Sumarfrí!!!
Ég var að uppgötva það að sumarfríið mitt er að nálgast óðfluga. Ég og Lazaro förum í sumarfrí 10.júní-12.júlí og ég fattaði það allt í einu að þegar þessi vinnuhelgi er búin, á ég bara eftir að vinna einn fimmtudag!!! Jibbí! Nú er bara að vona að krakkarnir verði komnir sem fyrst svo að þau geti notið okkar á meðan við erum í fríi. Ég er búin að vera að plana hvað við getum gert með þeim í sumar svo að þau skemmti sér vel áður en skólinn byrjar. Við verðum náttúrulega að kenna þeim eins mikla íslensku og hægt er í sumar og senda þau á námsskeið hjá Námsflokkum Reykjavíkur, en það verður líka að gera eitthvað skemmtilegt. Við getum til dæmis farið í Bláa lónið (hef aldrei farið þangað með Lazaro, honum til mikillar gremju),keiluhöllina, upp í Perluna að sjá útsýnið, kannski í hvalaskoðun (ef það er ekki of dýrt), sjá Gullfoss og Geysi, fara í sund, Húsdýra- og fjölskyldugarðinn...Eruð þið með fleiri uppástungur? Aaahhh, ég held ég geti lifað þessa vinnuhelgi betur af vitandi að hún er sú síðasta í langan tímann, jibbí!!!!
Mæðraskoðun-Jóga-Kynlíf
Í dag rann stóra stundin upp og ég og krílið fórum í fyrstu mæðraskoðun. Við fórum til hennar Áslaugar Hauksdóttur ljósu sem er hreint út frábær manneskja. Hún lét mér líða svo vel og gaf mér svo góðan tíma að manni leið bara alveg eins og drottningu. Ég var nú soldið klár og kom með lista með mér með spurningum og upplýsingum um sjálfa mig. Svo tók hún þvagprufu og blóðþrýstinginn og hann var bara mjög fínn, 70-120, en ég var rosalega hrædd við að hafa kannski of háan blóðþrýsting, en svo var ekki. Vonandi bara helst hann svona lágur og hækkar ekki neitt á meðgöngunni. Við fundum reyndar ekki hjartsláttinn hjá krílinu en heyrðum alls kyns "fylgjuhljóð" eins og Áslaug kallaði þau. Hún sagði mér áður en hún tékkaði þetta að verða ekki hrætt þótt við finndum ekki hjartsláttinn, því þetta væri svona á mörkunum tímalega séð að hann heyrðist í gegnum þetta tæki sem hún notaði. Auk þess sem hún játti því þegar ég spurði hana hvort að konur í þyngri kantinum væru ekki betur "hljóðeinangraðar" en þær grennri. Ég var því ekkert hrætt yfir þessu enda með fullt af einkennum, nýbúin í snemmsónar og ekkert blætt í langan tíma. Síðan var tekin blóðprufa, enda er ég rhesus-neiðkvæð sem er sjaldgæfara en rhesus-plús og krefst aðeins nánara eftirlits. En það kom í ljós að ég var með aðeins hærra magn af blóðflögum en meðaltal segir um (hærri mörk meðalmagns eru 370 en ég var með 440). Ég var því send til læknisins á vakt en hún sagði þetta vera svo litla hækkun að þetta skipti engu máli. Blóðflögur hækka ef um er að ræða sýkingu eða blæðingu í líkamanum, þær hafa eitthvað með storknun blóðsins að gera. Ég man eftir því fyrir 2 árumað Stefán Finnsson heimilislæknirinn minn tók blóðprufu hjá mér vegna svima sem ég hafði (kom í ljós að ég var með B12 vítamínskort) og þá sagði hann mér að ég væri með aðeins hækkað magn af blóðflögum, en gerði ekkert í því vegna þess að það væri svo lítið og eflaust væri ég bara svona. Ég var nú búin að gleyma þessu en mundi þetta svo í dag og geri því ráð fyrir að ég sé bara almennt yfir meðallagi í þessu blóðflögudæmi. Alla veganna hafði ég enga sýkingu né blæðingu þá, né tel ég mig hafa slíkt núna.
Annað sem Áslaug stakk upp á var að ég færi í meðgöngujóga til Auðar í Lótus. Ég er búin að hafa samband þangað svo nú er bara að sjá hvort að ég þori að fara í þetta jóga. Að minnsta kosti var ég hvort eð er búin að ákveða að læra slökub fyrir fæðinguna og er ekki jóga alveg jafngott og hvað annað? Sé mig samt ekki alveg í anda í einhverjum dularfullum teygjum... Hef samt komist að því að ég er ansi liðug því mér til mikillar furðu komst ég að því í vikunni og að ég get bitið í stóru tærnar á sjálfri mér. Ég segi ekki nánar hvað ég var að gera þegar þessi merkilega uppgötvun var gerð...
Að lokum vil ég koma því á framfæri að ég hef ákveðið að sjá til þess að mamma gamla gangi út. Það náttúrulega gengur ekki að hún bara veslist upp og pipri á besta aldri. Eins er ekki eins og það sé skortur á vonbiðlum því þeir eru alls staðar á sveimi og virðast spelkur og hækjur ekki vefjast fyrir þeim á nokkurn hátt. Vandamálið er mamma sjálf. Hún er sú mesta tepra sem ég hef nokkurn tímann kynnst á ævinni. Hún veit bókstaflega ekkert um kynlíf sem skiptir máli og hefur lifað skírlífi á annan áratug! Ég hef því ákveðið að taka málin í mínar hendur og uppfræða Old Múttí um unaðssemdir ástarlífsins. Samkvæmt mínum upplýsingum var mamma í mjög góðu og hreinskilnu sambandi við mömmu sína og hún var sko ekkert að skafa utan af kynlífslýsingunum hún amma, en eins og ég sjálf, var hún svona djúsí kona með heilbrigðan áhuga á sexinu. Mamma sagðist hafa heyrt ófáar lýsingar á bólförum ömmu (weird) en því miður virðist lærdómsgildið ekki hafa verið mikið enda er mamma alveg vonlaus í þessu. Því mun ég brátt halda uppfræðslunámskeið fyrir Old Múttí þar sem farið verður í helstu undirstöðuatriði málsins. Ég tek það ekki í mál að hún nái sér í gæja fyrr en hún er orðin vel uppfrædd um hvaða kröfur hún á að gera í kynlífinu. Annars verður kannski bara valtað yfir hana og það gengur ekki. Hún verður orðin algjör Sexy Lover Girl (eins og IcePrincess Leoncie myndi orða það) áður en ég hef skilið við hana. Fyrsta mál á dagskrá er þetta: Mamma, ef þú lest þetta þá taktu orð mín alvarlega:
1) Ullarnærföt eru EKKI sexý! Ekki heldur toppar af mér síðan ég var
12 ára!
2) Hársnyrting annars staðar en á höfði er VÍST nauðsynleg!
3) Hjálpartæki ástarlífsins eru þess virði að íhuga.
4) Karlmenn eru til þess að njóta, ekki rökræða, tala við eða taka að
sér sem fóstursyni!
5) Muna alltaf, typpi eru ekki eini líkamshlutar karla sem nýta má
sér til ánægju!
6) Muna alltaf, konur ganga fyrir körlum!
Þeim sem finnst ég vera kvenremba er vinsamlega bent á að ég bý með karlrembu dauðans og hef því orðið að fara út í hina öfgana til að halda harmóníu á heimilinu.
Nínos hefur tjáð sig.
Úr Heimi Hversdagsleikans
Jæja, þá er ég komin enn á ný. Hef orðið vör við það að einhverjir séu að kvarta yfir bloggleysi hér á bæ. Þetta finnst mér mjög fyndið þar sem ég hef iðulega frá engu að segja nema þá alltaf sömu hlutunum eins og að börnin séu næstum því að koma frá Perú og að ég sé alltaf að æla og svoleiðis. Eru ekki allir orðnir hundleiðir á þessu kjaftæði? Ég bara gerði ráð fyrir því.
Annars er það bara þannig að þegar ég er ekki í vinnunni þá blogga ég voða lítið. Nenni því ekki af því að tölvan mín heima er svo ömurlega léleg og hægvirk að ég verð geðveik á því að nota hana. Segir þetta ekki líka eitthvað um hvað ég legg mikið á mig í vinnunnu??? Ummh, er samt með mjög góða svörun sko...
Annars er það helsta í fréttum að Lazaro gengur frekar illa í megruninni. Okkur til mikillar skelfingar þá er hann komin upp í 84 kíló og hefur því bætt á sig 2,5 kílóum síðan Diet-Time hóf göngu sína. Þetta lofar ekki góðu. Hann getur ekki lengur klætt sig í sokkana hjálparlaust né séð neitt sem er staðsett fyrir neðan mittisstað. Þetta er, eins og þið getið ímyndað ykkur, skelfilegt fyrir mann sem er eins upptekinn af því sem leynist fyrir neðan mitti, og hann er. Öll góð megrunarráð eru hér með vel þegin.
Á morgun er sko stór dagur hjá mér því ég fer í mína fyrstu mæðraskoðun til ljósunnar Áslaugar Hauksdóttur. Ég er hrikalega spennt yfir þessu öllu en mér stendur reyndar ekki alveg á sama heldur. Vonandi bara að allt sé í góðu ástandi hjá mömmu gömlu (það mun vera moi!) Ég er svo hrædd að vera með of háan blóðþrýsting eða eitthvað að ég er komin með alls kyns einkenni eins og höfuðverk og svona. Þvílíkt sálarstríð að ganga með barn!
Annars er ég miður mín yfir því að Roald sé ekki lengur á meðal vor heldur að typpalingast í Skotlandi. Greddan hefur fært drenginn á milli landa og nú vellur hann um í öllu sínu veldi, slefandi yfir öllu með pylsu á milli fótanna. Að minnsta kosti mætti ætla svo miðað við skrif hans á Kaffidvergnum. Ég hef bara aldrei komist í kynni við neinn sem er jafn kynferðislega þenkjandi, að sjálfri mér undanskilinni auðvitað. Skemmtu þér vel Sveppur! And don't spread your seed too wide and keeps those cheeks closed!
Nínos hefur tjáð sig...
og krílið líka
12v + 3d.