The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Saturday, March 06, 2004
 
Til sölu


Adam-rafmagnsgítar. Blár. Keyptur í apríl 2001.
Upprunalegt verð: 14.980 kr.
Okkar verð: 13.000 kr.
Innifalið: Snúra í magnarann+band til að setja gítar á axlir.

Champion-magnari. 30 amp. Keyptur í júlí 2002.
Upprunalegt verð: 35.900 kr.
Okkar verð: 30.000 kr.

Zoom505 (til að gera effekta á gítarinn). Keyptur í maí 2001.
Upprunalegt verð: 10.469 kr.
Okkar verð: 8.000 kr
Innifalið: Snúra í magnarann+spennubreytir.

Digital Delay Dinosaur (til að fá ekkó-effekt á gítarinn). Keyptur haust 2003.
Upprunalegt verð: 12.900 kr
Okkar verð: 10.000 kr

Samanlagt verð: 61.000 kr
Selst í sitthvoru lagi eða allt saman. Allt er þetta vel með farið og sér ekki á því. Allar upprunalegu kvittanir til staðar. Áhugasamir hafi sambandi í síma: 698-2175

Nínos hefur tjáð sig.

|
Friday, March 05, 2004
 
Saga Barnanna...Framhaldið

Við hringdum í dag í sendiráð Perú í Svíþjóð bara til þess að athuga hvort þeir hefðu ekki fengið öll gögnin frá okkur sem við sendum fyrir viku. Jú, jú, sendiherrann hafði allt (fékk það á þriðjudaginn) en gat ekkert gert. Hann skildi ekki af hverju við vorum að senda honum þetta allt. Samt sendum við bréf til að útskýra málið! Eftir svolítið þref kom það í ljós að hann sagði að jafnvel þótt hann stimplaði allt þetta þá myndi þessu aðalskjali (með formatinu frá Perú) samt verða hafnað í Perú! Kvað hann það vera vegna þess að þótt hann gæti staðfest að stimplar Notariusar og Utanríkisráðuneytinu á Íslandi væru sannir (og þeir stimplar staðfesta að Lazaro skrifaði undir þessi gögn) þá væri það ekki nóg því hann þyrfti að hafa skrifað undir gögnin fyrir FRAMAN SENDIHERRANN Í SVÍÞJÓÐ!!! Ég bara fór næstum því að grenja og spurði hann hvað við gætum eiginlega gert því Lazaro hefði engin tök á því að fara til Svíþjóðar til þess að gera þetta. Hann velti þessu mikið fyrir sér og sagðist svo sem alveg treysta því að þetta væri allt saman rétt. Hann gæti búið til skjal, mjög svipað því sem við sendum honum,sent það til okkar, Lazaro skrifað undir það hér heima og sent það aftur til Svíþjóðar. Þar myndi sendiherrann stimpla það þannig að það liti út eins og Lazaro hefði skrifað undir það fyrir framan hann. Ég ætlaði ekki að trúa þessari góðgirni en svo virðist sem hann ætli að gera þetta. En áður en það getur gerst þá verður Lazaro að senda honum ljósrit af skírteini (frá Perú). Það er náttúrulega komin helgi þannig að það fer enginn póstur frá Íslandi fyrr en eftir hana. Þetta verður komið til Svíþjóðar á þriðjudaginn og þá vonum við að hann leysi þetta sem fyrst. En augljóslega tefst málið enn frekar vegna þessa. Það er bara eitt sem ég skil ekki. Hvers vegna lét maður þessi ekki sérfræðiálit sitt í ljós strax þegar við sendum honum fyrsta gagnið í janúar??? Þá sendum við honum skjal sem hann hefur væntanlega vitað þá að var vita gagnslaust!!! Samt stimplaði hann það eins og ekkert væri og rukkaði okkur fyrir!!!AARRRGGGG!!!!
|
Thursday, March 04, 2004
 
Saga Barnanna

Ég ákvað vegna mikilla fyrispurna og líka bara til þess að skrifa þetta niður áður en ég gleymi sjálf, að búa til lista yfir allt ferlið varðandi börnin hans Lazaro síðan ég komst að tilvist þeirra.

14. desember 2001: Ég kynnist Lázaro á Tres Locos, betur þekkt sem Ellefu samkvæmt nýjustu djammupplýsingum mínum. Ég spyr hann hvort hann eigi börn og hann segist eiga 3 stykki, José (núna 13 ára strákur), Rosario (11 ára stelpa) og Kelly (8 ára stelpa). Ég hef semsagt vitað af þeim alveg frá upphafi. Lazaro segir mér að hann og barnsmóðir hans Ana, hafi aldrei gifst en búið saman í 13-14 ár og að sambandi þeirra hafi verið lokið í 1 ár áður en hann kom til Íslands. Hann bjó í þann tíma hjá einni systur sinni í Perú þangað til Elba systir hans sem er gift Íslendingi, bauðst til að hjálpa honum að komast til Íslands.

Miður mars-mánuður 2002: Ég ákveð að bjóða Lazaro að flytjast inn til mín þar sem hann bjó á þessum tíma í herbergi í Lönguhlíðinni en var hvort eð er alltaf hjá mér :) Síðan í ágúst þessa sama árs keypti Lazaro eigin íbúð með minni blessun og hvatningu, þar sem hann hafði verið að safna fyrir henni síðan hann kom til Íslands í desember 1999. Ég átti seinna eftir að sjá eftir þessu því það hefur verið vægast sagt mjög "þroskandi" og taugatrekkjandi að leigja þessa íbúð út og varla fyrirhafnarinnar virði. Erum þó loks komin með góða leigjendur núna sem ætla að vera í heilt ár.

Janúar 2003: Ég fer að fá ónotatilfinningu varðandi ástandið á börnum Lazaro í Perú sem búa hjá móður sinni. Hún býr með þau í íbúð sem Lazaro keypti og hún hefur aldrei unnið. Lazaro sendir peninga út í hverjum mánuði til þess að sjá fyrir henni og börnunum. Áhyggjur mínar (og reyndar hans líka) spruttu út frá þeirrri staðreynd að nú var svo komið að nánast undantekningarlaust, var hringt í Lazaro frá Perú, nokkrum dögum fyrir mánaðarmót og eitt barnanna, oftast sonur hans, látið tilkynna honum að þau ættu ekkert að borða því allir peningarnir væru búnir. Þetta fannst mér skrýtið þar sem Ana veit að Lazaro sendir ALLTAF peninga 1. hvers mánaðar. Hvers vegna þessi örvænting? Ég varð mjög reið og pirruð á þessu og fór á tímabili að efast um að Lazaro væri að senda næga peninga til að þau gætu lifað af og skammaði hann fyrir það. Lazaro þvertók fyrir þetta og sagðist bara ekki skilja af hverju ástandið væri svona. Það kom nú upp umræða okkar á milli að fara til Perú vegna þessa máls.

Febrúar 2003: Ég tek mér bessaleyfi og kaupi miða fyrir okkur til Perú 6 mánuði fram í tímann. Lazaro var eðlilega frekar brugðið en síðan varð hann mjög spenntur. Hann þvertók þó fyrir það að segja Önu frá því að von væri á okkur því hann vildi sjá með eigin augum hvernig ástandið væri. Næstu mánuðir fóru í það að undirbúa ferðina, borga miðana og safna gjaldeyri. Við fórum í gegnum Bandaríkin og þurftum því bæði Visa-áritanir hjá Bandaríska sendiráðinu hérlendis, sem var ekki sjálfgefið en gekk í gegn. Það kostaði hundrað dollara á mann sem samsvaraði samanlagt 16 þúsund krónur fyrir okkur að fá þessar Visa-áritanir. Flugið kostaði 140 þúsund krónur á mann.

Sumar 2003: Ég hef síauknar áhyggjur af börnunum og við Lazaro ræðum mikið hvað geri skuli ef það kæmi í ljós að eitthvað væri að . Ég gerði honum það ljóst að frá minni hálfu væru börnin velkomin hingað til Íslands og að ég myndi hjálpa honum að ala þau upp eða koma þeim í vinnu hér á landi þegar þau væru eldri. Sem varúðarráðstöfun kynntum við okkur hvaða gögn útlendingastofnun þyrfti til þess að veita börnunum dvalarleyfi hér. Kom þá í ljós að það er frekar einfalt ferli hér á landi því að erlendir foreldrar hafa rétt á því að hafa börnin sín hjá sér svo lengi sem það er allt á löglegum forsendum. Farið er fram á fæðingarvottorð, forræðisvottorð (sem sýnir að Lazaro hafi fullt forræði) og leyfisbréf frá móður stimplað af notarius publicus í Perú, sem sannar að hún hafi gefið fullt leyfi sitt fyrir því að börnin færu úr landi og byggju hjá föður sínum.

Ágúst 2003: Sannleikurinn kom í ljós. Lazaro fór einn heim til barnanna. Fyrir utan bygginguna voru nokkrir drengir að leik í fótbolta. Einn þeirra var José. Lazaro kallaði á hann og hann þekkti ekki pabba úr fjarlægð í fyrstu en áttaði sig fljótlega og hljóp til Lazaro grátandi. Systur hans voru inni í íbúðinni. Mamma þeirra var ekki heima. Við vitum ekki hvar hún var. Börnin voru í sóðalegum og slitnum fötum og grannvaxnari en Lazaro minntist þeirra fyrir 4 árum áður. Hann var ekki sáttur við aðstæðurnar. Hann beið eftir Önu og eðlilega var henni mjög brugðið þegar hún kom heim. Hún viðurkenndi að hafa deilt peningunum með systur sinni sem líka á 3 börn. Lazaro varð mjög reiður vegna þessa því þessi fyrrverandi mágkona hans á eiginmann sem er í fullri vinnu og því ekki eðlilegt að börn Lazaro líði skort og Lazaro sjái fyrir 6 börnum! Í þessari ferð kom til umræðu að börnin kæmu með okkur til Íslands. Móðir þeirra var alveg til í það en með því skilyrði að hún kæmi líka til Íslands. Af augljósum ástæðum gekk það ekki upp enda þótt við vildum hjálpa henni hingað þá er það mun flóknara mál en að koma börnum til Íslands. Fullorðnir einstaklingar þurfa atvinnuleyfi, dvalarleyfi, fasta vinnu, miklu fleiri pappíra og lögheimili. Átti hún að búa hjá okkur? Kannski sofa með okkur í hjónarúminu? Lazaro ræddi við son sinn um þetta mál og sagði honum að þetta væri einstakt tækifæri sem gæti breytt lífi hans og systra hans til hins betra. En hann sagðist ekki geta yfirgefið móður sína og sýndum við því fullan skilning. Fjölskylda Lazaro stakk upp á að hann tæki bara son sinn til Íslands en ég tók það ekki í mál. Annað hvort kæmu þau öll eða ekkert þeirra kæmi. Það væri alveg nóg að skilja þau frá móður sinni þó svo þau yrðu ekki skilin frá hvort öðru líka. Enda finnst mér stúlkurnar alveg verðskulda sama tækifærið og strákurinn, sem það er að búa á Íslandi. Það er ekkert í líkingu við það að búa í Perú. Efnahagurinn er í rúst, skólaganga rándýr og engin örugg vinna jafnvel fyrir þá sem hafa góða menntun. En ekkert varð úr því að þau komu með okkur til Íslands. Það var MJÖG erfitt að skilja þau eftir í Perú. Við vorum bæði í hálfgerðu þunglyndi þar sem að augljóslega voru þau ekki að hljóta þá umönnun sem við hefðum kosið. En síst af öllu myndi ég fara að stuðla að því að börn yrðu tekin af móður sinni. Það myndi ég ALDREI gera. Sama hvað ég vildi þau mikið sjálf, enda eru þau yndisleg.

Október 2003: Þann 3. október hringir José í okkur og segist hafa skipt um skoðun. Hann vilji koma til Íslands og hvort að systur hans megi ekki koma líka. Eðlilega vorum við í sjokki og Lazaro vildi fá að tala við Önu. Hún sagðist hafa hugleitt þetta mál og komist að þeirri niðurstöðu að hún væri búin að fá nóg af þessu. Börnin vildu fara og að hún gæti þá farið að lifa lífinu og vinna. Það er erfitt að skilja viðhorf hennar en ég myndi aldrei dæma hana því ég hef aldrei verið í hennar sporum. Ég trúði því reyndar aldrei að hún myndi láta þau frá sér vegna þess að þau eru hennar matarmiði. Lazaro sendir ekki peninga til hennar nema vegna barnanna. En samt sem áður, þá tók hún þessa ákvörðun. Nú upphófst ferlið fyrir alvöru. Við sögðum henni hvaða gögn hún þyrfti að útvega og hófst hún þegar handa. Við héldum að börnin yrðu kannski komin fyrir jól. Þvílíkur barnaskapur. Viku síðar hringdi hún aftur og sagðist hafa lent í vandræðum. Vegabréfin kosta samanlagt 300 dollara. Forræðisvottorð kostar 150 dollara. Stimplað leyfisbréf frá móður kostar 50 dollara. Hvert fæðingarvottorð kostar 18 dollara. Ekkert mál. En...fæðingarvottorð Kelly var ekki fullnægjandi. Það vantaði nafnið hans Lazaro og barnið því í raun skráð föðurlaust. Ráðhúsið í Lima neitaði að leyfa henni að skrá nafnið hans Lazaro, það yrði hann að gera sjálfur. Annars gæti hún verið að rangfeðra barnið. Við vildum forðast að Lazaro færi út aftur en hefðum við vitað hvað tók við þá hefði hann bara farið og börnin væru hér núna. Ég tek það fram að án fæðingarvottorðsins getur Kelly ekki komið til Íslands og mamma hennar getur ekki keypt vegabréf handa henni í Perú. Við tók eftirfarandi ferli:

1) Þar sem það er ekkert sendiráð frá Perú á Íslandi þá hafði ég samband við útlendingastofnun og spurði ráða. Þau sögðu mér að hafa sambandi við utanríkisráðuneytið.
2) Ég hringi í Utanríkisráðuneytið og útskýri málið fyrir yndislegri konu sem heitir Heiðrún. Hún segir að best sé að senda þeim aðstoðarbeiðni skriflega því þá bæri ráðuneytinu að svara skriflega. Þannig myndum við ekki fá einhverjar vitlausar upplýsingar símleiðis. Við skrifuðum bréf. Viku síðar kom svarið. Það var í raun ekkert svar. Aðeins upplýsingar um ræðismann fyrir Ísland í Perú sem við áttum að hafa samband við. Hann er læknir og er frá Perú.
3): Við skrifuðum honum tölvupóst og útskýrðum stöðuna. Hann svaraði aldrei. Eftir 2 vikna bið ákvað ég að hringja í hann. Hann sagði mér að hann hefði fengið e-mailið og hefði svarað því! Þetta væri alls ekki innan hans verkahrings heldur sendiráðs Perú í Svíðþjóð. Hann gaf mér símanúmer þeirra. Þá vissum við loks hverjir gætu hjálpað okkur. Það tók semsagt mánuð að komast að því við hvern við ættum að tala.

Nóvember 2003: Ég hringdi í sendiráðið í Svíþjóð og rakti söguna einu sinni enn. Þeir sögðu að við yrðum að útbúa lagalegt skjal þar sem Lazaro gengist við barninu og gæfi jafnframt móður þess lagalega heimild til þess að undirrita fæðingarvottorðið fyrir hans hönd í Perú. Ég spurði þá hvernig við gerðum svona skjal. Þeir sögðu nóg að við útbyggjum það sjálf svo lengi sem það væri stimplað af notarius publicus (sem er lögfræðingur hjá Sýslumanni). Síðan létum við Utanríkisráðuneytið stimpla skjalið og sendum það svo til þeirra og þeir stimpluðu það fyrir hönd Perúískra yfirvalda. Þá ætti hún að geta fengið fæðingarvottorðið. Þetta tók töluverðan tíma að útbúa því við vorum óviss um orðalag og annað.

Desember 2003: Í desember vorum við þó búin að útbúa þetta og sendum út með ábyrgðarpósti. Þeir sögðu okkur í sendiráðinu að það tæki þá svona 1-2 daga að stimpla skjalið og senda til baka. Í stuttu máli sagt þá lenti þetta í jólapóstinum og svo fór konsúllinn í 3 vikna jólafrí og eftir miklar símhringingar og læti fengum við skjalið loksins sent aftur frá sendiráðinu í Svíþjóð í byjrun janúar ásamt rukkun fyrir þjónustu þeirra uppá 3000 krónur íslenskar :(

Janúar 2004: Alsæl með að vera loksins komin með skjalið, sendum við það út til Perú. Okkur til mikillar skelfingar hringdi Ana í okkur skömmu síðar og sagði því hafa verið hafnað. Hún gat ekki útskýrt af hverju því hún skildi ekkert hvað fólkið í ráðhúsinu var að tala um. Lazaro fór alveg yfir um á taugum og sagði henni að gjöra svo vel og fara aftur með skjalið og taka einhvern með sér. Hún fór með systur sína sem náði nákvæmlega sama árangri og hún: engum. Einnig virtist systir hennar ekki heldur ver fær um að segja okkur hvað vandamálið væri eiginlega. Þeir hefðu sagt að þetta yrði að vera stimplað af Notario Publico en íslenski stimpillinn sagði auðvitað Notarius Publicus!!! Lazaro brjálaðist og spurði hvort bæði þær og þessir opinberu starfsmenn væru vangefin!!! Við lögðum heilann í bleyti og datt þá snjallræði í hug. Vinahjón Lazaro, José og Ada heita þau, gætu hjálpað okkur þar sem José vinnur í ráðhúsi (þau eru mörg í Lima) og er einhvers konar yfirmaður þar. Við hringdum í þau og þau ætluðu sko alveg að redda þessu fyrir okkur. Þau fóru með Önu aftur og lentu í því sama en gátu gefið okkur skýrari svör. Það vantaði peninga til að múta þessu líði og þá yrði allt í lagi. Bara að senda 200 dollara.

Febrúar 2004: Við sendum peningana og auk þess 300 dollara vegna þess sonur Lazaro þurfti að fara í augnaðgerð til að láta fjarlægja einhvern hnúð úr auganu. Vika leið og þau hringdu. Þetta var alveg að verða klárt en það vantaði meiri peninga. Bara 400 dollara í viðbót og þá væri málinu reddað. Nú voru farnar að renna á okkur tvær grímur en við urðum að treysta þessu fólki. Við sendum peningana og sáum fram á að börnin kæmu í mars. Mamma mín var búin að láta okkur fá geymsluna sína sem herbergi handa José og við vorum í óða önn að breyta henni og gera upp. Stelpurnar fengju okkar svefnherbergi og við yrðum inni í stofu. Við kaupum stærra húsnæði seinna en núna er ekki rétti tíminn enda kostnaðurinn við að koma börnunum hingað alltaf að hækka. Við létum okkur dreyma um hvernig þetta yrði þegar þau væru komin. Þannig hefur þetta gengið á hverju kvöldi í marga mánuði og alltaf hringja börnin og spyrja hvenær þau fái eiginlega að koma til Íslands :(
Í lok febrúar hringdu hjónin aftur og sögðu þetta ekki hafa gengið. Skjalið okkar væri ekki á réttu formati. Þau sendu okkur með tölvupósti uppkast af nýju skjali, orðað nákvæmlega eins og þeri vildu í Perú. Við fórum í gegnum sama stimplaferlið og áður og sendum svo skjalið með hraðpósti (5300 krónur) til Perú. Þetta gerum við allt á einni viku. Skömmu síðar hringja hjónin aftur í okkur. Núna segja þau að það þurfi að stimpla fæðingarvottorðið af utanríkisráðuneytinu í Perú og það kosti 700 dollara!!! Við fengum vægt áfall og ég bara brotnaði niður og grét. Daginn eftir ákvað ég að athuga þetta og hringdi í útlendingastofnun. Þeir könnuðust ekkert við að slíkur stimpill væri nauðsynlegur. Ég hugsaði líka með mér að það væri skrýtið að það þyrfti þá ekki líka að stimpla fæðingarvottorðin hjá hinum börnunum? Ég hringdi í sendiráðið í Svíþjóð og sagði þessa ráðagerð þeirra ekki hafa virkað. Skjalið sem við útbjuggum eftir þeirra leiðbeiningum hefði verið gagnslaust með öllu. Þeir vildu nú ekki ræða það en staðfestu þó að ef svo væri að það þyrfti stimpil frá utanríkisráðuneytinu í Perú þá myndi hann í mesta lagi kosta 30-40 dollara. Ekki 700!!! Þess má geta að svona stimpill kostar 1200 krónur á Íslandi.
Lazaro hringdi í hjónin í Perú og sagði þeim að gleyma þessu með stimpilinn. Þetta væri bara rugl sem hann ætlaði ekki að borga fyrir. Þau sættu sig við þetta og það var aldrei aftur minnst á þessa 700 dollara eða þennan stimpil. En í sambandi við skjalið sem við vorum að senda þeim, að þessu sinni með réttu formati. Því var líka hafnað. Núna var það vegna þess að það vantaði fylgiskjal. Eins konar Testimonio frá Notariusi þar sem hann staðfestir enn fremur sannleiksgildi hins skjalsins. Við vorum enn í áfalli og fengum bara þau svör að Notarius hér á landi myndi vita hvað málið snérist um. Einnig vildu þeir úti fá ljósrit af vegabréfinu hans Lazaro. Hvers vegna ekki var hægt að segja okkur þetta fyrr er mér enn hulin ráðgáta.
Símreikningurinn fyrir febrúar var 21 þúsund krónur.

Mars 2004: Vi? fórum til Notariusar og hann hafði aldrei heyrt talað um svona skjal og sagði þau ekki eiga neitt sérstakt staðlað format yfir slíkt. Hann vorkenndi okkur þó svo mikið og vildi hjálpa okkur að hann í samstarfi við okkur útbjó skjal, bæði á ensku og spænsku, sem staðfestir enn fremur aðalskjalið og sannleiksgildi þess. Hann stimplaði líka ljósrit af vegabréfi Lazaro. Þetta fórum við með í Utanríkisráðuneytið og í þetta sinn neituðu þeir að rukka okkur fyrir stimplana. Þau voru svo hneyksluð á þessari meðferð á okkur. Þau útbjuggu meira að segja aukaskjal fyrir okkur þess eðlis að það væru engir samningar á milli Íslands og Perú og því takmarkað hvað Perú gæti ætlast til að við gerðum. Þennan pakka sendum við svo til sendiráðsins í Svíþjóð (svo við getum borgað þeim AFTUR fyrir að stimpla þetta allt) með hraðpósti (3800 krónur) og erum enn að bíða eftir að fá þetta sent til baka. Svo sendum við þetta aftur til Perú og verður það lokatilraun okkar. Ef þetta gengur ekki þá verður Lazaro bara að fara út og leysa þetta sjálfur, enda hefðum við farið þá leið hefðum við vitað hvaða skriffinnskumartröð biði okkar í þessu máli. Það er ekkert sem við getum frekar gert hér á landi, við erum búin að þaulreyna allar lagalegar leiðir án þess að Lazaro fari út. Þess má geta að það mun kosta vel yfir 300 þúsund krónur að flytja börnin hingað með flugi og sá kostnaður bíður okkar. Síðan þarf að kaupa kojur handa stelpunum og öll föt á þau því þau eiga ekki neitt, sérstaklega ekki vetrarfatnað eða neitt slíkt. Manni finnst samt þetta allt vera aukaatriði svo lengi sem þau KOMA hingað. Þessi bið er alveg ömurleg og þvílík taugaspenna. Ég mun svo bæta við framhaldi af því sem gerist á næstunni. Biðjið fyrir okkur og fyrir því að gögnunum sem við sendum út næst verði ekki hafnað og þetta HELV... fæðingarvottorð komist í gegn.
Nínos hefur tjáð sig.


|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives