The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Sunday, November 07, 2004
 
7. Mæðraskoðun Búin

Ég tók próf um daginn í þessum eina kúrs sem ég er að taka í Háskólanum. Það gekk bara glimrandi vel og ég fékk 8,9. Var samt ekkert þægilegt að taka það vegna þess að við vorum í stofu í Lögbergi þar sem eru bara svona armaborð á stólunum sem eru eiginlega ekki að passa yfir bumbuna á mér lengur.

Það er allt að smella saman hérna heima smám saman. Við erum búin að redda dýnu í vögguna, komin rúmföt, sæng og svæfill handa þessari elsku og svo erum við búin að fá gefins barnabílstól og barnakerru sem má nota fyrir 0-3 ára! Ég ætlaði mér nú aldrei að kaupa vagn né kerru, bara nota Maya-sling sem ég keypti þarna um árið á Internetinu þannig að við sjáum til hvað gerist í framtíðinni. Ég sé mig ekki í anda nota þetta mikið svona fyrst alla veganna. Ég hef svo mikla trú á að halda stöðugt á barninu þannig að það sé í snertingu við móður sína nánast non-stop eins og í móðurkviði. Slík börn eru miklu værari og öruggari. Það hafa rannsóknir sýnt. Tel enn þá niður vikurnar.

Það eru farnir að æsast leikar hér á bæ svo um munar. Ég bara bókstaflega er að springa! Kúlan hefur stækkað svo mikið að mér krossbregður í hvert sinn sem ég geng framhjá spegli eða glugga og sé hliðarsvipinn á mér. Enda eru hreyfingarnar kraftmiklar eftir því. Sérstaklega til hliðar hægra megin og ofarlega. Alveg upp í rifbeinum. Þetta er samt mjög sjaldan sársaukafullt. Það er samt rosalega erfitt að sofa af því að ég get svo illa snúið mér, þótt ég sé með lánað snúningslak og það hjálpi, þá vakna ég alltaf til að breyta um stellingu. Það gerist sko ekki sjálfkrafa!

Þurfti að fara ein á foreldrafundi varðandi krakkana í Landakoti og svo tók við viku vetrarfrí hjá þeim þannig þau voru heima. Mér finnst það eiginlega betra. Þá þurfti ég ekki að keyra þau á hverjum morgni og sækja í eftirmiðdaginn. Þau fengu öll mjög góða umfjöllun í skólanum og því var maður voða ánægður með þessi grey. Þau eru rosalega dugleg og mér þykir svo ótrúlega vænt um þau. Þau eru líka orðin óþreyjufull að eignast nýtt systkini. Þetta er svo spennandi fyrir okkur öll. Lazaro er farinn aftur að vinna og þess vegna varð ég að fara ein á fundinn. Mamma ætlar að reyna að keyra þau í skólann þegar barnið kemur og á meðan ég er að jafna mig. En það er ekkert auðvelt fyrir hana svona fötluð eins og hún er.

Jóhanna er alltaf að gauka einhverju að manni handa barninu og ég sver það, þetta gerir bara biðina Jæja, þá er 7. mæðraskoðunin búin og hún gekk alveg frábærlega. Ekkert prótín eða sykur í þvaginu, blóðþrýstingurinn 115/60 (sem er nú það lægsta sem ég hef mælst með) og barnið enn þá vel skorðað eins og áður. Lazaro fékk meira að segja að finna hvernig kollurinn liggur í fæðingarveginum. Þetta var meiriháttar upplifun og Áslaug er alltaf svo hvetjandi við mig. Hún sagði að ég væri bara algjör súperkona. Það er nú ekki svo slæmt hrós. Henni finnst bara svo aðdáunarvert að ég láti þetta allt saman ganga upp, Mastersnámið, börnin, mömmu veika. Lazaro veikan og svo meðgangan. Þetta er dálítið töff náttúrulega en ég er svo hamingjusöm samt að ég þakka Guði á hverju kvöldi fyrir gjafirnar sem hann hefur fært mér í svo mörgum formum. Það sem kom á óvart í mæðraskoðuninni var að Áslaug sagðist telja að þetta væri bara nokkuð stórt barn. Hún þreifaði alla bumbuna og mældi legið sem er orðið 37 cm! Ég var búin að lesa á Internetinu að meðalbarn væri svona 2,5 kíló á þessum tímapunkti en Áslaug sagði að þetta barn væri örugglega orðið svona 3 kíló! Ég var svo furðulostin og ánægð. Eiginlega soldið montin sko. Hún heldur að ef ég geng með 40 vikur þá verði hlunkurinn svona 16 merkur eða svo! Ég var nú ekki nema 13 og hálf sjálf þannig að við sjáum til. En þetta voru spennandi frétttir og útskýra líka hvers vegna manni finnst maður vera orðin svona þungur á sér. Er búin að bæta á mig 3 kílóum aftur af þessum 7 sem ég missti upphaflega þannig að ég er enn þá 4 kílóum léttari en ég var áður en ég var ófrísk og ég er komin 8 mánuði á leið! Geri aðrir betur. Annars sagði Áslaug að það væri nú allt í lagi að þyngjast eitthvað sko...

P.s. þeir sem eru búnir að fá nóg að því að lesa um ekkert nema mæðraskoðanir og meðgöngur verða bara að sætta sig við að þetta er það sem líf mitt snýst um núna og hananú!!!

Nínos og krílos,
35v + 5d.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives