The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, July 15, 2004
 
Vinnan aftur

Þetta er fyrsta vaktin mín síðan að sumarfríinu lauk, og þegar ég hringdi heim áðan þá var Lazaro að spæla egg handa liðinu!!! Guð minn góður, hvað ætli bíði mín þegar ég kem heim? Hann hefur aldrei eldað neitt alla sína ævi! En þetta er þó skref í rétta átt.


Það gengur allt rosalega vel hérna heima og ég finn hvað mér þykir vænt um krakkana og hvað mig hlakkar til að fara heim í kvöld. Fyrstu dagarnir voru soldið meira stressandi fyrir mig og þá var ég einmitt með fantasíur um hvað það yrði gott að fara í vinnuna og sleppa frá þessu öllu. Núna þegar ég komin í vinnuna, get ég ekki beðið eftir að komast heim aftur! Þetta er svo gaman að þið mynduð ekki trúa því. Þvílíkt líf á heimilinu. Krakkarnir byrjuðu á námskeiði hjá Námsflokkunum á mánudaginn og við lærum alltaf heima með þeim í svona klst. á kvöldin og förum yfir allt sem þau lærðu. Þetta er bara tekið af hörku.

Lazaro á síðan að fara í skurðaðgerð á auganu á næstu vikum og verður frá vinnu í 4 vikur á eftir. Þetta er svona soldið alvarlegt en það er annað hvort aðgerð eða varanleg blinda á auganu.

Annað frábært sem ég verð að segja er að þegar ég kom í vinnuna í dag, þá voru 9 konur hér búnar að slá í púkk handa börnunum og gáfu okkur 27.000 krónu inneign í Kringluna! Finnst ykkur þetta ekki æðislega fallegt? Við sem höfum enn þá ekki geta keypt nýja skó handa þeim sökum fjárskorts. Ég komst virkilega við. Maður veit þá að það er fullt af góðu fólki í heiminum.

Svo förum við í 20 vikna sónarinn á næsta þriðjudag og þá sést kannski hvort kynið barnið er. Svo er ég líka byrjuð að finna hreyfingar!!! Þetta er rosalega skrýtið en yndisleg tifinning. Ég trúið því varla að ég sé hálfnuð með meðgönguna!

Nínos hefur tjáð sig
Krílið 19v + 2d.
|
Monday, July 12, 2004
 
The Story Goes...


Árbæjarsafn
Spítalavist
Laugardalslaugin
Húsdýragarðurinn
Hárklippingar
Sumarbústaðarferð
Kringlan
Smáralind
Tívolí
Matarboð
Laugardalurinn eins og hann leggur sig
Tónleikar
Læknisskoðanir (Oh my God!!!)
Námsflokkar Reykjavíkur
Endalaus matargerð
Endalaus þvottur
Nintendo
Video-spólur
Bíó
Pítan x2
o.fl.

Þetta útskýrir vonandi að einhverju leyti hvers vegna ekkert hefur til mín spurst í allan þennan tíma. Ég er mjög ánægð en...mikið verður nú gott þegar skólinn fyrir krakkana byrjar í haust...hehe. Lazaro var í 3 daga á spítalanum (það var mjög stressandi að vera ein með krakkana eftir aðeins 4 daga viðveru saman áður). Það var gerð bráða-leiseraðgerð á auganu sem misheppnaðist. Hann er farinn að vinna en fer til læknis í dag og það verður væntanlega að gera aðra aðgerð á honum til þess að hann verði ekki á lyfjum það sem eftir er ævinnar. Annars verður hann blindur á auganu. Ekki gott. Ekki gaman. Ég reyni að vera í betra sambandi en fer nú líka í vinnuna á fimmtudaginn og get þá kannski bloggað meira.
Nínos.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives