The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, May 06, 2004
 
Prófannir

Er í prófum þessa dagana. Það fyrsta er búið og tvö eftir. Þann 12. og 15.maí. Ég er ótrúlega afslöppuð. Eiginlega einum of. Taldi mér hafa gengið bara sæmilega í fyrsta prófinu, það var bara ein ritgerð sem við þurftum að skrifa. Ég var nú töluvert lengi en skrifaði samt bara 5 bls. Síðan þegar ég fór að bera saman bækur mínar við hina sem voru í prófinu fékk ég vægt áfall. Það höfðu allir verið að skrifa svona 8-11 bls. !!! Núna er ég hrædd. Vonandi hefur þetta bara verið einstaklega hnitmiðað hjá mér...
Annars nenni ég bara ekki að læra. Það er svo erfitt að einbeita sér að svona smáræði og aukaatriðum í lífinu eins og lærdómi og útskrift þegar maður á von á barni. Allt annað fellur bara í skuggann. Ógleði og uppköst og "túr"verkir eru svona soldið dóminerandi þessa dagana í mínu lífi. Ég held upp á hverja viku sem líður og allt er enn í lagi. Er einmitt komin 9 vikur og 2 daga núna. Við sjáum svo hvað setur.
Nínos hefur gubbast.
|
Sunday, May 02, 2004
 
Diet-Time!

Greyið Lazaro minn. Hann á ekki sjö dagana sæla núna. Honum til mikillar skelfingar voru gallabuxurnar farnar að þrengjast ískyggilega mikið um mittið og í kjölfarið áttaði hann sig á því að hann sér ekki lengur á sér tærnar. Það mátti ekki lengur á milli sjá hvort okkar væri með stærri keppi (he, he). Diet-Time! Hann steig á vigtina í morgun (allsber, svona til þess að vera viss um fötin og skartgripirnar væru ekki að þyngja hann) og viti menn! Hann er orðinn 81,5 kíló og hefur hann nú toppað sjálfan sig algjörlega. Honum líður best í 75 kílóum og hefur alltaf verið í þeirri þyngd síðan hann náðu fullorðinsárum. Ég fór nú að velta því fyrir mér hvað gæti valdið þessari þyngdaraukningu þar sem hann borðar nánast aldrei neitt óhollt. Eftir miklar vangaveltur og yfirheyrslur kom í ljós að hann er búinn að drekka GOS uppá hvern dag í vinnunni síðan síðasta nóvember eða frá því að hann byrjaði þar. Og þetta hafði hann falið fyrir mér! Ég drekk ekki mikið gos (og ekkert núna í óléttunni) og benti honum á að þarna væri væntanlega sökudólgurinn því gos væri ógeðslega fitandi og óhollt. Lazaro fékk meiriháttar uppljómun á staðnum því hann hafði í alvörunni aldrei pælt í því að þetta skipti nokkru máli. Hann er harðákveðinn að hætta gosdrykkju þegar í stað. Það er eins og ég hef alltaf sagt: gos er drykkur djöfulsins.
Nínos hefur tjáð sig í vellandi spiki.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives