The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Sunday, August 08, 2004
 
Skólinn Blessaður Skólinn

Ég held að ég hafi verið búin að minnast á það hér fyrir neðan einhvern tímann að ég er búin að þaulskipuleggja þessa komandi önn í Háskólanum. Það veitir víst ekki af vegna þess að litla barnið á að koma í heiminn 7.desember og því finnst mér það nokkuð augljóst að ég taki ekki nein desemberpróf. En MA námið (helvíti er flott að geta sagst vera í MA námi, er svona meira stæll yfir þessu en BA náminu) er nú sem betur fer tiltölulega sveigjanlegt. Maður þarf að klára 60 einingar, þar af verða 30 einingar að vera í formi kúrsa, 15 einingar (lágmark) í formi lokaritgerðar og 15 einingar getur maður tekið í einstaklingsverkefnum sem hvert er þá 5 eininga virði, ef maður vill það frekar en taka fleiri kúrsa. Nú, þar sem ég hef svo gaman af því að skrifa, þá fannst mér tilvalið að taka þessi 3 einstaklingsverkefni sem eru í boði á námstímanum. Ég hafði því hugsað mér að taka einstaklingsverkefni A og B núna á þessari önn og svo einn 5 eininga kúrs. Vandamálið var bara að finna kúrs sem væri ekki með lokapróf í desember og svo að finna prófessor til að vera leiðbeinandi í fyrsta einstaklingsverkefninu, sem ég var búin að ákveða að gera um Stephen King.

Nú, ég hafði samband við Martin Regal og hann var meira en til í að gera þetta með mér en það væri tvennt sem mögulega kæmi í veg fyrir þetta samstarf. Í fyrsta lagi væri hann ekki að kenna neina MA kúrsa á þessari önn, og samkvæmt einhverjum reglum ætti hann því í raun ekki að vera leiðbeinandi fyrir neinn á MA stigi. Ég yrði að spyrja Matthew skoraformann leyfis fyrir þessu. Í öðru lagi þá þyrfti ég að fá grænt ljós á efnið sjálft, Stephen King, því það þarf að bera undir skoraformann og taka upp á kennarafundi! Ég átti ekki til orð. Hverjum hefði dottið í hug að þetta yrði svona flókið?

Ég hafði samband við Matthew í gegnum e-mail og hann svaraði mér hinn jákvæðasti og sagðist ætla að gefa mér og Martin sérstakt "executive privilege" til þess að vinna saman þrátt fyrir að það í raun stangaðist á við reglur. Síðan hafði hann samband við Brian Fullbright, sem er kennarinn sem kennir þann kúrs sem ég hafði mestan áhuga á að taka (er um 19.aldar breskar bókmenntir, Dickens og fl.) og hann lofaði að vera sveigjanlegur vegna ástands míns. Ég veit reyndar ekki alveg hvað það þýðir en geri ráð fyrir að ég þurfi þá ekki að taka próf í desember, heldur megi gera verkefni. Matthew minntist ekkert á Stephen King þannig að ég bara geri ráð fyrir því að hann sé ásættanlegt ritgerðarefni, enda væri annað fáránlegt.

Þannig að ég virðist bara vera í góðum málum, þó að augljóslega verði ég að skrifa eins og moth**fu**** alla þessa önn. Ég hlakka samt svo til því ég fæ loksins frið þegar skólinn byrjar. Krakkarnir í skólanum frá 8:10-14:30, Lazaro í vinnunni frá 07:00-15:00 og engin vinna!!! Nú fer að líða að kveðjustund hjá mér í 118. Ég er að hætta og fara á námslán eins og allt eðlilegt fólk. Ég á samt eftir að sakna snúranna minna hrikalega. Og bara alls vinnustaðarins. Maður sá það á því hvernig allir hafa verið að gefa manni föt og annað handa börnunum, að þetta eru allt góðar konur. Hafa reynst vinir í raun. Sniff, sniff.

Nínos hefur tjáð sig í bili.
p.s. er ég ekki búin að vera rosalega dugleg að blogga undanfarið?
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives