The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, July 03, 2004
 
Stórfjölskyldan

Þá er martröðinni lokið og loksins tekið við okkar nýja líf sem stórfjölskylda. Ég fór og sótti liðið á flugvöllinn á síðasta þriðjudag kl.15.00 og það voru 4 mjög illa lyktandi einstaklingar sem ég keyrði heim. Enda orðin sjúskuð eftir 2 sólarhringa ferðalag. Krakkarnir voru frekar feimin svona fyrst. Við fórum heim og allir í bað og svo var borðað lambalæri með öllu tilheyrandi svona til þess að fyrsta máltíðin á Íslandi yrði sem eftirminnilegust. Þau voru svo æst yfir öllum leikföngunum og leikjatölvunum að þau fóru ekki að sofa fyrr en eftir kl.23 um kvöldið.

Greyið Lazaro var gjörsamlega búinn á taugum eftir þetta enda lenti hann í meiriháttar vandræðum í Perú. Þar sem öll gögn varðandi börnin höfðu verið útbúin með það í huga að þau myndu ferðast ein, var það martröð að pabbi þeirra skyldi hafa komið og sótt þau. Maður hefði nú haldið að það væri betra... Anyways, Lazaro neyddist til þess að eyða stórfé til þess að láta útbúa ný ferðaleyfi fyrir krakkana og það sko á síðustu stundu. Síðasti pappírinn var ekki tilbúinn fyrr en á laugardaginn, deginum áður en þau lögðu af stað. Aumingja Lazaro, ekki hefði ég viljað vera í hans sporum.

Allir sváfu til hádegis næsta dag og við borðuðum morgunmat saman í fyrsta skipti. Lazaro útbjó skyr handa þeim sem féll vel í kramið, en þau voru öll frekar dauf og þreytt. Lazaro bætti síðan ekki úr skák með því að segja þeim að ég væri barnshafandi, eitthvað sem ég hefði viljað bíða aðeins með, og þeim var frekar brugðið. Ekki Kelly þó, enda kannski of lítil til að skilja þetta alveg. Charo (Rosario) táraðist, en vildi samt ekki viðurkenna að það væri út af þessu og faðmaði mig og kyssti þannig að ég fann enga andúð. Ég held þetta hafi bara verið of mikið ofan á allt annað.

Við fórum þennan sama dag á þjóðskrá til að fá kennitölur og síðan í Kringluna að versla nærföt og sokka og annað sem vantaði. Krakkarnir elska að hafa heitt vatn og fara í bað alveg á hverjum degi þótt þau séu ekki vön slíkum lúxus heiman að frá sér. Þau voru líka í sjokkið yfir uppþvottavélinni, þvottavélinni, ristabrauðvélinni og örbylgjuofnium. Við fórum svo í langan göngutúr hérna heima um kvöldið og sýndum þeim Laugardalinn og næsta rólóvöll. Þau eru vön stórborgarlífi og fannst Laugardalurinn bara vera eins og Himnaríki með öllu þessu grasi og trjám. Síðan tökum við klukkutíma á hverju kvöldi í íslenskukennslu og þau eru búin að læra að telja upp að 20, segja takk fyrir, góðan daginn og góða nótt, og að svara í símann.

Á fimmtudaginn fórum við með þau niður á Tjörn að gefa öndunum og skoða Ráðhúsið og svo borðuðum við á Pítunni. Þeim fannst mjög sérstakt að geta fengið fría áfyllingu á gosið. Á aðfaranótt föstudags rumskaði ég úr værum svefni um 5 leytið við það að José og Charo voru að sniglast inní stofu (þar sem við Lazaro sofum) og inn á baðherbergi og inní eldhúsi. Ég hugsaði með mér að það væri skrýtið að þau væru svona eirðarlaus enda sváfu þau eins og steinar fyrstu 2 næturnar. Ég reyndi að vekja Lazaro en hann var bara alveg rotaður þannig að ég ákvað að skipta mér ekki af þessu og lognaðist út af. Þegar ég vaknaði næsta morgun kl.10 var búið að leggja á borð morgunverð fyrir okkur öll. Það var búið að hella súrmjólk í skálarnar, setja morgunkorn á borðið, rista fullan disk af brauði og svo lá miði á borðinu sem sagði: Takk (á íslensku) Lazaro og Nína
fyrir að taka okkur "heima" (á ísl.)
og sýna okkur mikla ást.
José og Charo.

Ég sver það ég fór næstum því að grenja. Ég vakti Lazaro og hann hélt fyrst að ég hefði skipulagt þetta, hann ætlaði ekki að trúa því að þau hefðu verið að vesenast um miðja nótt í samsæri til að koma okkur á óvart. Við fórum strax til að vekja þau og þá voru þau öll sofandi í sama rúmi (neðri kojunni). Við þökkuðum þeim innilega fyrir með kossum og faðmlögum og borðuðum síðan volga súrmjólkina og glerhart brauðið með bestu lyst eins og um besta morgunmat í heimi væri að ræða. Eftir þetta hefur José sofið inni hjá systrum sínum enda vanur því. Hann á erfitt með að vera einn í sínu herbergi. Mér finnst þetta bara sætt. Það kom mér líka á óvart hvað þau tvö eldri eru rosalega mikil börn enn þá þótt hún sé að verða 12 ára og hann sé 13. Hann er að leika sér með systrum sínum með leikföngin og einhverja Barbie-hesta sem ég átti. Þau eru ótrúlega saklaus.

Á föstudaginn fórum við með þau í Árbæjarsafnið og það ver virkilega vel heppnuð ferð. Við tókum ferðina upp á vídeó og þeim fannst ekkert smá gaman að horfa á þetta þegar heim var komið. Örbylgjupoppkornið er líka mjög vinsælt. Þau eru ofsalega dugleg að hjálpa til og skilja aldrei herbergin eftir nema í fullkominni röð og reglu. Ótrúlegt...

Síðan gerðist það í dag að Lazaro vaknaði upp mjög veikur með bráðaglákukast í hægra auganu. Hann var með hræðilegan verk, augað allt rautt og hann fór síðan að kasta upp! Ég var bara í sjokki og fór með hann á bráðamóttökuna og alla krakkana með kl.11 í morgun. Það stóð einmitt til að hann færi til glákusérfræðings á þriðjudaginn kemur en svo fékk hann í dag svona mikinn háþrýsting að hann var lagður inn á spítala. Ég fór ein heim með krakkana, gaf þeim að borða og fór síðan aftur upp á spítala. Þetta var sko ekkert grín. Hann hefur áður fengið svona köst og það er nýbúið að greina hann með mjög sjaldgæfa bráðagláku sem hægt er að laga með einfaldri leiser-aðgerð. Hann átti að fara í hana bráðlega en það er ekki þorandi að bíða með það lengur því hann getur orðið blindur ef þetta heldur svona áfram. Hann er búinn að vera í allan dag á sterkri lyfjagjöf á spítalanum og aðgerðin verður gerð á mörgun. Hann var svo hræddur við að verða skilinn eftir einn á spítalanum að ég fékk það í gegn með ýtni að hann fengi að vera heima í nótt þótt hann sé sko alls ekki útskrifaður. Svo förum við snemma í fyrramálið aftur á spítala og aðgerðin verður framkvæmd seinna um daginn. Talandi um óheppilega tímasetningu! Ég var svo stressuð fyrir að verða ein með krakkana yfir nótt því þótt ég geti nú gert mig skiljanlega á spænsku og með handapati þá skil ég ekki alltaf hvað þau eru að spyrja mig um. Þetta er svona dálítið mikið að takast á við í einu verð ég að segja og svo óléttur í þokkabót! En sem betur fer líður Lazaro miklu betur núna og er verkjalaus.
Nínos hefut gefið skýrslu for now.
|
Tuesday, June 29, 2004
 
Stórfréttir!!!

Vildi bara láta ykkur vita að Lazaro og börnin eru komin heim!!! Þetta er of ótrúlegt til að vera satt eftir allan þennan tíma og taugaspennu. Verð í sambandi síðar.
|
Sunday, June 27, 2004
 
Ísskáps-Martröð!

Ókey! Nú er ég búin að fá mig fullsadda á hrakföllum í bili. Það styttist óðum í að Lazaro og börnin komi og ég hef ekki stoppað hér heima í framkvæmdum og látum. Það kom rafvirki og setti upp leslampa við öll rúmin, það kom smiður og skipti um lás hjá okkur og lagaði brotna kommóðuskúffu, ég keypti fiskabúr handa stelpunum með gullfiskum og setti inn í herbergin þeirra. Ég þvoði rúmföt úr skápunum til að það verði allt angandi ferskt og hreint þegar þau leggjast upp í rúmin sín hér í fyrsta skipti. Á morgun mánudag, stendur til að keupa inn í Bónus og þrífa alla íbúðina (vildi ekki gera það fyrr en deginum áður þannig að allt sé tandurhreint þegar þau koma og á þriðjudaginn ætla ég að elda veislumat þannig að fyrsta máltíðin á Íslandi verði eftirminnileg. Í dag, sunnudag, ætlaði ég að hjálpa mömmu að þrífa hjá henni eftir að ég afþýddi ísskápinn hérna niðri. Ég vaknaði rosaseint eða um hádegi og tók til við að tæma ísskápinn og þetta var viðbjóður. Okkur Lazaro hefur dreymt um að kaupa nýjan ísskáp í langan tíma en ekki haft efni á því. Ég er búin að vera í 5 ár með ísskáp sem var notður þegar ég fékk hann. Hann er frekar lítill og með litlu frystihólfi efst. Þegar við kaupum í matinn viku í senn bara fyrir okkur tvö, þá er alltaf martröð að finna pláss fyrir allan matinn í kælinum og frystinum. Fyrir utan smæð þá þarf að afþýða þennan skáp því hann hleður ís inná sig eins og motherfu**er. Ég hafði ekki afþýtt hann í heilt ár og ísklumpurinn inní honum var orðinn svo stór að hann tók mun meira pláss en maturinn.
ég hef haft áhyggjur af því hvernig við getum keypt inn fyrir 5-6 manns með svona lítið geymslupláss en viti menn. Í dag var mér "hjálpað" út úr þeim vandræðum. Ég rústaði ísskápnum. Það tók svo langan tíma fyrir þenna ands**tans ís að bráðna að mér datt það snjallræði í hug að nota búrhníf og höggva svolítið í hann til að brjóta hann. Þetta gekk bara vel framan af og ég náði sífellt fleiri bitum úr ísnum. Eftir 2 klukkutíma var ég sirka hálfnuð og þolinmæðin alveg að gefa sig. Ég var þá stödd með hnífinn í fyrstihólfinu og hjó óvenjufast í ísinn. Viti menn. Ég hjó barasta pínulítið gat á kælikerfið og það fór að að leka eitthvað loft úr honum! Ég lokaði í snarhasti enda ófrísk og dauðhrædd um að þetta væri eitthvað eitur. Ég hringdi í neyðarlínuna og fékk þær upplýsingar að þetta væru væntanlega freon og best væri að reyna að koma skápnum út og að það hefði verið rétt hjá mér að loka hólfinu. Ég endaði með góðra vina hjálp á því að panta sendiferðabíl til að henda ræflinum enda væntanlega ónýtur. Svo fór ég í Expert og keypti nýjan skáp, miklu stærri kæliskápur og niðri frystiskápur með 3 stórum skúffum takk fyrir þannig að nú verður sko hægt að versla fyrir 5-6 manns eins og ekkert sé. Allurinn dagurinn hefur farið í þetta en þegar allt kemur til alls er ég mjög sátt. Nýji Whirlpool skápurinn er æði!!! Ég hlakka til að fara í Bónus á morgun og fylla á hann. Það er verst að Lazaro fær örugglega áfall þegar hann sér reikninginn...
Nínos hefur tjáð sig.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives