Veikindi eru leiðinleg!
Þá er maður að reyna að taka sig í gegn hérna og blogga meira, en það hefur bara verið svona frekar mikið í gangi af verri sortinni þó að margt hafi auðvitað gengið frábærlega. Mér og barninu líður vel og það skiptir náttúrulega miklu máli núna. Það er svo greinilega nýtt tímabil hafið hjá manni á þessari meðgöngu. Ég er aðeins búin að bæta á mig (um 2 kíló) þannig að núna er ég bara 5 kílóum léttari en ég var áður en ég varð ófrísk. Er nú bara ansi sátt við það. Samkvæmt netupplýsingum ætti krílið (sem er nú eiginlega ekkert kríli lengur satt best að segja) að vera orðið svona 37 sm á lengd og um 1,5 kíló. Ég á erfitt með að sofa núna því mér verður svo illt í bakinu og svo er svo erfitt að snúa sér í rúminu. Allt þetta svæði (grind, mjaðmir, lífbein, u name it) er svo aumt. Ég á enn þá bágt með að trúa því að ég sé að fara að eignast barn en þetta verður raunverulegra með hverjum deginum. Ég og Lazaro fórum í dag og versluðum aðeins handa krílinu, keyptum þrjár samfellur og svo svona vetrarsamfesting (til að vera í úti). Þetta gaf okkur báðum ótrúlega notalega tilfinningu. Samfestingur er ferlega sniðugur því að han er með svona spes rennilásum að neðan þannig að maður ræður hvort er með skálmum eða bara eins og poki. Ferlega sætt eitthvað.
Krakkarnir standa sig bara með prýði í skólanum. Það var foreldrafundur í gær og þau fengu öll alveg frábæra umfjöllun. Eina svona "vandamálið" ef svo má kalla, er að Kelly er að fara 5-6 sinnum á dag á klósettið svona bara til að taka sér pásu. Þetta gengur nú ekki alveg en kennarinn þorði ekki annað en að leyfa henni að fara ef ske kynni að hún réði ekki við þetta. En ég sagði henni að segja bara nei við hana því hún fer ekki svona oft á klóið hérna heima. Svo töluðum við um þetta við hana þegar við komum heim. Það gengur bara heilmikið á í félagslífinu hjá þeim eldri. Charo er búin að fara í heimsókn til vinkvenna, fer í bekkjarpartý á morgun, og svo var bekkjarkvöld hjá henni um síðustu helgi. José er einmitt líka að fara á bekkjarkvöldið sitt í næstu viku og svo fer hann að æfa fótbolta bráðum.
Ég kíkti um daginn niður í vinnu og þá var hún Ásgerður í vinnunni búin að prjóna handa krökkunum vettlinga og sokka, alveg meiriháttar fallega og svo pínulitla peysu (opna að framan), húfu, vettlinga og sokka handa litla krúttinu sem kemur bráðum. Lazaro varð svo um þetta þegar hann sá þetta að hann bara táraðist. Það var pínulitla húfan held ég sem fór alveg með hann. Þetta var bara of sætt held ég.
Af leiðinlegri hlutunum þá er mamma mín ekki búin að vera við góða heilsu í langan tíma og fékk núna um daginn mjög slæmar og alvarlegar fréttir varðandi heilsufar sitt sem komu mér töluvert úr jafnvægi. Ég vil samt ekkert tala um það hér hvað amar að henni, ef ske kynni að henni líkaði það ekki. En þetta er ekki gott mál. Síðan hefur Lazaro bara verið góður í auganu sem betur fer en þess í stað orðið svo veikur í maganum í svo langan tíma að ég er farin að halda að hann sé bara með magasár, hann er svo kvalinn og getur ekkert borðað. Enda er hann búin að missa þessi aukakíló sem fóru svo í hann. Er komin úr 82 í 77 kíló. Mæli samt ekki með þessari aðferð til að megrast. Hann sefur illa á nóttunni og þá sef ég líka illa vegna þess að ég sef orðið svo laust útaf barninu að ég vakna við hverja biltu og hljóð.
En af skólanum er það að frétta að ég er búin með fyrsta uppkast af Stephen King ritgerðinni minni og er það mikill léttir. Núna er bara að drífa sig í að fínpússa hana svo að ég geti byrjað á seinni ritgerðinni (sem ég veit ekkert hvað á að fjalla um) áður en það verður of seint. En það getur verið svolítið erfitt að fínpússa þegar maður nær aldrei í leiðbeinandann sinn...urrr...
Bið að heilsa í bili,
Nínos og krúttos,
30v + 3d.