The Kvaranita Show
 

 
The Ramblings and Ravings of a Crazed Muppet
 
 
   
 
Friday, January 09, 2004
 
Hobbitanafnið mitt er Ruby Hamwich of Buckleberry Fern og því er ég náskyld henni Fríðu. Hobbitanafnið hans Lazaro er Fosco Proudfoot of Standelf þannig að hann og Lárus hennar Fríðu eru nafnar en ekki skyldmenni. Skrýtið... Proudfoot er líka eitthvað svo indíánalegt.

Álfanafnið mitt er Nessa Elensar. Frekar flott finnst mér. Álfanafnið hans Lazaro er Lenwë Faelivrin þannig að sem álfur er hann líka nafni Lárusar... maður fer nú að sjá í gegnum þetta system...

En nú spyr ég ykkur sem þekkið til, er ég meiri álfur eða hobbiti? Hvað finnst ykkur? Ég er á báðum áttum sjálf þar sem ég hef svona soldið álfalegt hár og er frekar föl en aftur á móti er vaxtarlag og hæð (uhmm...) frekar líkt hobbita... Gefið mér svar!
Þessar upplýsingar má finna á http://www.chriswetherell.com
|
 
Fréttatilkynning! Íslendingur Fæddur!

Það tilkynnist hérmeð að splunkunýr Íslendingur hefur litið dagsins ljós. Hann heitir Lazaro Luis Núnez Altuna. Hann hefur búið á Íslandi í 4 ár og beðið þess með óþreyju að fyrstu einkenni sanna Íslendings kæmu fram:
Lázaro: ,,Já, þetta er búið að taka langan tíma en loksins kom þetta hjá mér."
Fréttamaður: ,,En hvernig er svo tilfinningin að vera loksins búinn að fá flensu og kvef?"
Lázaro: ,,Ég er náttúrulega búinn að bíða eftir þessu alveg síðan ég fékk græna kortið. Það er vitað mál að þegar það fara að renna úr nefinu á manni sultardropar og maður getur ekki lengur sofið fyrir stífluðum ennisholum að þá er maður orðinn alvöru Íslendingur. Að vera ríkisborgari er gott og gilt og ég stefni á það eftir 3 ár, en kvefið, það er sko merki um að maður er orðinn ekta, enda þekkist þetta ekki þaðan sem ég kem frá."
Fréttamaður: ,,Hvernig heldurðu uppá þennan merka áfanga? Ætlið þið fjölskyldan að gera eitthvað sérstakt?"
Lázaro: ,,Nei, nei, við tökum þessu bara rólega. Ég fékk reyndar gjöf frá unnustu minni, Vick's Vabo Rub. Einnig var ég látinn anda að mér heitri gufu með handklæði yfir hausnum með viðhöfn fyrir framan mína allra nánustu. Annars var þetta bara svona í faðmi fjölskyldunnar."
Fréttamaður: ,,Enn og aftur til hamingju með að verða orðinn Íslendingur og takk fyrir."
Lázaro: : ,,já...sniff, sniff... takk sömuleiðis... AATTSSJÚÚ!!!"
|
 
Dánardægur og Skólinn

Ég gleymdi að minnast á það að 7. janúar er alltaf mjög sérstök dagsetning í mínum huga. Þá er nefnilega dánardægur pabba míns og ömmu minnar. Hann dó árið 1994 og amma 1997, ekki bara sama mánaðardag, heldur á sama klukkutíma, milli 20-21 um kvöldið. Fyrir tveimur dögum var þó svona alveg spes dagur af því að það voru 10 ár liðin frá því að pabbi dó. Hann var auðvitað orðinn gamall maður en það var samt erfitt af því að ég var bara 15 ára. Hann var nefnilega 36 árum eldri heldur en mamma þannig að hann lést. Hann var 78 ára 1994 en mamma 42 ára. Skrýtið ekki satt? Og svo er ég með manni sem er 20 árum eldri en ég, en það er víst ekki neitt miðað við mömmu og pabba!
Ég fór í kirkjugarðinn á miðvikudaginn og setti ljós hjá pabba og ömmu. Ég var á háhæluðum stígvélum sem Lazaro gaf mér og það má kalla það kraftaverk að ég hafi ekki hálsbrotnað þar sem ég var þarna ein og í fljúgandi hálku. Sem betur fer er ekki langt á milli grafanna þeirra! Mér leið ekkert sérstaklega vel einhvern veginn. Samt finnst mér yfirleitt svo notalegt í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötuna, hann er svo rómantískur og niðurníddur eitthvað.
Ég fór síðan í fyrsta kúrs á þessari önn (er enn ekki búin að fá neinar einkunnir frá þeirri síðustu). Ég skráði mig í kúrs um Tennessee Williams leikritaskáld, kanadískar unglingabókmenntir og Hvernig kenna á ensku sem annað tungumál. Ég fékk vægt áfall þegar ég fór í kennslukúrsinn og kennarinn fór yfir það sem var framundan. Tvö hópverkefni sem samanlagt gilda 70% af kúrsinum, verða að vera gerð í PowerPoint, skrifa 1-2 bls. um hvern kafla sem lesinn er í bókinni (samanlagt 8x), koma með uppköst, tillögur að öllu áður en það má skila því fullunnu, kenna bekknum einhverja lexíu sem við eigum að búa til og gera gagnrýni á einhverja vefsíðu sem kennir ensku. Þetta allt saman til að fá skitnar 2.5 einingar. Síðan er málstofuverkefni sem maður getur tekið (og ég var búin að skrá mig í) sem gefur manni 2.5 í viðbót og það er bara alveg nýr kúrs! NO WAY!!! Sénsinn að ég fari í kúrs þar sem 70% af lokaeinkunn er hópverkefni með kannski einhverjum fíflum sem nenna ekkert að gera. Ég er nefnilega alltaf sú sem lendi í að vinna alla vinnuna. Ég flúði út í pásunni og hellti mér með kökk í hálsinum yfir næstu tölvu sem ég gat fundið til að sjá hvernig ég gæti fengið 5 einingar fyrir eitthvað annað en þessa martröð. Hvað sem er annað! Mér til mikillar ánægju sá ég að Júlían D'Arcy er með kúrs um bókmenntir síðari heimstyrjaldar uppá 5 einingar! Ég skil ekki hvernig þetta gat farið framhjá mér þar sem ég hefði ALDREI skráð mig í hitt helvítið hefði ég vitað af bókmenntakúrsinum. Ég hljóp inná skrifstofu til hans og sagðist hafa flúið skelfingu lostin út úr tíma hjá Birnu og ég YRÐI að fá að vera í kúrsinum hans! Honum fannst þetta frekar fyndið verð ég að segja og sagði að ég væri velkomin. Ég fór alsæl út á Bóksölu stúdenta og keypti allt lesefnið sem satt best að segja lofar góðu. Er núna að lesa Private Angelo eftir Eric Linklater og er þegar farin að skipuleggja fyrirlestur um útrýmingabúðir nasista sem ég á að flytja í febrúar. Ég elska skólann!
|
Thursday, January 08, 2004
 
Loksins Sanngjörn og Réttlát Niðurstaða úr Persónuleikaprófi!



|

 

 
   
 
Skoða Gestabók
Prumpa í Gestabók


Ljósmyndasafn

Perú-Myndir

Meðganga II

Meðganga

Bumbu-Myndir

America's Next Top Model

Strákurinn Minn

Strákurinn Minn 2

Strákurinn Minn 3

Strákurinn Minn 4

Strákurinn Minn 5

Strákurinn Minn 6

Strákurinn Minn 7

Strákurinn Minn 8

Aevar í Júlí

1 árs Afmaeli Aevars

1 árs Afmaeli Aevars: Framh.

Aevar í Nóvember og Desember

Aevar í Desember

José 15 ára

María Mín 1

María Vikugomul

Ferming og Skírn 2006

María Mín 2

Myndirnar hennar Rosario

Family-Myndir I

Family-Myndir II

Rosario 14 ára

Aevar 2ja ára

Family-Myndir III

Family-Myndir IV

José 16 ára

María Rúna 1 árs !!!

Rosario 15 ára

Family-Myndir V

Kelly 11 ára

Aevar 3 ára

María 2 ára

Perúa 2007

Perúa 2008

Aevar 4 ára

Mannbætandi Síður:

Kærleikshvetjandi Blogg Jónu Rúnu Kvaran

Heimasíða Jónu Rúnu Kvaran

Kaffidvergurinn

Agnar Bragi Snillingur

Veðurfréttir

Bloggarar:

Snúrurnar

Írisar-Blogg

Sigrúnar-Blogg

Kötlu-Blogg

Ellu-Blogg

Sario-Mario-Blogg

Auddu-Blogg

Öldu-Blogg

Önnu-Blogg

Gerðu-Blogg

Láru-Blogg

Fríðu-Blogg

Selmu-Blogg

Huldu-Blogg

Halldóru-Blogg

Döggu-Blogg

Auðar Hermanns-Blogg

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

Tell A Friend!
Type In Your Name:

Type In Your E-mail:

Your Friend's E-mail:

Your Comments:

Receive copy: 


 

Home  |  Archives