í góðum gír það sem eftir var dags.
Það er erfitt að bíða og margir að hringja í mann til að athuga hvort barnið sé komið. Meira að segja þótt við séum búin að segja öllum að þeir séu á lista og við hringjum í þá. Þetta virkar stundum svolítið stressandi á mig en ansi þætti manni leiðinlegt ef enginn hefði hringt! Er orðin mjög óþreyjufull að fá að halda á barninu. Þetta er alveg komið nóg af óléttu í bili.
Nínos og Hlunkos
teljandi dagana
40 vikur og 3 dagar.