Heimsókn
Við Lazaro fórum í gær í heimsókn til MuscleMan og konunnar hans. Ég var nú ekki látin vita að þessi heimsókn stæði til fyrr en það var of seint að hætta við, en ég viðurkenni að eftir 10 klukkutíma vakt á 118 var ég ekki í stuði. Ég var þó dálítið forvitin að sjá nýja barnið þeirra sem fæddist þann 27. febrúar síðastliðinn. Svo var þetta svona líka notalegt :) Við gáfum þeirri litlu smá gjöf, svona bleikt teppi í vagn. Það var ekkert smá fyndið að sjá hvað hún er lík pabba sínum, hann getur sko ekkert skorast undan því að hún er dóttir hans! Úpps, þetta kom nú eitthvað rangt út úr mér, ég átti ekki við að það væri einhver efi um faðerni barnsins. Annars var þetta bara indæliskvöldstund fyrir utan að þegar ég bar um vatnsglas var það hitaveituvatn. Ég kunni ekki við að kvarta þannig að ég drakk hálft glasið og hélt ég myndi kasta upp á staðnum. Bjakk!
Nínos hefur tjáð sig.