The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Thursday, March 11, 2004
 
Vika Sem Ég Vil Gleyma

Síðustu 3 dagar (þá að þessum degi meðtöldum) hafa verið virkilega ömurlegir. Ég hef aldrei í lífinu þurft að hlaupa eins við fót í nánast öllu, er búin með svitalyktareyðirinn og hef ekki haft tíma til að kaupa nýjan, og aldrei þessu vant, þá er ég bara ALLTAF svitnandi undir höndunum!!! Ég hata þetta. Hér er listi yfir nokkra hluti sem hafa gert líf mitt ömurlegt þessa vikuna.

1) Það eru iðnaðarmenn á fullu heima að klára herbergið fyrir José, þar á meðal einn sem rústaði allri sameigninni í húsinu með því að saga flísar INNAN HÚSS, rykið og brunabrælan á öllu og ég auðvitað gerð ábyrg fyrir því. Hann hringdi EKKI á undan sér eins og hann lofaði og var hleypt inn í húsið þegar ég var ekki heima. Ég þurfti að fara með 3 flíkur í hreinsun og restina af fötunum sem héngu frammi verð ég að þvo ásamt því að þrífa alla sameignina og vona til Guðs að stækjan fari burt!!!

2) Ég á ENN þá eftir að byrja á 2 ritgerðum sem eiga að vera 3000 og 5000 orð en gefa samt báðar 2,5 einingar sem mér finnst mjög einkennilegt ósamræmi.

3) Skattskýrslurnar yfir höfðinu á manni og eyddi lunganum úr morgninum að finna öll gögn í þær fyrir mig og Lazaro og fer á morgun með það til endurskoðandans.

4) Tölvan hennar mömmu í messi og fullt af mikilvægum e-mailum komust ekki til skila, ég gat ekki lagað þetta, vesen, símhringingar, meira vesen og læti.

5) Rétt náði að skila inn umsókn um Masters-nám við háskólann fyrir næsta vetur og var tilkynnt af meðmælenda mínum (fékk dósent Júlían D'Arcy)að því miður hefði þakið lekið í skrifstofunni hans og beint á síðustu ritgerð sem ég skilaði til hans þannig að hún lægi núna vatnsósa á skrifborðinu hans. Sem betur fer var hann búinn að fara yfir hana en gleymdi henni á skrifstofunni.

6) Konsúllinn í Svíþjóð lofaði að e-maila á Lazaro skjalið sem hann ætlar að útbúa og Lazaro á að skrifa undir en er enn ekki búinn að því þó við höfum hringt og minnt hann á að við biðum enn.

7) Öll næsta helgi verður undirlögð af kóræfingum fyrir geisladiskinn sem kórinn ætlar að taka upp þannig að ritgerðirnar 2 verða enn að bíða og ég ætlaði að vera byrjuð í þessari viku!

8) Á yfir höfðinu að lesa yfir og leiðrétta BA-ritgerð fyrir vinkonu mína og verð að gera það á morgun, akkúrat þegar ég þarf að ná í fötin í hreinsun, fara til endurskoðandans, fara á kóræfingu og taka á móti gestum í mat og ÆTTI að vera að skrifa ritgerðirnar mínar.

9) Á að taka upp geisladisk fyrir ákveðinn einstakling þar sem ég syng einsöng við texta hans við þekkt ættjarðarlög og gat ekki mætt á æfingu í vikunni af því að mér finnst röddin á mér ömurlega rám og ég er búin að vera með stöðugan höfuðverk.

10) Varð fyrir annað hvort dulrænni eða geðrænni lífsreynslu í gærmorgun þegar ég var ein heima uppí rúmi. Það var ill nærvera inni í herberginu sem reyndi að villa á sér heimildir og ég gat ekki hreyft mig. Var alveg lömuð. Ég vakna (já, mig var EKKI að dreyma) við það að ég heyri einhvern koma inn um dyrnar á íbúðinni. Ég kalla: ,,Ert þetta þú Lazaro?" Og það var umlað svar með rödd Lazaro. Síðan heyri ég að ,,það" tekur af sér skóna og gengur inn í herbergið til mín. Ég heyrði fótatakið en sá engann og ég GAT EKKI HREYFT MIG!!! Ég lá bara lömuð í rúminu. ,,Það" skríður upp í rúmið og situr þar og horfir á mig, ég fann augnaráðið þó ég sæi ekkert. Ég sagði: ,,Ef þú ert í raun og veru Lazaro, kysstu mig þá." Þá finn ég hvernig ,,það" hallar sér yfir mig og kyssir mig á munninn ógeðslegum, dauðum kossi. Í þann mund hringir síminn og þá gufar þessi nærvera upp. Annað hvort var í alvörunni einhver púki inní herbergi hjá mér eða ég er að verða geðveik. Hvort heldur sem er gæti verið, ég veit ekki lengur neitt í minn heimska, ofvaxna haus.

11) Ömurleg rifrildi út af hlutum sem skiptu engu máli ef maður væri dauður sem ég vildi helst vera núna :(

Nínos hefur tjáð sig.
|
Sunday, March 07, 2004
 
Lengi Lifi Litla Fólkið!!!

Varðandi hæð á fólki þá er það dálítið skrýtið mál. Ég er dvergurinn í minni fjölskyldu og er þó 161 sm á hæð. Pabbi var 178 sm og mamma er 172 sm. Það er nánast engin kona í minni fjölskyldu undir 172 sm og karlarnir eru flestir 185-195 á hæð. Af hverju er ég svona mikill dvergur? (ekki móðgast ef þið eruð lægri í loftinu en ég, ég meina dvergur í samanburði við familíuna). Ég hélt alltaf að ég myndi ná mér í mjög hávaxinn karlmann en svo reyndist ekki raunin. Lazaro er 174 sm á hæð og göngum við undir viðurnefnunum Hobbitarnir á meðal hærri fjölskyldumeðlima. Uppáhaldsfrændi minn er þar einna skæðastur í svívirðingunum (kallar okkur líka The Little People) og hann hefur svo sem efni á því þar sem hann er 195+ á hæð. Hann heldur því reyndar fram að hann sé kaffidvergur (sjá link hér til hliðar) því hann byrjaði að svolgra í sig kaffi barn að aldri og var alltaf sagt að hann myndi hætta að vaxa og verða dvergur. Hann hætti líka að vaxa...þegar hann var kominn í 195 sm eða svo! Hann segir alltaf: ,,Hugsið ykkur bara ef ég hefði EKKI drukkið kaffi! Þá væri ég kannski 3 metrar í dag!"
Mér finnst Lazaro fínn á hæð sko. Ég leit á það sem svona eins konar öryggisventil að vera með smávöxnum karlmanni því þá gæti ég nefnilega ráðið við hann ef til slagsmála kæmi. Það er reyndar ekki rétt því það virðist vera sem að smæstu karlmenn séu oftast sterkari en stærstu konur. Stundum förum við í slag (ég hef alveg yndi af góðum slagsmálum af og til, eins og Roald frændi getur borið vitni um) og Lazaro hefur hingað til reynst töluvert sterkari en ég. En minn tími mun koma. Það er staðreynd að við litla fólkið munum sigra heiminn að lokum og útrýma risunum. Hver er líka tilgangurinn að vera tröllvaxinn á hæð? Þú lendir bara í vandræðum með leggina á þér í rútum og flugvélum. Lengi lifi litla fólkið!
|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives