The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, March 20, 2004
|
Thursday, March 18, 2004
 
Sagan Endalausa

Guð minn góður hvað síðasta færsla var uppfull af sjálfsvorkunn! Maður bara skammast sín... Annars er það að frétta að fíflin í þessu helvítis sendiráði í Svíþjóð hafa akkúrat EKKERT gert í okkar málum og liggja enn þá með öll gögn hjá sér þó við séum búin að hringja á hverjum degi.

Svo kom Muscle Man (öðru nafni Manuel frá Perú) í heimsókn í gær. Hann sagðist hafa átt við sama vanda að stríða með fæðingarvottorð sonar síns, þ.e. að nafn hans var ekki í því. Í hans tilviki var nóg að systir hans í Perú skrifaði undir fyrir hann sem fjölskyldumeðlimur!!! Hann þurfti aldrei að láta gera nein gögn hér á landi eða í gegnum þetta ömurlega og vanhæfa sendiráð í Svíþjóð! Við höfum unnið allt okkar mál út frá upplýsingum frá þessu sendiráði og það hefur engum árangri skilað en kostað okkur stórfé, bæði þangað og til Perú. Þeir sögðu aldrei neitt um neina fjölskyldumeðlimi og að þeir gætu gert hlutina frekar en móðir barnanna. Við trúum varla að þetta geti verið svona einfalt. Alla veganna þá hringdi Lazaro í eina systur sína í Perú í gær og hún ætlaði að athuga hvað hún getur gert. Á meðan höfum við tekið ákvörðun um að ef að ekki verði komin lausn á þetta helvíti um næstu mánaðarmót þá fari Lazaro út í apríl. Við höfum ekki efni á því en við höfum heldur ekki efni á því (né taugar í það) að láta draga okkur meira á asnaeyrunum.

Mamma barnanna, Ana, hringdi til að fá meiri peninga af því að núna segir hún að Kelly sé með blóðnasir og spýti blóði! Lazaro spurði hana hvort að hún væri ekki örugglega enn þá með peningana fyrir vegabréfunum (300 dollara) sem við sendum fyrir löngu og þá sagði hún að fólkið sem var að hjálpa henni, þessi hjón, væru með alla peningana. Lazaro varð alveg brjálaður og hringdi í þetta fólk og þau héldu því fram að Ana væri sjálf með alla peningana og væri þá bara búin að eyða þeim í eitthvað. Þau sögðust hafa farið í heimsókn og þá hefði hún ekki verið heima heldur bara börnin, og þau væru skólaus, matarlaus og skítug!!! Við erum bara í algjöru áfalli yfir þessu og vitum ekki lengur hverjum á að trúa og höfum verulegar áhyggjur af velferð barnanna. Þannig að við viljum ekki bíða lengur. Þetta er orðið svo ömurlegt.

Það er allt tilbúið heima fyrir börnin. Herbergið hans José orðið alveg rosalega flott. Við keyptum litla kommóðu handa honum í Rúmfatalagernum og ég setti hana saman. Hann hringdi svo í pabba sinn og heyrði hamarshöggin í mér og spurði hvað væri að gerast. Lazaro sagði ég væri að setja saman kommóðu handa honum og hann varð svo glaður greyið litla! Eins og þetta væri eitthvað alveg rosalega sérstakt. Það verður alltaf erfiðara og erfiðara að bíða eftir lausn í þessu máli en við munum ekki bíða mikið lengur, svo mikið er víst.

Nínos hefur tjáð sig.
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives